Fréttablaðið - 13.09.2017, Blaðsíða 41
NioxiN
margverðlaunaðar hárvörur gegn
hárlosi og hárþynningu
nioxin sækir áhrif sín í húðvörur.
háþróaðar meðferðir sem hver og ein
inniheldur sérsniðna samsetningu virkra
efna sem valin eru til þess að berjast
gegn hárþynningu.
Fáðu nánari upplýsingar á næstu
nioxin hársnyrtistofu.
Á næsta ári taka gildi innan ESB ný
lög um greiðsluþjónustu (e. PSD2)
sem eru nokkuð byltingarkennd.
Með tilkomu PSD2 er verið að
greina á milli framleiðslu og dreif-
ingar fjármálaþjónustu. Í raun er
verið að opna markaðinn með svip-
uðu móti og gert var með fjarskipta-
markaðinn á tíunda áratug síðustu
aldar. Opnun fjarskiptamarkaðarins
hafði gríðarleg áhrif á vöruframboð
og verð fjarskiptaþjónustu innan
Evrópu. Þannig minnkaði markaðs-
hlutdeild gömlu ríkisreknu símafyr-
irtækjanna víðast hvar um helming
eða meira og einingarverð að meðal-
tali um meira en 60%.
Það væri hins vegar óráðlegt að
heimfæra þróunina af fjarskipta-
markaði 100% yfir á fjármála-
markaðinn þar sem mun meiri sam-
keppni hefur ríkt á fjármálamarkaði
en var við opnun fjarskiptamarkað-
arins og sölu ríkissímafyrirtækja til
einkaaðila. Sérfræðingar spá því þó
að breytingin verði mikil. Þann-
ig eigi leikendum í greiðslumiðlun
eftir að fjölga og þeir muni byggja
viðskiptamódel sín á allt öðrum
tekjugrunni en bankar og kortafyrir-
tæki gera í dag. Í stað þess að treysta
á tekjur af færslugjöldum, árgjöld-
um, kortalánum og yfirdráttar-
vöxtum munu hinir nýju leikendur
líklega byggja viðskiptamódel sín á
vinnslu og notkun gagna (t.d. auglýs-
ingar sem birtast með reikningsyfir-
litum). Því má búast við að færslu-
og þóknunargjöld banka verði undir
þrýstingi á komandi árum og hafa
sérfræðingar spáð því að þau gætu
lækkað frá 40% upp í 80%, en þessar
tekjur eru um 20-25% af tekjum við-
skiptabanka innan Evrópu.
Fjórar sviðsmyndir
Ef við spyrjum okkur hverjir nýju
leikendurnir á fjármálamarkaðnum
gætu orðið, þá er gott við skoða það
út frá tveimur víddum. Í fyrsta lagi,
hvort leikendur á markaðnum verði
fyrst og fremst innlendir aðilar eða
hvort markaðurinn einkennist í
auknum mæli af því að til sé að
verða einn sameiginlegur mark-
aður fyrir greiðsluþjónustu innan
EES. Í öðru lagi hvort leikendur á
markaði verði áfram fyrst og fremst
hefðbundin fjármálafyrirtæki eða
hvort nýir leikendur byrji að skapa
sér stöðu á greiðslumarkaðnum eftir
að PSD2 tekur gildi.
Út frá þessum tveimur víddum má
sjá fyrir sér fjórar sviðsmyndir:
l Óbreyttur markaður þar sem
núverandi leikendur, bankar
og færsluhirðar, verða áfram
allsráðandi í veitingu greiðslu-
þjónustu.
l Opinn innlendur markaður þar
sem nýir innlendir leikendur,
sprotafyrirtæki, fjarskipta-
fyrirtæki eða jafnvel verslunar-
keðjur byrja að marka sér stöðu á
markaðnum.
l Opinn alþjóðlegur markaður þar
sem erlend fjártæknifyrirtæki,
tæknifyrirtæki og netverslanir
byrja að bjóða greiðsluþjónustu
hér á landi.
l Stórir alþjóðlegir bankar verða
allsráðandi á markaði hér á landi
sem erlendis.
Með tilkomu PSD2 er líklegt að
nýir leikendur á íslenska greiðslu-
markaðnum verði til að byrja með
fyrst og fremst innlendir. Íslensk
sprotafyrirtæki, fjarskiptafyrirtæki
og verslunarkeðjur munu eflaust
prófa sig áfram með nýstárlegar
PSD2 tengdar þjónustur. Mjög
fljótlega er hins vegar líklegt að
erlend stórfyrirtæki byrji einnig að
bjóða þjónustu sína á Íslandi. Til
langtíma stendur íslenskum fjár-
málafyrirtækjum mun meiri ógn af
erlendum stórfyrirtækjum á borð
við Amazon Pay, PayPal, AliPay eða
Apple Pay en nýjum innlendum
sam keppnis aðilum. Tæknirisarnir
eru sérfræðingar í að nýta gögn og
ljóst að þau munu nýta fjárhagsgögn
sem PSD2 veitir aðgengi að til að
samtvinna við gnótt annarra gagna
sem þau búa yfir til að selja aðra
þjónustu til neytenda og fyrirtækja.
Færa má þó rök fyrir því að PSD2 og
ný reglugerð um persónuvernd jafni
í raun samkeppnisstöðu fjármála-
fyrirtækja gagnvart netrisunum,
enda munu þessi fyrirtæki einnig
þurfa að opna sýnar gagnalindir
fyrir fjármálafyrirtækjunum hafi
þau aflað samþykkis viðkomandi
viðskiptavinar. Í næsta pistli verður
einmitt fjallað um PSD2, nýja reglu-
gerð um persónuvernd og aðgengi
þriðja aðila að fjárhagsgögnum.
Nýir leikendur á fjármálamarkaði
Friðrik Þór
Snorrason
forstjóri RB
PSD2 í hnotskurn
l Skilgreinir tvo nýja leikendur í
greiðsluþjónustu:
i Greiðsluvirkjendur sem
mega framkvæma greiðslur
beint af innlánareikningum
banka.
i Upplýsingaþjónustuveitend-
ur sem mega safna saman
fjárhagsupplýsingum beint
af innlánareikningum banka.
l Enginn samningur þarf að vera
til staðar á milli bankans og
þjónustuaðilans.
l Samþykki viðskiptavinarins
dugar.
l Engin viðbótargjöld má inn-
heimta af þjónustuveitandan-
um né viðskiptavini bankans.
l Bankar skulu veita aðgengið í
gegnum opin, stöðluð þjón-
ustuskil.
l Starfsréttindi í einu ríki innan
EES veita réttindi til að bjóða
þjónustu í öllum EES-löndum.
Til langtíma stendur íslenskum fjármálafyrirtækjum meiri ógn af erlendum
stórfyrirtækjum en nýjum innlendum keppinautum. FréTTablaðið/EyÞór
7M I Ð V I K U D A G U R 1 3 . s e p t e M b e R 2 0 1 7 markaðurinn
1
3
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
B
9
-9
A
8
8
1
D
B
9
-9
9
4
C
1
D
B
9
-9
8
1
0
1
D
B
9
-9
6
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
5
6
s
_
1
2
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K