Fréttablaðið - 13.09.2017, Qupperneq 13
1. september birtust í Morgun-blaðinu athyg lisverðar greinar um mygluskemmdir
í opinberum byggingum og áhrif
þeirra á heilsu starfsmanna. Raka-
skemmdir í húsum eru angi af því
sem kallað hefur verið húsasótt á
íslensku (sick building syndrome),
en mygla er fylgifiskur rakans.
Skaðsemi myglu hefur verið
þekkt hér á landi í hundruð ára, og
orðið heysótt, sem tengist vinnu í
mygluðu heyi, er þekkt í málinu frá
því um aldamótin sextán hundruð.
Læknum hættir til, eins og Tómasi
forðum, að trúa aðeins því sem þeir
geta þreifað á eða mælt í tilrauna-
glösum. Einkenni vegna raka-
skemmda geta brugðið sér í allra
kvikinda líki, og því telja sumir
læknar jafnvel enn að þetta sé angi
af taugaveiklun eða jafnvel geðveiki.
Sama átti við um óþol fyrir rok-
gjörnum, ilmandi efnum, sem sumt
fólk þolir ekki, þar til sýnt var fram
á eðli þess.
Einkennum af völdum raka og
mygluskemmda er lýst í nýrri grein
eftir Finnann Valtonen. Ekki eru
til viðtekin greiningarskilmerki né
rannsóknir sem hægt er að byggja
á greiningu. Einkennin geta komið
eftir fáeina mánuði eða jafnvel mörg
ár. Einkenni byrja oft í slímhúðum í
nefi og lungum, en svipuð einkenni
geta komið vegna annarra slæmra
loftgæða og einnig við venjulegt
kvef. Einkenni af rakaskemmdum
í húsum lagast í fyrstu fljótt þegar
skipt er um umhverfi, en koma jafn-
harðan aftur þegar komið er í gamla
umhverfið eða í annað rakaskemmt
umhverfi.
Meðal einkenna sem Valtonen
nefnir eru endurteknar bólgur
í afholum nefsins, berkjubólga,
lungnabólga, mæði og úthaldsleysi,
langvarandi hiti, þreyta, vöðva- og
liðverkir, drungi, minnisleysi, ein-
beitingarskortur og útbrot.
Forstjóri Íslenskrar erfðagrein-
ingar skrifaði grein í Fréttablaðið 5.
september um þetta efni. Þar heldur
hann því fram að trúin á heilsuspill-
andi áhrif rakaskemmda og myglu í
húsnæði sé sama eðlis og draugatrú
og hafi leyst hana af hólmi hér á
landi. Allt sé þetta bull og vitleysa,
sem heltekið hafi þjóðina, en ekki
aðrar þjóðir, og óþarfi að henda
milljörðum í viðhald og viðgerðir
á húsum sem svona sé ástatt um.
Hann segir þetta að vísu með öðru
orðalagi.
Þrátt fyrir vandlega leit í læknis-
fræðibókmenntum hafi hann ekki
fundið sannanir fyrir því að myglu-
sveppir í húsum vegi að heilsu
manna. Alþjóða heilbrigðismála-
stofnunin (WHO) hefur látið sig
málið varða og dregur ekki í efa sam-
bandið milli rakaskemmda og sjúk-
dóma í öndunarfærum. Við eigum
líka ágæta norræna rannsókn sem
sýnir skaðleg áhrif raka í íbúðar-
húsum á lungnastarfsemina (María
Gunnbjörnsdóttir o.fl. Thorax
2006;61(3):221–225.).
Þótt það séu ekki vísindi langar
mig að segja sögu úr 40 ára reynslu-
banka um tíu ára dreng. Hann hafði
fengið einkenni um astma nokkru
áður en hann kom til mín. Móður
hans þótti þetta skrítið. Einni eða
tveimur vikum áður en einkennin
byrjuðu höfðu foreldrarnir keypt
veggklæðningu, sem hlaðið var
upp í stofunni og beið nú eftir smið.
Það skyldi nú vera að drengurinn
þyldi ekki útgufun úr spónlögðum
viðnum? Foreldrarnir báru klæðn-
inguna út í bílskúr við húsið og loft-
uðu vel út í stofunni. Pilturinn hætti
að finna fyrir astmanum. Móðir
drengsins hugsaði sem svo að þetta
væri kannski tilviljun og fór, þegar
enginn vissi til, út í bílskúrinn, sótti
eitt borð og laumaði undir rúmið
hjá drengnum. Morguninn eftir
vaknaði hann með astma.
