Fréttablaðið - 30.09.2017, Blaðsíða 100
Sörur eru með sparilegri jóla-
smákökum og falla flestum í geð.
Hvernig væri að gera vinnufélögum
dagamun á aðventunni og bjóða
upp á Sörur með smá tvisti? Þessar
eru af uppskriftasíðunni eldhus.is.
Daim-Sörur
Botn:
2 stk. eggjahvítur
2 dl sykur
¼ tsk. lyftiduft
50 g fínkurlað Daim
Krem:
2 stk. eggjarauður
2 msk. síróp
100 g lint smjör
30 g fínkurlað Daim
½ msk. kakó
Hjúpur:
200 g rjómasúkkulaði
Aðferð
Botn:
Eggjahvítur stífþeyttar. Sykur settur
út í og hrært vel. Daim og lyftiduft
hrært varlega saman við með sleif.
Sett á bökunarpappír á plötu með
teskeið. Bakað við 160°C í 8-10
mínútur.
Krem:
Eggjarauður og síróp hrært vel
saman. Smjörið er linað og hrært
saman við og að lokum Daim og
kakó. Sett á hverja köku og sett í
frysti (eða bara í kæli).
Hjúpur:
Brætt í vatnsbaði og kökurnar hjúp-
aðar og geymdar í frysti.
Bræddu hjörtu
Sælla er að gefa en að þiggja, segir
máltækið, og er mikið til í því. Þó
er hrein sæla að taka upp persónu-
lega og handskrifaða kveðju frá
vinnuveitanda sínum á aðfanga-
dagskvöld. Ekki er saman að jafna
áprentaðri og fjöldaframleiddri
jólakveðju frá forstjóranum og
hlýlegum og vel ígrunduðum
orðum hans til starfsmanna sinna
við þau kærleiksríku tímamót sem
jólin eru. Hver og einn starfsmaður
hefur sitt einstaka framlag fram að
færa til fyrirtækisins og verðskuld-
ar persónulegar þakkir, vinahót og
kveðjur frá vinnuveitanda sínum
um jólin. Það tekur auðvitað lengri
tíma að handskrifa persónu-
legar jólakveðjur, en þeim tíma er
sannarlega vel varið, og jólakortið
hittir starfsmanninn í hjartastað.
Báðir aðilar, sem og fyrirtækið,
munu hagnast á kærleika jólanna í
orði og verki.
Sælasta jólakveðjan
Ýmsum einföldum ráðum má beita
til að fríska upp á stemninguna í
vinnunni.
l Góður matur gerir kraftaverk fyrir
lundina. Sameiginlegur morgun-
matur á vinnustaðnum einu sinni
í mánuði eða oftar getur verið
kærkomið tækifæri samstarfs-
félaga til að hittast og rabba
saman í afslöppuðu umhverfi
áður en annir dagsins hefjast.
l Óvænt frí. Allir hafa þörf fyrir
fleiri klukkutíma í sólarhringn-
um. Skilaboð um að starfsfólk
megi mæta klukkutíma eða
tveimur seinna einhvern tiltekinn
mánudagsmorgun, eða fara fyrr
einhvern föstudaginn ætti að
gleðja flesta.
l Jóga og teygjur. Í kyrrsetuvinnu
getur þreyta í baki og öxlum haft
slæm áhrif á stemninguna og leitt
til fleiri veikindadaga. Með því að
smala hópnum saman í reglu-
legar hópæfingar, jóga eða teygjur
í nokkrar mínútur á dag má bæta
líðan.
l Tilbreyting. Vélræna daga í
vinnunni gæti verið gott að
brjóta upp. Til dæmis með því
að fá danskennara í klukkustund
einn mánuðinn til að hrista
upp í hópnum. Þá mætti halda
venjubundinn fund utan vinnu-
staðarins, til dæmis á kaffihúsi,
veitingastað eða í almennings-
garði ef veðrið er gott.
Fjör í vinnunni
Reykjavík
Bíldshöfði 20
Akureyri
Dalsbraut 1
www.husgagnahollin.is
558 1100
10 – 18 virka daga
11 – 17 laugardaga
13 – 17 sunnudaga
10 – 18 virka daga
11 – 16 laugardaga
Ísafjörður
Skeiði 1
Vandaðar gjafir sem gleðja góða starfsmenn
Við hjá Húsgagnahöllinni hjálpum þér að finna
réttu gjöfina fyrir starfsmanninn þinn. Við erum með mikið úrval af
fallegum og vönduðum vörum frá þekktustu hönnuðum heims.
Kíktu á úrvalið á husgagnahollin.is
eða komdu og fáðu ráðgjöf hjá starfsfólki okkar.
20 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . S e p t e m B e R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U RfYRIRtæKjAGjAfIR
3
0
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
0
F
B
1
3
6
s
_
P
1
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
E
1
-7
D
4
8
1
D
E
1
-7
C
0
C
1
D
E
1
-7
A
D
0
1
D
E
1
-7
9
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
3
6
s
_
2
9
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K