Fréttablaðið - 13.09.2017, Qupperneq 6
MjanMar Árið 1991 hlaut Aung San
Suu Kyi, leiðtogi Mjanmar, friðar-
verðlaun Nóbels. Hún hafði ári áður
leitt flokk sinn í þingkosningum
og fengið 58,7 prósent greiddra
atkvæða. Herforingjastjórn lands-
ins, sem hafði boðað til kosning-
anna, leist hins vegar ekki á Suu Kyi.
Stjórnin ógilti því kosningarnar og
hélt völdum.
Í kjölfarið var Suu Kyi sett í stofu-
fangelsi á heimili sínu í borginni
Rangoon. Á meðan hún var í stofu-
fangelsi hlaut hún bæði Sakharov-
verðlaunin, líkt og Nelson Mandela
hafði áður gert og Malala Yousafzai
og Kofi Annan hafa gert síðan, og svo
fyrrnefnd friðarverðlaun Nóbels.
Árið 2015 vann flokkur Suu Kyi
öruggan meirihluta í þingkosning-
um Mjanmar og í þetta skipti voru
niðurstöður kosninganna virtar.
Tók Suu Kyi árið 2016 við hlutverki
svokallaðs ríkisráðgjafa og er því nú
eins konar forsætisráðherra Mjan-
mar.
Árið 2017, nánar tiltekið á mánu-
dag, sagði Zeid Raad Al Hussein,
mannréttindastjóri Sameinuðu
þjóðanna, að fram fari þjóðernis-
hreinsanir í Rakhine-héraði Mjan-
mar. Þar séu meðlimir þjóðflokksins
Rohingja teknir af lífi án dóms og
laga.
„Við höfum fengið fjölmargar
fregnir og séð gervihnattaljósmyndir
af öryggissveitum og almenningi að
brenna bæi Rohingja og drepa Roh-
ingja án dóms og laga, meðal ann-
ars eru almennir borgarar á flótta
skotnir til bana,“ sagði Al Hussein í
gær og bætti við:
„Ég kalla eftir því að ríkisstjórnin
bindi enda á grimmilegar hernaðar-
aðgerðir sínar í héraðinu, axli
ábyrgð á öllum brotum sem kunna
að hafa verið framin og hætti alvar-
legri mismunun sinni í garð Roh-
ingja.“
Samkvæmt Sameinuðu þjóðun-
um hafa rúmlega 370.000 Rohingjar
flúið til Bangladess frá því að átök
blossuðu upp í Rakhine í síðasta
mánuði. Átökin brutust út þegar
Rohingja-skæruliðar réðust á lög-
reglustöð í norðurhluta Rakhine og
drápu tólf starfsmenn. BBC greinir
frá því að Rohingjar í Bangladess segi
mjanmarska herinn hafa brugðist
við af ofsa, brennt bæi Rohingja og
ráðist á almenna borgara til þess að
flæma þá úr landi.
Meint mismunun í garð Rohingja
í Mjanmar á sér þó lengri sögu. Sam-
kvæmt Amnesty International hefur
verið brotið með skipulögðum hætti
á mannréttindum þeirra síðan her-
foringjastjórnin tók völdin í land-
inu, sem þá hét Búrma, árið 1988.
BBC fjallaði um ofsóknir í garð
Rohingja árið 2009 þar sem meðal
annars kemur fram að Rohingjar
fái ekki ríkisborgararétt, þeir megi
margir hverjir ekki eiga land, hafi
ekki ferðafrelsi og séu þvingaðir til
þess að vinna fyrir ríkið.
Forsætisráðherra Bangladess,
Sheikh Hasina Wazed, heimsótti
flóttamannabúðir Rohingja í gær og
hvatti yfirvöld í Mjanmar til að láta
mannúðarsjónarmið ráða för, sak-
laust fólk væri þarna að þjást.
„Þetta fólk, saklausa fólk, börn,
konur, er að þjást. Þetta fólk á
heima í Mjanmar. Í hundruð ára
hefur þetta fólk búið þar. Hvernig
geta yfirvöld í Mjanmar neitað því
um ríkisborgararétt?“ spurði Hasina.
Öllu svartari frásögn birtist á Al
Jazeera árið 2015, stuttu áður en
flokkur Suu Kyi sigraði í þingkosn-
ingum. Segir þar að rannsóknar-
teymi Al Jazeera hafi fundið sterkar
vísbendingar um þjóðarmorð.
Ríkis stjórnin æsi upp almenning í
því skyni að Mjanmarar drepi sem
flesta Rohingja.
Fjölmargir hafa nú skorað á nób-
elsverðlaunahafann Suu Kyi að gera
eitthvað í málunum og uppræta
ofbeldi í garð Rohingja. Aðrir friðar-
verðlaunahafar, til að mynda Malala
Yousafzai og Desmond Tutu, hafa
skorað á Suu Kyi og sagt ofbeldi í garð
Rohingja hrylling. Antonio Guter-
res, framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, hefur gert slíkt hið sama
og það hefur Recep Tayyip Erdogan,
forseti Tyrklands, einnig gert.
