Fréttablaðið - 30.09.2017, Blaðsíða 121
Ármúla 38, 108 Reykjavík S. 537 5101 Opið virka daga 10 - 18 Laugardaga 11 - 16 www.snuran.is
SCANDINAVIA SÓFADAGAR
25%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM SCANDINAVIA SÓFUM
DAGANA 30.09 - 07.10!
OPNUNARPARTÝ!
Við stækkum Snúruna enn meira og
opnum efri hæðina í dag. Drykkir frá
Ölgerðinni verða í boði og kynning á
Lie Gourmet matvörunum ásamt
20% afslátt af þeim.
Mö r g g l e y m d orð eru góð og mér finnst þau mættu alveg l i f n a a f t u r . Eitt af þeim er
herneskja. Það ætti vel við núna
þegar verið er að tala um herbúnað
Norður-Kóreu. Herneskja er úr
riddarasögu, riddarar áttu her-
neskju, brynju, hjálm, skjöld og
sverð. Til var líka orðið barneskja
sem orðið bernska útrýmdi. Orð
sem eru mynduð eins og harðneskja
í nútímamáli. Sniðhvass er gott
orð, þýðir það sama og vígdjarfur
eða herskár. Það passar nú aldeilis
um pólitíkina núna, þar eru menn
nokkuð sniðhvassir þessa dagana
og nú er eftir að finna einhverja
„sendilega“ til að fara í framboð,
sendilegir eru þeir sem eru fram-
bærilegir.“
Það er Sölvi Sveinsson, fyrr-
verandi skólameistari í Ármúla og
Versló, sem hefur orðið. Ný bók er
komin út eftir hann: Geymdur eða
gleymdur orðaforði, sú fimmta sem
hann skrifar í sama flokki – með
fram öðrum störfum. „Ég byrjaði
árið 1991 á bók sem heitir Íslensk
orðtök með skýringum og dæmum
úr daglegu máli. Í kjölfarið komu
Íslenskir málshættir, svo Saga
orðanna og árið 2015 gaf ég út
Táknin í málinu. Samhliða þessu
öllu dundaði ég við þá bók sem var
að koma út núna. Las allar útgáfur
Hins íslenska fornritafélags, Íslend-
ingasögur, konungasögur, biskupa-
sögur og fleira og fiskaði upp orð
sem mér fannst skemmtileg og eru
ýmist dauð núna eða enn í málinu.“
Nýja bókin ætti að nýtast þeim
sem vilja auka blæbrigði máls síns,
að mati Sölva. „Fjölmiðlar eru dálít-
ið grimmir í að gera einhver orð
vinsæl. Nú þegar flestir eru farnir
að vinna innanhúss talar fólk oft
um snjóstorm. Það er bein þýðing
úr erlendum málum en við eigum
mörg orð meira lýsandi yfir slíkt
veður, svo sem skafrenning, élja-
gang, snjókomu, byl, hríð, kafald og
logndrífu,“ nefnir hann sem dæmi.
Menn eru nokkuð sniðhvassir þessa dagana
Í nýrri bók, Geymdur eða gleymdur orðaforði, lýkur Sölvi Sveinsson, fyrrverandi skólameistari upp
gömlum leyndardómum um tungumálið, búinn að lesa öll fornritin frá a til ö og afla þar orða.
Sölvi fiskaði orð upp úr fornritunum sem þóttu skemmtileg og eru dauð núna eða enn í málinu. Fréttablaðið/anton brink
Dæmi úr bókinni
Haldinorður: orðheldinn
alræmt: á allra vitorði
andskoti: óvinur
látinn: andlaus
Hárbjartur: ljóshærður
lýðmaður : almenningur
Magaskegg: skapahár
Mundangshóf: meðalhóf
kind: kyn, ætt
Myrknætti: mið nótt
Skuldvar: varkár í fjármálum
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Þrátt fyrir allt telur Sölvi íslenskt
mál enn fjölbreytt. „Orðaforði þjóð-
ar hlýtur alltaf að vera síbreytilegur
af því fólk þarf að hafa orð yfir alla
hluti sem það hefur í kringum sig.
Enn lifir margt úr gamla málinu, þó
að það fari minnkandi, en margt
hefur líka bæst við með nýrri tækni,
nýjum búsetuháttum og aðstæðum.
Því held ég að íslenskan hafi aldrei
verið notuð um fjölbreyttari svið en
núna. Hins vegar hefur málið týnt
mörgum af fallegum blæbrigðum
sínum, því einstök orð vilja verða
svo frek að þau útrýma öðrum.“
m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 57L A U g A R D A g U R 3 0 . s e p T e m B e R 2 0 1 7
3
0
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
0
F
B
1
3
6
s
_
P
1
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
1
-8
2
3
8
1
D
E
1
-8
0
F
C
1
D
E
1
-7
F
C
0
1
D
E
1
-7
E
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
3
6
s
_
2
9
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K