Fréttablaðið - 30.09.2017, Blaðsíða 18
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili
á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105
reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Gunnar
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Eins og
knattspyrnu-
þjálfarinn
Alex Fergu-
son sagði
einhvern
tíma um allt
annan mann,
þá virðist
Sigmundur
geta efnt til
slagsmála í
tómu húsi.
Nýjustu skoðanakannanir benda til þess að nýr Miðflokkur Sigmundar Davíðs Gunnlaugs-sonar sé nú þegar orðinn stærri en Fram-sóknarflokkurinn. Hvað sem segja má um Sigmund verður ekki af honum tekið að hann
vekur athygli hvað sem hann gerir. Enginn stjórnmálamaður
hefur í seinni tíð, sennilega frá tímum Davíðs Oddssonar,
haft sama lag á að gefa tóninn í umræðunni.
Því verður þó ekki haldið fram að Sigmundur Davíð sé
fullkominn stjórnmálamaður.
Þvert á móti – hann er bæði þrasgjarn og hörundsár.
Vilji hans til að kljúfa Framsóknarflokkinn sýnir jafnframt
karaktereinkenni einleikarans. Framsóknarflokkurinn, sem
Sigmundur hefur sagt að sé sér svo kær, er í hans huga ekki
stærri en persóna Sigmundar Davíðs. Eins og knattspyrnu-
þjálfarinn Alex Ferguson sagði einhvern tíma um allt annan
mann, þá virðist Sigmundur geta efnt til slagsmála í tómu
húsi.
Það sem Sigmundur hefur hins vegar, og er sennilega
ástæða þess persónufylgis sem hann þó nýtur, er pólitísk sýn.
Hann setur fram stórar hugmyndir, færir fyrir þeim
rök og beitir sér fyrir því að þær komist til framkvæmda.
Nægir að nefna skuldaleiðréttingu heimilanna, sem margir
töldu ómögulegt að framkvæma, harða afstöðu gagnvart
kröfuhöfum bankanna og afnám gjaldeyrishafta. Allt flókin
pólitísk viðfangsefni þar sem Sigmundur setti fram hugmynd
og sá til þess að hún kæmist til framkvæmda – hvað sem fólki
svo fannst um niðurstöðuna.
Að því leyti er Sigmundur allt að því einstakur meðal
íslenskra stjórnmálamanna.
Því miður er alltof mörgum kollegum hans of tamt að
gaspra eins og á sjálfstýringu í pólitísku tómarúmi. Þrasið
er þrassins vegna, ekki til að finna lausnir. Nýlegt dæmi eru
ásakanir Pírata um barnaníð í tengslum við samninga um
dagskrá þingsins. Slíkur málflutningur dæmir sig sjálfur, er
eingöngu til þess fallinn að slá pólitískar keilur og þeim til
vansa sem í hlut eiga.
Sama tilfinning kom upp þegar hlustað var á Brynjar
Níelsson, þingmann Sjálfstæðisflokksins, á dögunum býsn-
ast yfir meintri hentistefnu lækna í kjaramálum. Honum
fannst ósamræmi í því að læknar létu nú ekkert í sér heyra
vegna þess að laun þeirra væru með því besta sem gerist í
alþjóðlegum samanburði, ólíkt kveinstöfunum fyrir örfáum
misserum þegar krónan var í lægð.
Brynjar minntist ekki á fílinn í herberginu – íslensku krón-
una. Örmyntina sem sveiflast eins og lauf í vindi og veldur
því að forráðamenn íslenskra fyrirtækja geta aldrei gert
vitrænar áætlanir. Sama á við um lækna. Laun þeirra sveiflast
í takt við tiktúrur krónunnar. Læknar bera ekki ábyrgð á
sveiflunum. Ábyrgðin er Brynjars og félaga hans á þingi.
Tillaga að einfaldri lausn á þessu væri upptaka evru eða
annars gjaldeyris. Þingmaðurinn, sem vafalaust vill halda
í krónuna, minntist hins vegar ekkert á það og reyndi ekki
að færa rök fyrir því hvers vegna krónan væri ákjósanlegur
gjaldmiðill. Þras, þrassins vegna. Engar lausnir.
Kannski væri betra fyrir okkur ef það væru Sigmundar í
öllum flokkum.
Simmar
allra flokka
Mín skoðun Logi Bergmann
Stundum velti ég fyrir mér hvernig okkur tókst að móðgast fyrir tíma samfélagsmiðla. Getur verið að allir hafi bara verið meira og minna sammála
og í mesta lagi hafi einn eða tveir rokið í fússi úr heita
pottinum eða fermingarveislunni?