Suu Kyi hefur hins vegar haldið
því fram að „risavaxinn ísjaki rangra
upplýsinga“ valdi því að heims-
byggðin misskilji ástandið. Í sam-
tali við Erdogan í september sagði
Suu Kyi, samkvæmt Al Jazeera, að
ríkisstjórnin gengi úr skugga um
að allir í Mjanmar fengju að njóta
mannréttinda sinna og ríkisstjórnin
gerði allt sem hún gæti til að vernda
þegna sína. Að öðru leyti hefur Suu
Kyi ekki mikið tjáð sig um málið.
Þögn Suu Kyi er afar umdeild og
hafa áhrifamiklir einstaklingar og
fjölmiðlar gert hana að umfjöllunar-
efni. Fyrrnefndur Tutu fordæmdi
þögn Suu Kyi til að mynda á föstu-
dag og hvatti hana til að vera „hug-
rakka á ný“.
Í frétt Guardian segir að fáir
nútímamenn hafi verið jafn dáðir
og Suu Kyi og fallið jafn hratt í áliti.
Eftir tveggja áratuga baráttu hafi
hún sigrað og staðið þögul á meðan
hundruð þúsunda þegna hennar var
slátrað.
Blaðamaður Washington Post fer
sömuleiðis ófögrum orðum um Suu
Kyi í grein sinni: „Skammarleg þögn
Suu Kyi: Arfleifð í molum“. „Þegar
kemur að Rohingjum hefur Suu Kyi
sýnt lítinn áhuga á því að koma á
friði,“ skrifar blaðamaðurinn um
Aung San Suu Kyi, handhafa friðar-
verðlauna Nóbels.
thorgnyr@frettabladid.is
Frá friðarverðlaunum
til þjóðernishreinsana
Aung San Suu Kyi, leiðtogi Mjanmar, er sögð þegja á meðan almennir borgarar
drepa Rohingja-múslima án dóms og laga. Suu Kyi er handhafi friðarverðlauna
Nóbels og skora aðrir friðarverðlaunahafar á hana að binda enda á ofsóknirnar.
Múslimar í pakistönsku borginni Karachi stóðu með Rohingjum um helgina og mótmæltu meintu aðgerðarleysi Suu
Kyi. Á plakati sem hér má sjá var Suu Kyi sagt að skammast sín. NoRdicphotoS/AFp
Aung San Suu Kyi, ríkisráðgjafi Mjan-
mar. NoRdicphotoS/AFp
– fáðu meira út úr fríinu
Hotel ILF
BORGARFERÐ
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
83
94
0
SEVILLA
Frá kr. 83.595
m/morgunmat
Netverð á mann m.v. 2 í
herbergi.
9. nóvember í 3 nætur.
Hotel
Bequer
PRAG
LJUBLJANA
VALENCIA
Frá kr. 49.995
m/morgunmat
Netverð á mann m.v. 2 í
herbergi.
29. september í 4 nætur.
Frá kr. 59.995
m/morgunmat
Netverð á mann m.v. 2 í
herbergi.
12. október í 3 nætur.
Frá kr. 94.895
m/morgunmat
Netverð á mann m.v. 2 í
herbergi.
12. október í 4 nætur.
Hotel City
AC Hotel
Colón
Frá kr.
49.995
m/morgunmat
Skelltu þér í
BÚDAPEST
Frá kr. 59.995
m/morgunmat
Netverð á mann m.v. 2 í
herbergi.
19. október í 4 nætur.
Ibis Style Center
Hotel
Allt að 26.000 kr. afsláttur á mann
Allt að 30.000 kr. afsláttur á mann
Allt að 30.000 kr. afsláttur á mann
FY
RI
R2 1
EINNIG
Í BOÐI
Allt að
39.950 kr.
afsláttur á mann
á flugsæti
m/gistingu
FY
RI
R2 1
ÁÐUR KR.
79.900
NÚ KR.
39.950FL
UG
SÆ
TI
Ég kalla eftir því að
ríkisstjórnin bindi
enda á grimmilegar hern
aðaraðgerðir sínar í hérað
inu, axli ábyrgð á öllum
brotum sem kunna að hafa
verið framin og að hætta
alvarlegri mismunun sinni í
garð Rohingja.
Zeid Raad Al
Hussein, mann-
réttindastjóri Sam-
einuðu þjóðanna
1 3 . s e p t e M b e r 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r6 f r é t t I r ∙ f r é t t a b L a Ð I Ð
1
3
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
B
9
-B
8
2
8
1
D
B
9
-B
6
E
C
1
D
B
9
-B
5
B
0
1
D
B
9
-B
4
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
1
2
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K