Fréttablaðið - 13.09.2017, Page 39
markaðurinn 5M I Ð V I K U D A G U R 1 3 . s e p t e M b e R 2 0 1 7
unar taldi um 41 prósent fyrirtækja
sig búa við skort á starfsfólki.
Ari Skúlason, hagfræðingur í hag-
fræðideild Landsbankans, segir að
þrátt fyrir að stjórnendur fyrirtækja
telji sig búa við starfsmannaskort
sé greinilegt að fyrirtækin lifi vel af.
„Væntanlega er staðan sú hjá þeim
sem svara könnununum að þeir
telja betra að hafa fleiri hendur til
þess að vinna verkin. En svo er ekki
raunin. Það þýðir að vinnutíminn
verður lengri og í mörgum tilfellum
er meira að gera. Það er kannski
ekki alltaf hentugasta lausnin. Hún
væri sú að hafa fleiri hendur til að
vinna verkin, en það er ekki alltaf
hægt.“
Dregur úr spennunni
Samkvæmt vinnumarkaðskönnun
Hagstofunnar fyrir annan fjórð-
ung ársins hægði nokkuð á þeim
kröftuga vexti sem hefur verið á
vinnumarkaði undanfarin misseri.
Heildarvinnustundum fjölgaði um
2,1 prósent sem er töluvert minni
vöxtur en Seðlabankinn hafði
búist við. Að teknu tilliti til árstíðar
minnkaði atvinnuþátttaka og hlut-
fall starfandi var lægra en á fyrsta
fjórðungi ársins, en þá voru hlut-
föllin við eða nálægt hæstu gildum
frá því fyrir efnahagsáfallið 2008.
Eftir sem áður er atvinnuþátt-
takan nálægt sögulegum hæðum,
en um 84 prósent af heildarmann-
fjölda á vinnualdri hafa verið virk á
vinnumarkaði síðustu tólf mánuði,
og atvinnuleysi sögulega lágt eða
um 2 prósent samkvæmt tölum
Vinnumálastofnunar.
Ari segist eiga von á því að það
dragi nokkuð úr spennunni á
vinnumarkaði á næstunni. Undir
það hafa greiningardeildir bank-
anna sem og fleiri sérfræðingar
tekið. „Hagvöxtur var verulegur
Hagvöxtur var
verulegur í fyrra og
verður mikill í ár en við
reiknum síðan með því að
hann minnki og þá mun
draga úr spennunni sam-
hliða því.
Ari Skúlason, hag-
fræðingur
í hagfræðideild
Landsbankans
Hægari vöxtur er í
sjálfu sér það sem
hagkerfið og vinnumarkað-
urinn þurfa til þess að
forðast ofhitnun.
Ingólfur Bender,
hagfræðingur
Samtaka
iðnaðarins
Ef ekki hefði verið
fyrir erlenda vinnu-
aflið værum við í allt annarri
stöðu. Launaskrið og verð-
bólga hefðu þá gert vart við
sig og okkur hefði ekki tekist
að þjóna öllum þeim ferða-
mönnum sem
hér eru.
Katrín Ólafsdóttir,
lektor við
Háskólann
í Reykjavík
Tölur um erlent vinnuafl líklega vanmetnar
Katrín Ólafsdóttir segir ýmislegt
benda til þess að fjöldi erlendra
starfsmanna, sem komi hingað til
lands til að vinna, sé vanmetinn
í opinberum tölum. Svo virðist
sem margir þeirra séu ekki skráðir
í þjóðskrá, en úrtak vinnumark-
aðskönnunar Hagstofunnar nær
aðeins til þeirra sem skráðir eru í
þjóðskrá.
Hún bendir meðal annars á að
samkvæmt opinberum hagtölum
hafi framleiðni vinnuafls aukist
um ríflega 4 prósent í fyrra sem
sé langt umfram framleiðnivöxt
síðustu ára og „út úr kortinu“.
