Fréttablaðið - 30.09.2017, Blaðsíða 30
Tveir hundar og hús-freyjan Hraundís taka á móti okkur Erni ljós-myndara á hlaðinu á Rauðsgili í Reykholts-dal. Bærinn stendur
nánast á brún hins mikilfenglega
Rauðsgils sem við byrjum á að líta
yfir undir leiðsögn Hraundísar.
Á leiðinni verða marglitar hænur
á vegi okkar, þær skjótast undir
runna en eiga heima í sætum kofa
undir kletti. Í gilinu er hvammur
með nokkrum ávaxtatrjám og þar er
líka bergvatnsá sem Hraundís segir
mikið búið að sullast í. „Manninum
mínum sem ólst upp hér á bænum
var stranglega bannað að leika sér í
gilinu. En ég fór þá leið að leika mér
þar sjálf með krökkunum okkar og
þannig lærðu þau á það.“
Hraundís átti heima á Selfossi til
átta ára aldurs, þá flutti hún með
fjölskyldunni í Grundarfjörð en
á Rauðsgili hefur hún búið í 20 ár
með manni sínum, Birni Oddssyni
sem er vélvirki í álverinu á Grundar-
tanga. Þau eiga fjögur börn samtals
og tvö barnabörn. Þrjú elstu börnin
eru í borginni við nám og störf en
það yngsta á Akranesi í Fjölbrauta-
skóla Vesturlands. Það er dóttirin
Hekla. Sem leiðir hugann að nafn-
inu Hraundís sem er sjaldgæft. „Ég
bar það ein í 36 ár en nú erum við
orðnar þrjár,“ segir húsfreyjan
brosandi.
Í bakgarðinum er heilsað upp
á býflugurnar. „Við byrjuðum að
framleiða hunang árið 2010, þá
vorum við tólf í því á Íslandi, nú
erum við yfir hundrað,“ upplýsir
Hraundís. Flugurnar eru á fullu að
búa sig undir veturinn, ná sér í efni
úr trjáberki til að loka öllum glufum
á búunum. Nokkrar humlur eru á
sveimi og freista inngöngu en er
hent út um leið. „Það eru varnarflug-
ur innan við, tilbúnar að verja búin
ef einhver kemur óboðinn,“ bendir
Hraundís á og segir humlurnar eiga
sér bú til að liggja í dvala í í vetur.
Allt í einu birtist stór og loðin
kisa, svört og hvít, önnur tveggja á
heimilinu, að sögn húsfreyjunnar.
„Við erum líka stundum með tvö
svín á sumrin í túninu, það er mun
betri matur af frjálsum svínum en
hinum og þau eru líka einstaklega
skemmtilegar skepnur,“ segir hún.
Þau hjón hafa alltaf stundað
vinnu utan heimilis, að sögn Hraun-
dísar, þó áttu þau fáeinar kindur til
að byrja með og byrjuðu í skógrækt
2001. „Við erum að gróðursetja í 135
hektara land og erum langt komin
með það. Það fara 19.000 plöntur
niður þetta árið.“
Þá er komið að sérstökustu
búgreininni á bænum – ilmkjarna-
olíugerð. Hraundís fór alla leið til
Arizona árið 2015 til að læra hana.
„Ég var með eigin nuddstofu hér í
dalnum í mörg ár og blandaði þá
ilmkjarnaolíum í nuddolíur. Þar
kviknaði hugmyndin að því að
framleiða þær sjálf. Mig langaði að
læra um jurtirnar og að nýta jörðina
mína. En ég felli ekki trén til að ná
úr þeim olíunni, bara kvista þau og
laga til í skóginum í leiðinni.“
Í gamla mjólkurhúsinu á bænum
er Hraundís með 420 lítra pott sem
hún eimar jurtirnar í. „Eimingin
gerist með gufu sem leidd er í pott-
inn og leysir olíuna úr plöntunum,
hún flýtur ofan á og endar í litlum
skiljara utan á pottinum. Þar tappa
ég vatni undan þeim,“ lýsir hún.
Segir barrtrén gjöfulust af olíu enda
eimi hún átta tegundir. „Það er
Lifir á því sem
landið gefur
Hraundís Guðmundsdóttir, bóndi á Rauðsgili í Borgarfirði, stundar
ekki hefðbundinn búskap og er heldur ekki týpísk hannyrðakona
þó hún beri titilinn handverkskona ársins með sæmd. Hún er skóg-
fræðingur og býflugnabóndi og býr til ilmkjarnaolíur úr eigin trjám.
Hraundís við Rauðsgilið sem varð Jóni Helgasyni skáldi og prófessor í Kaupmannahöfn að yrkisefni, enda átti hann sín
bernskuspor á staðnum. Stíginn niður í gilið hefur Hraundís klætt brúnum barrgreinum sem falla til eftir eiminguna.
FRéttablaðið/ERniR
Eimingarpotturinn gegnir lykilhlutverki við að ná olíunum úr jurtunum.
Horn í gamla mjólkurhúsinu þar sem húsfreyjan er með olíuframleiðsluna.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
3 0 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r30 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
3
0
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
0
F
B
1
3
6
s
_
P
1
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
1
-B
8
8
8
1
D
E
1
-B
7
4
C
1
D
E
1
-B
6
1
0
1
D
E
1
-B
4
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
3
6
s
_
2
9
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K