Við verðum nefnilega svo reið. Svo rosalega reið og
stundum ósanngjörn. Við vitum alltaf hvað einhver
annar var í raun að segja og við finnum hjá okkur
ríka þörf til að ráðast á hann og benda viðkomandi á
það hvað hann sé rosalega mikill fáviti með svaka-
lega rangar skoðanir.
Það sem er verra, er að þetta er orðið eðlilegt. Það
var ekki þannig. Mamma hefur oft sagt mér söguna af
gömlum vini hennar sem henti í hana penna, rauk út
og sagði að það væri ekki hægt að tala við hana af því
að maðurinn hennar (pabbi minn) væri svo mikill
kommúnisti. Yfirfært á samfélagsmiðla telst þetta
bara eðlileg hegðun í dag.
Hvað er það sem dregur fram í okkur þörfina til
að trúa á það versta í fólki? Sú vissa að andstæðingar
okkar eða sá sem er ekki sammála okkur, sé það
vegna þess að hann sé vond manneskja? Þegar maður
hugsar út í það, er þá ekki ólíklegt að vonda fólkið
raðist alltaf á hinn enda pólitíska kvarðans?
Fjögurra vikna frekjukast
Þetta eru örugglega soltið barnalegar spurningar en
ég held að við höfum gott af því að velta þeim fyrir
okkur. Við erum nefnilega að fara í kosningar eftir
nákvæmlega fjórar vikur. Og ímyndið ykkur hvernig
ástandið verður þegar við tökum hefðbundna hálfs
árs kosningabaráttu og pökkum henni inn í 28 daga
æðiskast á samfélagsmiðlum. Nú er ég enginn sér-
stakur spámaður en ég held að ég geti lofað ykkur
því að það verður ekki skemmtilegt, í það minnsta
ef síðustu dagar gefa einhvern forsmekk af því sem
koma skal. Gífuryrði og yfirlýsingar um að þessir ætli
ekki að leika við þennan og það komi ekki til greina
að þessir tveir vinni saman. Andrúmsloftið er eins
og eftir þrotað rifrildi og kjósandinn ráfar um eins
og ráðvillt skilnaðarbarn. En þetta getur ekki gengið
svona. Það segir sig sjálft.
Stjórnmál snúast nefnilega um málamiðlanir.
Innan skynsamlegra marka er ekkert til sem heitir
rangar skoðanir og réttar. Maður getur verið sam-
mála eða ósammála. Á því er töluverður munur. Í því
felst frelsið. Já, og lýðræðið. Því þegar kemur að því
að ná niðurstöðu þá verður hún til með því að ná sátt
um leiðir með fólki sem er ekki sömu skoðunar.
Ekki tapa gleðinni
Ég veit ekki um aðra, en ég hef í það minnsta ekki
gaman af þessu. Mín pólitíska sannfæring er til
dæmis ekki nógu sterk til að blokka einhvern á
Facebook. Ef ég hef gert það þá er það frekar vegna
þess að viðkomandi er bara svo sjúklega leiðinlegur.
Ég held að það sé gott að hafa í huga að við þurfum
ekki á því að halda að það sé talað niður til okkar
og við skömmuð fyrir að hafa rangar skoðanir. Við
munum taka ákvarðanir sjálf um hvað við ætlum að
kjósa og þær verða líklega byggðar á því hvernig við
metum þá sem bjóða sig fram. Sem gæti verið hræði-
legur misskilningur en það verður þá bara að hafa
það. Miðað við síðustu misseri þá líður ekki á löngu
áður en við fáum tækifæri til að skipta um skoðun.
Þangað til – ekki tapa gleðinni.
Frelsi til að vera ósammála
Ég held að það sé gott að hafa í huga að við
þurfum ekki á því að halda að það sé talað
niður til okkar og við skömmuð fyrir að hafa
rangar skoðanir.
365.isMARGFALT SKEMMTILEGRI
MEIRI HRAÐI, SKARPARI MYND OG BETRA VIÐMÓT
APPLE TV
Á 0 KR.
með 12 mánaða áskrift
að völdum pökkum 365
Nánar á 365.is eða í síma 1817
3 0 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r18 s k o ð U n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
SKOÐUN
3
0
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:1
9
F
B
1
3
6
s
_
P
1
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
1
-6
E
7
8
1
D
E
1
-6
D
3
C
1
D
E
1
-6
C
0
0
1
D
E
1
-6
A
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
3
6
s
_
2
9
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K