Seðlabankinn hefur tekið undir
þetta, en í hausthefti Peninga-
mála kom meðal annars fram
að líklegt væri að vöxturinn væri
ofmetinn vegna vanmats á fjölda
erlendra starfsmanna sem hafa
komið til landsins undanfarin
misseri. Er talið að framleiðni
vinnuafls aukist um 1,5 prósent
í ár.
„Það virðist vera sem svo að við
náum ekki utan um skráningar á
erlendu vinnuafli. Kannski er það
vegna þess að við erum ekki að
mæla rétt en einnig er mögulegt
að eitthvað ólöglegt sé í gangi.
Það er engin leið að segja til um
það,“ nefnir Katrín.
í fyrra og verður mikill í ár en við
reiknum síðan með því að hann
minnki og þá mun draga úr spenn-
unni samhliða því. Fer hún þá að
nálgast eðlilegt langtímajafnvægi,“
nefnir Ari.
Hann segir fyrst og fremst tvær
atvinnugreinar, ferðaþjónustuna
og byggingariðnaðinn, hafa borið
aukningu vinnuaflsins uppi. „Við
sjáum fram á að vöxtur ferða-
þjónustunnar verði minni en
verið hefur og það sama má segja
um byggingariðnaðinn. Það hefur
mikið verið byggt af hótelum og
atvinnuhúsnæði og sú þörf, sem var
fyrir hendi, fer væntanlega að verða
betur uppfyllt en áður. Þannig að
við nálgumst nú betra jafnvægi.“
Ingólfur segir að af gögnum Hag-
stofunnar megi ráða að farið sé að
draga úr vexti eftirspurnar eftir
vinnuafli samfara því að hægst hafi
á vexti hagkerfisins.
„Hægari vöxtur er í sjálfu sér það
sem hagkerfið og vinnumarkaður-
inn þurfa til þess að forðast ofhitn-
un,“ segir hann.
Enn sem komið er segir Ing-
ólfur hagvöxtinn vera hraðan og
spennuna talsverða í hagkerfinu.
Það sé sérstaklega sýnilegt á vinnu-
markaði þar sem atvinnuleysi sé
mjög lítið og atvinnuþátttaka með
því hæsta sem mælst hefur.
„Ef maður rýnir í þá hagvísa
sem geta veitt okkur vísbendingar
um hver þróunin verður á næstu
misserum, þá reikna ég með að
við munum sjá snúningspunktinn
tiltölulega fljótt, á næsta eða þar
næsta ári, og mun þá atvinnuleysið
sennilega rísa aftur og atvinnuþátt-
takan minnka. Við erum að nálgast
hápunktinn.“ Hagvöxtur komandi
missera verði ekki það mikill að
hann geti haldið atvinnuleysinu
áfram eins lágu og verið hefur.
25
20
15
10
5
0
2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2017
júní
Aldrei fleiri útlendingar á vinnumarkaði
Heimild: Vinnumálastofnun
7.
25
9 8.
87
7 1
2.
46
3
16
.3
95 18
.1
67
16
.5
90
15
.1
93
14
.6
27
14
.5
21
15
.3
66
16
.3
72 18
.0
08 2
0.
60
5 2
4.
17
8
24
.4
09
TÍMA
RIT
VIÐ PRENTUM
ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA SUÐURHRAUNI 1, 210 GARÐABÆ PRENTUN Í 140 ÁR
Ísafoldarprentsmiðja er umhverfisvottuð prentsmiðja af Svaninum,
norræna umhverfismerkinu. Við erum aðilar að rammasamningi
Ríkiskaupa og rammasamningi Reykjavíkurborgar. Við framleiðum
dagblöð, bækur, tímarit, bæklinga, umbúðir, veggspjöld, bréfsefni,
umslög, nafnspjöld, fjölpóst og margt fleira.
Hafðu samband við viðskiptastjóra okkar
í síma 5 950 300 og við komum
þínum hugmyndum í framkvæmd.
WWW.ISAFOLD.IS
1
3
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
B
9
-A
E
4
8
1
D
B
9
-A
D
0
C
1
D
B
9
-A
B
D
0
1
D
B
9
-A
A
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
1
2
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K