Fréttablaðið - 30.09.2017, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 30.09.2017, Blaðsíða 12
Styrkir úr Lýðheilsusjóði 2018 Lýðheilsusjóður óskar eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum til heilsueflingar og forvarna á sviði geðræktar, næringar, hreyfingar og tannverndar auk áfengis-, vímu- og tóbaksvarna. Áhersla er lögð á eftirfarandi: • Aðgerðir sem miða að því að efla geðheilsu. • Árangursríkar áfengis, vímu- og tóbaksvarnir. • Árangursríkar forvarnir sem tengjast kynheilbrigði. • Aðgerðir sem miða að heilbrigðu mataræði svefni og hreyfingu. • Verkefni sem beinast að minnihlutahópum til að stuðla að jöfnuði til heilsu. • Verkefni sem tengjast nýsköpun á sviði forvarna og heilsueflingar. Við úthlutun verður tekið mið af lýðheilsustefnu velferðarráðuneytisins, sbr. skjalið Lýðheilsustefna og aðgerðir sem stuðla að heilsueflandi samfélagi – með sérstakri áherslu á börn og ungmenni að 18 ára aldri. (Útg. 2016) Verkefni sem uppfylla eftirtalin skilyrði hafa forgang: - Verkefni sem unnin eru í víðtæku samstarfi hagsmunaaðila í samfélaginu. - Verkefni með eigin fjármögnun og/eða aðra fjármögnun. Verkefnin eiga að byggja á faglegum grunni og hafa raunhæf og skýr markmið. Gera þarf grein fyrir því hvernig árangur verkefnis verður metinn og skal skila framvinduskýrslu að verkefni loknu. Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember 2017 og skal sótt um á vefsvæði Lýðheilsusjóðs, http://lydheilsusjodur.sidan.is/pages/. Nánari upplýsingar í síma 510 1900 eða á vef Embættis landlæknis. Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum vefsvæði sjóðsins. Embætti landlæknis - Barónsstíg 47 - 101 Reykjavík - Sími 5101900 - lydheilsusjodur@landlaeknir.is - www.landlaeknir.is MjanMar Talið er að um sextíu flóttamenn af þjóðflokki Rohingja hafi farist þegar báti þeirra hvolfdi við strönd Bangladess. Rohingjarnir voru að reyna að flýja til Bangla- dess frá Mjanmar en samkvæmt Sameinuðu þjóðunum gerir ríkis- stjórn Mjanmar um þessar mundir þjóðernishreinsanir á Rohingjum, sem eru múslimar, í Rakhine-héraði ríkisins. Sameinuðu þjóðirnar greindu frá slysinu í gær og sagði talsmaður þeirra að staðfest væri að 23 hefðu farist. Fjörutíu væri enn saknað og þeir því taldir af. Tugir til viðbótar hafa dáið undan- farnar vikur á leiðinni til Bangladess en nærri hálf milljón Rohingja hefur flúið til ríkisins frá því átök brutust út í Rakhine-héraði þann 25. ágúst síðastliðinn. Gerðu skæruliðar úr röðum Rohingja þá árás á herstöð og svöruðu jafnt almennir borgarar, sem flestir eru búddistar, og hermenn árásinni með því að brenna bæi Rohingja og taka þá af lífi án dóms og laga, að því er mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur haldið fram. Rohingjar hafa lengi sætt mis- munun í Mjanmar. Er þeim neitað um ríkisborgararétt og þeir álitnir ólöglegir innflytjendur, burtséð frá því hvort þeir hafi fæðst í Mjanmar eða ekki. Joel Millman, talsmaður Alþjóða- flóttamannastofnunarinnar, sagði í samtali við BBC í gær að um áttatíu hefðu verið í bátnum. „Þeir sem lifðu slysið af segjast hafa verið í sjónum í alla nótt, án matar og drykkjar,“ sagði Millman og bætti því við að nokkur börn hefðu verið á meðal hinna látnu. Í samtali við Reuters sagði Abdul Kalam, einn flóttamannanna að eig- inkona hans, tvö börn og eitt barna- barn hefðu drukknað. Þau hefðu ákveðið að flýja frá Rakhine-héraði eftir að vopnaðir búddistar stálu búfé þeirra og matarbirgðum. Greint var frá því í gær að ríkis- stjórn Mjanmar hefði frestað heimsókn diplómata Sameinuðu þjóðanna til ríkisins um viku. Skýr- ingin var sú að slæmt veður byði ekki upp á annað. Ríkisstjórn Mjanmar hefur alfar- ið hafnað öllum ásökunum um að standa að þjóðernishreinsunum en alþjóðasamfélagið er á öðru máli. Nikki Haley, sendiherra Banda- ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, kallaði eftir því á fimmtudag að ríki heimsins ættu að hætta allri vopna- sölu til Mjanmar þar til ríkisstjórnin tekur ábyrgð á gjörðum sínum. „Það ætti að koma þeim frá völdum sem hafa verið sakaðir um þessi brot og sækja þau til saka,“ sagði Haley. Antonio Guterres, framkvæmda- stjóri SÞ, tjáði sig um ástandið á alls- herjarþinginu fyrr í mánuðinum. Sagði hann að ofbeldið í Mjanmar væri orðið að algjörri martröð og kallaði eftir bættu aðgengi hjálpar- og mannúðarsamtaka að svæðinu en eins og er er það aðgengi verulega takmarkað. thorgnyr@frettabladid.is Tugir Rohingja hafa drukknað á flótta Að minnsta kosti 23 fórust og fjörutíu er saknað eftir að báti flóttafólks af þjóðflokki Rohingja hvolfdi við strandir Bangladess. Nærri hálf milljón Rohingja hefur flúið ofsóknir í Rakhine-héraði Mjanmar og tugir hafa farist á leiðinni til Bangladess undanfarið. Sorgin heltók þennan Rohingja-múslima þegar hann sat yfir líki ungrar dóttur sinnar sem hafði drukknað á leiðinni frá Mjanmar til Bangladess, en nokkur börn voru á meðal þeirra sem létust þegar bátnum hvolfdi. NoRdicphotoS/AFp Spánn Nærri öruggt þykir að meiri- hluti kjósenda muni greiða atkvæði með því að lýsa yfir sjálfstæði þegar Katalónar ganga til kosninga á morgun. Er það vegna þess að flokkar sem andvígir eru sjálfstæði, og hafa um fjörutíu prósent þingsæta, hafa hvatt stuðningsmenn sína til að sniðganga kosningarnar. Lítið er um skoðanakannanir í málinu en sú nýjasta sem Frétta- blaðið fann birtist á katalónsku fréttasíðunni Ara þann 16. septem- ber síðastliðinn. Sögðust 44,1 pró- sent vilja sjálfstæði en 38,1 prósent ekki. Spánverjar hafa ítrekað lýst því yfir að kosningar morgundagsins séu ólöglegar og verða niðurstöður kosninganna því ekki virtar. Jafnframt hafa Spánverjar sent þúsundir lögreglumanna til Kata- lóníu og hefur lögreglu verið skipað að gera öll kjörgögn upptæk. Katalónar halda hins vegar ótrauðir áfram og reyna sjálfstæðis- sinnar að verja kosningarnar. Til að mynda keyrði dráttarvéla- lest inn í höfuðborgina Barcelona í gær og veifuðu bændurnir sem óku vélunum kjörseðlum og fána Kata- lóníu til þess að hvetja fólk til þess að mæta á kjörstað. Bændurnir ætla sér að leggja drátt- arvélum sínum fyrir utan kjörstaði víðs vegar um borgina á morgun. Hyggjast þeir gera það í þeim tilgangi að hindra aðgerðir lögreglu svo hún geti ekki gert kjörgögn upptæk. Í ljósi sniðgöngu sambandssinna og aðgerða lögreglu má búast við því að kjörsókn verði dræm en, eins og áður segir, stórsigri sjálfstæðissinna. Samkvæmt katalónskum lögum er yfirvöldum héraðsins heimilt að lýsa yfir sjálfstæði allt að 48 klukku- stundum eftir að niðurstöður kosn- inganna koma í ljós. Carles Puidgemont, forseti Kata- lóníu, sagði við BBC að ekki væri úti- lokað að sjálfstæði yrði ekki lýst yfir. „Ef til vill reynum við að setjast niður með spænsku ríkisstjórninni.“ – þea Meirihluti kýs sjálfstæði dráttarvélalest ók inn í Barcelona til þess að hvetja borgara til þess að kjósa. NoRdicphotoS/AFp 23 fórust þegar báti Rohingja á flótta hvolfdi við strendur Bangladess. Vegna fréttar sem birtist í Fréttablaðinu á bls. 8 þann 29. september undir fyrirsögninni „RÚV-sátt dýrari en allir meiðyrðadómar“ skal það tekið fram að fyrirsögnin vísaði til meiðyrðamála síðustu fimm ára, en ekki frá upphafi. árétting 3 0 . S e p t e M b e r 2 0 1 7 L a U g a r D a g U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð 3 0 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :2 0 F B 1 3 6 s _ P 1 2 8 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 1 2 5 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D E 1 -A 9 B 8 1 D E 1 -A 8 7 C 1 D E 1 -A 7 4 0 1 D E 1 -A 6 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 A F B 1 3 6 s _ 2 9 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.