Fréttablaðið - 30.09.2017, Blaðsíða 56
MATREIÐSLUMAÐUR
HÆFNISKRÖFUR
• Matreiðslumenntun og hæfni til að elda
• Reynsla af rekstri á mötuneyti er kostur
• Reynsla af stjórnun og skipulagshæfni
• Góð samskiptahæfni
HELSTU VERKEFNI
• Daglegur rekstur mötuneytis
• Verkefnastjórn og mannaforráð
• Innkaup og birgðahald
• Matseld og skipulagning
Múlakaffi óskar eftir að ráða matreiðslumann til að sjá um rekstur á mötuneyti hjá
einum af viðskiptavinum sínum á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða vinnustað
þar sem eldaðir eru um 400 matarskammtar á dag.
Áhugasamir vinsamlegast sendið umsókn með ferilskrá á gudridur@mulakaffi.is
Umsóknarfrestur er til og með 10.október nk.
MÚLAKAFFI | Hallarmúla 1 | 108 Reykjavík | 553-7737 | mulakaffi@mulakaffi.is | www.mulakaffi.is
©
2017 Ernst &
Young ehf. A
ll R
ights Reserved.
EY óskar eftir vönum bókara
Um fjölbreytt verkefni er að ræða og þarf viðkomandi að
hafa frumkvæði og getu til að starfa sjálfstætt og hafa
ríka þjónustulund. Um 100% starf er að ræða.
Hæfniskröfur
► Mikil reynsla af bókhaldsstörfum
► Góð þekking á dk bókhaldskerfi kostur en ekki
skilyrði
► Enskukunnátta og kunnátta í excel
► Nákvæm og öguð vinnubrögð
► Kostur ef umsækjandi er viðurkenndur bókari
Forsenda fyrir gæðum og faglegum vinnubrögðum er að
starfsfólki líði vel bæði á vinnustað og utan hans. Við erum
sveigjanleg og reynum að koma til móts við ólíkar þarfir
starfsmanna vegna vinnu og frítíma.
EY er alþjóðlegt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki með um
230.000 starfsmenn í 150 löndum.
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist til Hildar Pálsdóttur,
hildur.palsdottir@is.ey.com, eða í gegnum heimasíðu EY.
Umsóknarfrestur er til og með 10. október n.k.
www.ey.is
Starf sérfræðings á
meðferðar- og fóstursviði
Barnaverndarstofa auglýsir eftir sérfræðingi til starfa á
meðferðar- og fóstursviði stofunnar. Um er að ræða fullt starf
sem felur meðal annars í sér:
• Samskipti og ráðgjöf við barnaverndarnefndir, fósturfor-
eldra, meðferðaraðila á vegum Barnaverndarstofu og aðra
fagaðila vegna skipulags og framkvæmdar þjónustu við
börn í tilteknum úrræðum.
• Umfjöllun og afgreiðslu umsókna sem felur meðal annars
í sér mat á upplýsingum barnaverndarnefnda og annarra
fagaðila um umönnunar-/meðferðarþörf barna og viðeig-
andi þjónustu.
• Leiðbeiningar og gæðaeftirlit við gerð og framkvæmd
meðferðarmarkmiða og -áætlana vegna barna á fóstur- eða meðferðarheimilum, m.a. börn sem glíma við alvarlega
hegðunar- og/eða tilfinningaerfiðleika.
Menntun og reynsla:
• Krafa um meistarapróf eða sambærilegt próf af heilbrigðis-
eða félagssviði.
• Krafa um þekkingu á sviði frávika í hegðun og þroska
barna og unglinga, matsaðferðum, greiningarhugtökum og
-tækjum og fjölbreyttum aðferðum í meðferðarvinnu með
börnum og foreldrum.
• Þekking og reynsla af barnaverndarstarfi, sem og af
gagnreyndum aðferðum í þjónustu við börn og fjölskyldur
er æskileg.
Persónulegir eiginleikar:
• Mikilvægt er að búa yfir hæfni til að vinna skipulega,
markmiðatengt og lausnarmiðað.
• Lögð er áhersla á góða samstarfshæfni, sveigjanleika og
jákvætt viðhorf til skjólstæðinga og samstarfsaðila.
• Krafa um góða íslenskukunnáttu í rituðu og töluðu máli.
• Krafa um góða enskukunnáttu og æskileg kunnátta í einu
Norðurlandamáli.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Við úrvinnslu umsókna um störfin gildir mat Barnaverndar-
stofu á hæfni og eiginleikum umsækjenda. Launakjör eru
samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttar-
félags. Tekið er mið af jafnréttisáætlun Barnaverndarstofu við ráðningar á stofuna.
Umsóknarfrestur er til og með 15. október n.k.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Barnaverndarstofu í síma 530 2600 (www.bvs.is). Umsóknir skulu berast til Barnaverndarstofu, Borgartúni 21, 105 Reykjavík eða netfangið bvs@bvs.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Barnaverndarstofa
Ráðgjafi á sviði skipulagsmála
Alta leitar að góðum liðsmanni
Við leitum að áhugasömum einstaklingi
sem hefur víða sýn og metnað til að ná
frábærum árangri, auk sérþekkingar á
sviði skipulagsmála - einkum á ramma- og
deiliskipulagi.
Hæfniskröfur:
» Háskólamenntun með framhaldsgráðu á sviði
skipulags og/eða arkitektúrs
» Forvitni, áhugi og frumkvæði
» Virðing fyrir fjölbreyttum sjónarmiðum
» Geta til að setja hlutina í margvíslegt samhengi
» Áhugi á að taka að sér fjölbreytt verkefni og
kynna sér nýjungar
» Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
» Starfsreynsla á sviði skipulagsmála
» Góð ritfærni
Alta er framsækið ráðgjafarfyrirtæki.
Viðfangsefnin eru einkum á sviði
skipulagsmála, byggðaþróunar, ferðaþjónustu,
verkefnastjórnunar, stefnumótunar,
umhverfismats áætlana og framkvæmda.
Verkefnin eru fjölbreytt, þverfagleg, krefjandi
og skemmtileg. Frjótt andrúmsloft, samhent
starfsfólk og gott vinnuumhverfi gerir Alta að
eftirsóttum vinnustað.
Alta er með starfsstöðvar í Reykjavík og
Grundarfirði.
Ef þú hefur áhuga á að vera með okkur
í liði, sendu okkur umsókn á netfangið
starf@alta.is.
Umsóknarfrestur er til og með 15.
október næstkomandi. Fyrirspurnir
sendist á sama netfang.Sjá nánar um okkur á www.alta.is
6 ATVINNUAUGLÝSINGAR 3 0 . S E P T E M B E R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
3
0
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
0
F
B
1
3
6
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
1
-C
C
4
8
1
D
E
1
-C
B
0
C
1
D
E
1
-C
9
D
0
1
D
E
1
-C
8
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
3
6
s
_
2
9
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K