Fréttablaðið - 30.09.2017, Blaðsíða 120
E lstu verkin á sýningunni eru beinskeytt þjóð-félagsstúdía á þeim hefðum og venjum sem við höfðum samþykkt að fara eftir. Ákveðið
viðbragð við samfélagslegu áreiti.
Ég hafði fundið mína leið til að tjá
mig,“ segir Anna Líndal, mynd-
listarmaður og kvenréttindakona,
stödd á Kjarvalsstöðum þar sem
hún opnar yfirlitssýningu í dag.
Heimilisfriður heitir eitt af verk-
unum og um það segir hún þessa
sögu: „Þegar ég dvaldi í vinnustofu
í Bergen í Noregi sá ég litla serví-
ettu með handsaumuðum fuglum
og korni og setningunni „Molar
eru líka brauð“ – á norsku. Mér
fannst það mögnuð tilhugsun að
konur væru að sauma út í frítíma
sínum að þær ættu að sætta sig við
mylsnuna í þjóðfélaginu. Ég upp-
lifði það þannig. Upp frá því varð
þessi hringur til. Hann er dæmi-
gerður fyrir margt sem kemur til
mín út frá undrun. Þannig má segja
að undrunin leiði mig áfram.“
Marglit tvinnakefli vekja athygli
í öðrum enda salarins. „Ég hélt
sýningu 1996 sem hét Kortlagn-
ing hversdagslífsins. Þar fjallaði
ég mikið um stöðu konunnar og
tvinnakeflaverkið er í raun lof-
söngur til framlags kvenna í sam-
félaginu, öll þau ósýnilegu störf
sem þær hafa innt af hendi.“
Í nýrri verkunum er Anna enn
að kortleggja. Nú er það landið.
Með Jöklarannsóknafélaginu
kveðst hún hafa farið tuttugu og
tvo leiðangra upp í Grímsvötn frá
árinu 1986 og skráð niðurstöður
rannsóknanna með sínum hætti.
Meðal annars hefur hún gert sín
eigin landakort af svæðinu þar sem
hæðarlínurnar eru handsaumaðar
með kontórsting og allt sem mælt
var með vélknúnu farartæki er
markað með sikksakkspori sauma-
vélar.
Form skúlptúrs á gólfinu vísar
til vatns og lands sem myndaðist í
Grímsvatnagígnum í gosi 2004 og
vídeóverk styður við hann. Sömu-
leiðis fá karlmennirnir sinn óð í
vídeó verki. „Ég dáist að hæfileikum
karla til að geta gert við hvaða tæki
sem er og fengið allt til að virka,“
segir hún brosandi.
Í hillum úti á gólfi er Samhengis-
safnið. Í því eru ýmsir sjaldgæfir
hlutir sem tengjast ferðum Önnu
um veröldina, þurrkaðar jurtir,
skuggamyndir í poka og fleira for-
vitnilegt. Safn sem varðveitir ótal
sýnishorn úr ýmsum heimshornum
og eru vitnisburður um túlkun
hennar á umhverfinu.
Ég dáist að hæfi-
leikum karla til að
geta gert við hvaða tæki
sem er og fengið allt til að
virka.
Undrunin leiðir mig áfram
anna líndal myndlistarkona kortleggur margt í samfélagi
okkar af mikilli list eins og sjá má í vestursal kjarvalsstaða
þar sem yfirlitssýning á verkum hennar verður opnuð í dag.
TónlisT
HHHHH
Hafdís Vigfúsdóttir og svanur
Vilbergsson fluttu verk eftir Ravel,
Debussy, ibert og Poulenc.
Salurinn í Kópavogi
miðvikudagur 27. september
Þeir sem vilja fá eitthvað andlegt
með ostborgaranum í hádeginu
ættu að kíkja við í menningarhúsin
í Kópavoginum á miðvikudögum.
Þar er ýmislegt á seyði. Ljósmynda-
spjall í Héraðsskjalasafninu, bóka-
upplestur í Bókasafninu, leiðangur
um myndlistarsýningu í Gerðarsafni,
tónleikar í Salnum og margt fleira. Á
miðvikudaginn lagði ég leið mína í
síðastnefnda húsið og hlýddi á Haf-
dísi Vigfúsdóttur flautuleikara og
Svan Vilbergsson gítarleikara. Tón-
listin sem þau báru á borð var svo
sannarlega fögur.
