Fréttablaðið - 30.09.2017, Blaðsíða 31
Olíurnar hennar
Hraundísar
Olíurnar sem Hraundís fram-
leiðir hafa mismunandi eiginleika
eftir tegundum. Hér er minnst á
nokkra þeirra.
Stafafura: Sveppa- og bakteríu-
drepandi.
Lindifura: Góð við lungna-
vanda.
Bergfura: Gegn kvefi.
Sitkagreni: Gegn bólgum og
verkjum.
Svartgreni: Örvar sogæðakerfið.
Fjallaþinur: Við sveppasýkingum.
Hvítþinur: Upplífgandi.
Síberíu- og Balsamþinur:
Örva einbeitingu.
Einir: Góður við gigt.
Hvannafræ: Gegn meltingar-
vanda.
Olíurnar má líka nota til þrifa
á þvottavél, uppþvottavél og
þurrkara og að sjálfsögðu sem
híbýlailm.
Á vefsíðunni hraundis.is. eru
frekari upplýsingar um fram-
leiðsluna og hvar hún fæst.
Hraundís vígir nýju sögina, þvílíka græju. Býflugurnar skapa verðmæti á Rauðsgili.
mismunandi eftir plöntum, veðri og
vindum hversu mikil olía er í þeim,
jurtir eru dyntóttar eins og veðrið.
Ég eimaði til dæmis stútfullan pott
af vallhumli um daginn og fékk bara
ellefu millilítra af olíu. Birkið gefur
líka voða lítið, því miður, en það er
æðisleg olía. Ég yrði bara að selja
hana svo dýrt af því ég fæ svo lítið.
Ilmurinn af olíunum er ólíkur eftir
tegundum og líka virknin.“
Næst er það skógarferð í jeppan-
um. Hundarnir eru fyrstir upp í bíl-
inn. „Passið ykkur á gaddavírnum,
ég er búin að skemma marga flík á
honum,“ segir Hraundís aðvarandi
þegar við komum á staðinn. Hún
er sjálf nýbúin að fjárfesta í nettri
keðjusög og buxum sem hún segir
ekki hægt að saga í gegnum. „Þær
voru heldur ekki ódýrar,“ tekur
hún fram, kankvís. Hlíðin er alsett
trjágróðri á mismunandi skeiði.
Við erum í lundi frá 2006 og Hraun-
dís vígir þar nýju sögina, alsæl, því
hingað til hefur hún látið litla hand-
sög duga.
Á leið heim á hlað aftur forvitnast
ég um vinnu hennar á Hvanneyri,
þaðan var hún nýkomin þegar við
mættum. „Ég er í hálfu starfi sem
skógræktarráðgjafi og það var eins
gott að þið komuð ekki á morgun
því þá hefði ég verið farin í Dalina.
Þar er mikil skógrækt og ég er oft
þar á þessum árstíma.“ Sem sagt allt-
af sívinnandi? „Ég þarf að minnsta
kosti ekki að láta mér leiðast,“ segir
hún brosandi. „En reyni samt að
taka því rólega í svartasta skamm-
deginu. Á þeim tíma á maður heldur
ekki að kvista tré.“
h e l g i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð 31l A U g A R D A g U R 3 0 . s e p T e m B e R 2 0 1 7
3
0
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
0
F
B
1
3
6
s
_
P
1
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
E
1
-B
8
8
8
1
D
E
1
-B
7
4
C
1
D
E
1
-B
6
1
0
1
D
E
1
-B
4
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
3
6
s
_
2
9
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K