Fréttablaðið - 30.09.2017, Blaðsíða 134
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Lífið í
vikunni
24.09.17-
30.09.17
TEMPUR® Hybrid
Hönnuð fyrir sneggra viðbragð
TEMPUR® Contour
Hönnuð fyrir meiri stuðning
TEMPUR® Cloud
Hönnuð fyrir meiri mýkt
MicroTech frá Tempur
Fyrir þá sem kjósa
Tempur® á betra verði
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
A F S L ÁT T U R
25%
SÍÐUSTU DAGAR!
T E M P U R-D A G A R
AÐ SOFA ER EITT – AÐ HVÍLAST ER ANNAÐ
ALLT ÞAÐ NÝJASTA
FRÁ TEMPUR®
MEÐ 25% AFSLÆTTI Í BETRA BAKI Í SEPTEMBER
Nýjar gerðir
og fjölbreytt úrval
heilsukodda
NÝ VEFVERSLUN
www.betrabak.is
OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN
Það er ekkert drama – allt gert í góðu og ekkert vesen,“ segir Friðgeir Ingi Eiríksson, sem hefur ákveðið að framlengja ekki leigu-
samning við eigendur Hótels Holts
og mun opna nýjan veitingastað
á næsta ári. Friðgeir hefur starfað
í húsinu í rúm tuttugu ár, eða frá
árinu 1997 með stuttu hléi en hann
hóf störf sem matreiðslunemi. Hann
var yfirmatreiðslumaður á Michelin
veitingastaðnum Domaine de Clair-
fontaine í fimm ár við hlið Philippe
Girardon, sem var matreiðslumaður
Frakklands árið 1997.
Hann gekk inn í rekstur Gallery
Restaurant með föður sínum, Eiríki
Inga, og umbylti eldhúsinu þar sem
sérhönnuð eldavél frá Frakklandi
var miðpunkturinn. Flestir starfs-
menn munu fylgja honum á nýja
staðinn en mikill stöðugleiki hefur
einkennt eldhús Gallery Restaurant
frá opnun og hverfur um eitt hundr-
að ára starfsreynsla með.
„Ég er búinn að ganga með þessa
hugmynd í maganum í smá tíma.
Það eru nokkuð mörg ár síðan við
fórum að horfa í kringum okkur eftir
öðruvísi verkefni og þetta var ein-
hvern veginn rétti tímapunkturinn.“
Hann segir að nýi staðurinn muni
verða öðruvísi en það sem hefur
verið í boði á Holtinu. „Þetta verður
meira alþjóðlegt. Við erum svolítið
undir ítölskum áhrifum þessa dag-
ana til dæmis.“
Ekki er komin staðsetning á nýja
staðinn, leit að rétta húsinu stendur
yfir og segir Friðgeir að hann geti
vart beðið eftir að hefjast handa.
„Þetta er mjög spennandi. Ég er eig-
inlega alveg að deyja úr spenningi.
Þetta er eins og þegar maður var að
læra og fékk fyrsta alvöru hnífinn í
hendurnar. Það var einstök tilfinn-
ing og þetta verður það líka.“
benediktboas@365.is
Kokkurinn Friðgeir
fer frá Hótel Holti
Stjörnukokkurinn Friðgeir Ingi Eiríksson hefur ákveðið að fram-
lengja ekki leigusamning við eigendur Hótel Holts. Hann mun opna
sinn eigin veitingastað á næsta ári – Brasserie Eiriksson.
Friðgeir Eiríksson, matreiðslumeistari á Hótel Holti, hefur ákveðið að láta gamlan draum rætast. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FeriLL Friðgeirs
l Friðgeir hefur starfað í húsi
Hótels Holts frá árinu 1997.
l Fór fyrir Íslands hönd í mat-
reiðslukeppnina Bocuse d´Or og
hafnaði í áttunda sæti.
l Var yfirkokkur á Domaine de
Clairfontaine.
l Stefnir á að opna eigin stað á
næsta ári.
LandsLiðsmaður
druKKinn undir stýri
Lífið í Fréttablaðinu sagði
frá því að Stefán Rafn Sig-
urmannsson, atvinnu-
maður í handbolta og
landsliðsmaður, var
tekinn ölvaður undir
stýri af lögreglunni á
Suðurlandi þann 16. júlí
síðastliðinn og mældist
vínandamagn í blóði hans 1,5
prómill. Samkvæmt sektarreikni
Samgöngustofu er sektin fyrir að
aka með 1,5 prómill af vínanda
í blóðinu 160 þúsund krónur og
svipting ökuleyfis í tvö ár.
„erFiðir viðsKipta-
vinir“ dominos
Nýverið kom
upp umræða á
Facebook um að
starfsfólk Dom-
ino’s héldi úti
lista yfir „erfiða
viðskiptavini“.
Magnús Hafliðason, aðstoðarfor-
stjóri Domino’s, sagði í samtali við
Fréttablaðið að fyrirtækið héldi
úti kerfi þar sem fram kæmu m.a.
upplýsingar um viðskiptasögu.
„Það gerist vissulega að upp koma
tilvik þar sem við treystum okkur
ekki til að afgreiða ákveðna aðila.“
BuBBi FíLar B.o.B.a.
„Lagið er flott,“ segir
Bubbi spurður út
í hvernig honum
lítist á lagið
B.O.B.A. með
röppurunum
JóaPé og Króla en
það er eitt vinsælasta
lag á Íslandi um þessar mundir.
Lagið byggir á frægum mismælum
Bubba en hann ætlaði að stafa
orðið „bomba“ en mistókst. „Þetta
var í beinni box-lýsingu, ég var
búinn að tapa mér í æsingi og henti
m-inu út um gluggann. Þannig varð
bobafrasinn til,“ sagði Bubbi.
pLayBoysetrið ótrú-
Leg HöLL
Í vikunni bárust fréttir af því að
Hugh Hefner, ritstjóri Playboy,
sé látinn. Lífið tók af því tilefni
athafnamanninn Stefán Atla
Rúnarsson tali en hann heimsótti
Playboysetrið árið 2015. „Þetta
var risastórt hús, nánast eins og
eitthvað úr Disneylandi.“
Ég er eiginLega
aLveg að deyja úr
spenningi. Þetta er eins og
Þegar maður var að Læra og
FÉKK Fyrsta aLvöru HníFinn
í Hendurnar.
3 0 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r70 L í f i ð ∙ f r É t t A b L A ð i ð
3
0
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:1
9
F
B
1
3
6
s
_
P
1
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
E
1
-6
E
7
8
1
D
E
1
-6
D
3
C
1
D
E
1
-6
C
0
0
1
D
E
1
-6
A
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
3
6
s
_
2
9
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K