Þessi saga sýnir að fólk er mis-
jafnt að upplagi og sumir þola
mikið áreiti af pestarlofti þar sem
aðrir þola miklu minna. Ég tel að í
rakaskemmdu húsnæði geti losnað
úr læðingi ertandi rokgjörn efni, þar
með talin eiturefni frá myglu.
Komið hefur fram að húsnæði
velferðarráðuneytisins var rýmt
um það leyti sem núverandi heil-
brigðisráðherra kom til starfa. Í
Morgunblaðinu var viðtal við líf-
eindafræðing, sem starfað hefur við
Landspítalann í 25 ár í hússkrifli sem
dæmt er ónýtt vegna rakaskemmda.
Hann er orðinn veikur vegna þess-
ara aðstæðna, og nú er starfsfólkinu
boðið að flytja í annað rakaskemmt
húsnæði. Þetta virðist talsvert kald-
ranaleg ráðstöfun á þeim tíma þegar
ráðuneytið flýr rakaskemmdir. Ef
yfirgefa þarf skip í sjávarháska er
það skipstjórinn sem fer síðastur frá
borði. Ráðherrann virðist ekki taka
þessa reglu sér til fyrirmyndar.
visir.is Lengri útgáfa
af greininni er á Vísi.
Enn um rakaskemmdir í húsnæði
Skaðsemi myglu hefur verið
þekkt hér á landi í hundruð
ára, og orðið heysótt, sem
tengist vinnu í mygluðu heyi,
er þekkt í málinu frá því um
aldamótin sextán hundruð.
Í Morgunblaðinu var við
tal við lífeindafræðing,
sem starfað hefur við Land
spítalann í 25 ár í hússkrifli
sem dæmt er ónýtt vegna
rakaskemmda. Hann er
orðinn veikur vegna þessara
aðstæðna, og nú er starfs
fólkinu boðið að flytja í
annað rakaskemmt húsnæði.
Þetta virðist talsvert kald
ranaleg ráðstöfun á þeim
tíma þegar ráðuneytið flýr
rakaskemmdir.
Davíð Gíslason
læknir, sér-
fræðingur í
lyflækningum
og ofnæmis-
sjúkdómum
STAÐALBÚNAÐUR Í NISSAN PULSAR ACENTA
ER MEÐAL ANNARS:
LED dagljósabúnaður, NissanConnect upplýsingakerfi með
7" snertiskjá, íslenskt leiðsögukerfi og samþætting við snjallsíma fyrir
Facebook og Google leit, Bluetooth handfrjáls síma- og hljómtækjabúnaður,
leðurklætt stýri með aðgerðahnöppum, bakkmyndavél, aðalljós með birtuskynjun,
upplýsingatölva með 5" litaskjá, sjálfvirkur regnskynjari á rúðuþurrkum, tvískipt
sjálfvirk loftkæling, 16" álfelgur, lykillaust aðgengi og ræsing. VISIA DÍSIL
EYÐSLA 3,6 L/100 KM*
2.850.000 KR.
ACENTA DÍSIL
EYÐSLA 3,6 L/100 KM*
3.050.000 KR.
NISSAN PULSAR
EINN BEST ÚTBÚNI BÍLLINN
Í SÍNUM FLOKKI
Þú færð EXTRA búnað á nýjan
NISSAN ef þú pantar fyrir 30. september
Þú færð EXTRA búnað á nýjan
Pulsar að verðmæti 250.000 kr.
Don't enlarge the this template.
The size of this template can be reduced.
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
3
9
5
5
N
is
s
a
n
P
u
ls
a
r
5
x
2
0
E
X
T
R
A
s
e
p
t
*M
ið
að
v
ið
u
pp
ge
fn
ar
tö
lu
r f
ra
m
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tr
i.
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 13M i ð V i k u D A G u R 1 3 . S e p T e M B e R 2 0 1 7
1
3
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
B
9
-A
4
6
8
1
D
B
9
-A
3
2
C
1
D
B
9
-A
1
F
0
1
D
B
9
-A
0
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
1
2
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K