Fyrst á dagskránni var Pavane fyrir
látna prinsessu eftir Ravel, í útsetn-
ingu Konrad Ragossnig. Eins og
óteljandi tónverk á borð við menú-
ett, gavotte, saraböndu og passa-
kalíu þá er pavane gamall dans, mjög
hægur. Þetta er þó engin danstónlist
og hún er ekki heldur helguð neinni
sérstakri prinsessu. Stemningin er
samt tregafull og vissulega væri hægt
að dilla sér við hana ef slíkt væri í
boði. Hafdís var þó langt frá því að
stíga dansspor á sviðinu, hún virtist
satt best að segja ekki vera komin í
gang þarna í upphafi. Hljómurinn í
flautunni var loðinn, túlkunin mátt-
laus og ekki sérlega sannfærandi.
Svanur fylgdi hins vegar ásættan-
lega, en heildarútkoman var engu
að síður flöt.
Miklu betri voru Mouvements per-
petuels eftir Poulenc. Hraðar flautu-
tónarunur voru jafnar og flæðandi,
fullkomlega áreynslulausar. Gítar-
leikurinn var líka léttur og leikandi,
gæddur fjölbreyttum litbrigðum.
Nokkuð síðri var prelúdían Stúlk-
an með hörgula hárið eftir Debussy,
hér í útsetningu Stefan Nesbya. Rétt
eins og Pavane eftir Ravel er þetta
upphaflega píanótónsmíð, þrungin
nostalgíu og náttúrustemningu. Haf-
dís mótaði laglínurnar ekki af nægi-
legri innlifun, það vantaði ljóðrænu
í túlkunina, eins og flautuleikarinn
hefði ekkert að segja með tónlistinni.
Hvar var sálin í verkinu? Gítarhljóm-
ar Svans voru engu að síður fallegir,
en það dugði ekki til.
Kraftmeiri tónlist fór Hafdísi
greinilega betur, því Entr’acte eftir
Ibert var glæsileg. Flautuleikurinn
var fullur af tilfinningu og tilkomu-
miklum hápunktum. Sömu sögu er
að segja um stórbrotinn gítarleikinn,
sem var auk þess skreyttur alls konar
blæbrigðum. Þetta var flott.
Lokalagið var líka ágætt, annar
dans eftir Ravel, að þessu sinni Hab-
anera. Túlkunin var skemmtilega
lokkandi, litrík og spennandi, stefin
seiðandi, hljómarnir fagurlega mót-
aðir. Þau Hafdís og Svanur eru auð-
heyrilega fínir tónlistarmenn, en þau
hefðu mátt liggja meira yfir rólegri
þáttum dagskrárinnar.
Jónas Sen
niðuRsTaða: Oftast ágætur
flutningur á fallegri tónlist.
Falleg tónlist í hádeginu
Þau Hafdís og Svanur eru auðheyri-
lega fínir tónlistarmenn, segir í
dómnum. Fréttablaðið/VilHelm
Önnu líndal verður margt að yrkisefni í myndlistinni. Hún segir flest verka
sinna vera viðbragð við einhverju að utan. Fréttablaðið/ernir
Heimilisfriður nefnist verkið á gólfinu. Í litlu dúkana hefur anna saumað út
myndir og setningar. ein setninganna er: molar eru líka brauð. Á veggnum á
bakvið er tvinnakeflaverk sem anna segir lofsöng til framlags kvenna í sam-
félagið, allra þeirra ósýnilegu starfa sem þær hafa innt af hendi.
tilbrigði kallar anna þetta verk. Þar koma þræðir við sögu.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
3 0 . s e P T e m b e R 2 0 1 7 l a u G a R D a G u R56 m e n n i n G ∙ F R É T T a b l a ð i ð
menning
3
0
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
0
F
B
1
3
6
s
_
P
1
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
E
1
-7
3
6
8
1
D
E
1
-7
2
2
C
1
D
E
1
-7
0
F
0
1
D
E
1
-6
F
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
3
6
s
_
2
9
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K