Fréttablaðið - 30.09.2017, Blaðsíða 22
Rannsóknarsjóður Öldrunarráðs
Íslands auglýsir eftir umsóknum
um styrk úr sjóðnum
Umsóknarfrestur er til og með 10. október
2017 og skulu umsóknir sendar til
Öldrunarráðs Íslands, Sóltúni 2, 105
Reykjavík.
Frekari upplýsingar veitir Anna Birna
Jensdóttir, formaður stjórnar Öldrunarráðs.
Fyrirspurnir sendist á netfangið
oldrunarrad@oldrunarrad.is
Stjórn Öldrunarráðs Íslands
Úr 5. gr. skipulagsskrár Rannsóknarsjóðsins:
Hlutverk sjóðsins er að styrkja rannsóknir í
öldrunarmálum á Íslandi svo og þau verkefni
sem stjórn sjóðsins ákveður.
Kolsvartur húmor Sesselíu Ólafsdóttur og Vilhjálms B. Bragasonar hefur vakið mikla athygli. Þau kalla sig vand-
ræðaskáld og semja vísur um lífið,
ástina, samfélagið og pólitíkina.
Nýlega sendu þau frá sér hárbeitta
vísu um Bjarna Benediktsson for-
sætisráðherra sem fer sem eldur
um sinu á Youtube. Vísuna kalla þau
Bjarnaverndarnefnd.
„Við höfum verið vinir frá því í
menntaskóla og vorum bæði að
læra úti í London, ég leiklist og leik-
stjórn í KADA (Kogan Academy of
Dramatic Arts) og Vilhjálmur leik-
ritun og leikbókmenntir í RADA
(The Royal Academy of Dramatic
Art),“ segir Sesselía og segir þau hafa
verið sitt í hvoru lagi að fikta við að
semja tónlist. „Í eitt skiptið sem við
hittumst ákváðum við að semja lag
saman og skemmtum okkur gríðar-
lega við það. Svo fluttum við á svip-
uðum tíma heim til Íslands aftur
og þá varð nafnið Vandræðaskáld
til og í kjölfarið sýningin Útför –
saga ambáttar og skattsvikara, þar
sem við greindum uppruna okkar
Íslendinga. Sú sýning naut mikilla
vinsælda og var sýnd lengi á Akur-
eyri og í kjölfarið sýndum við svo í
Tjarnarbíói, en þess má til gamans
geta að við snúum aftur í Tjarnar-
bíó nú 21. október með sýninguna
Framhjá rauða húsinu og niður
stigann,“ segir Sesselía. Sýningin er
skrifuð af þeim og leikin í félagi við
vinkonu þeirra Birnu Pétursdóttur
undir fána atvinnuleikhópsins
Umskiptinga og hefur hlotið góða
dóma.
Vandræðaskáldum
er ekkert heilagt
Vandræðaskáldin Sesselía Ólafsdóttir og Vilhjálmur B. Bragason
halda í tónleikaför. Þau verða á Ísafirði í kvöld og halda tónleika með
yfirskriftinni „Vandræðaskáld vega fólk“. Þeim er ekkert heilagt og
með beittri þjóðfélagsádeilu fjalla þau um lífið og auðvitað pólitíkina.
Sesselía og Vilhjálmur eru oftast til vandræða á Akureyri en nú ætla þau að
ferðast um landið og breiða út boðskapinn. FréttAblAðið/Auðunn
Bjarnaverndarnefnd
Hvað gengur að hjá fólki,
ég get þetta ekki lengur?
Sjá þau ekki í alvöru
hvað Bjarni er góður drengur?
Þau pískra bara og púa og finna
allt til ama,
þau geta ekki sætt sig við hans
pólitíska frama
og grafa því upp smámál eins og
Icehot og Panama,
eða þetta nýjasta sem mér finnst
öllu verra,
hvað með þó að pabb’ans hafi
kvittað fyrir perra?
Og þó Bjarni hafi leynt því kallar
ekki á hýðingar,
svo hættið þessu, hættið þessu
Bjarnaníðingar.
#bjarnaverndarnefnd
#höfumaðeinslægra
Um helgina
„Eftir Útför fóru okkur svo að ber-
ast fyrirspurnir um veislustjórn og
skemmtanir og má eiginlega segja
að það hafi undið upp á sig síðan,
ekki síst fyrir tilstilli þeirra mynd-
banda sem við höfum sett á verald-
arvefinn, svo sem LÍN og Áramóta-
kveðjunnar,“ segir Vilhjálmur frá.
Þau segja vinskap sinn byggjast
á ást þeirra á ljóðum. „Við höfum
bæði ort frá því að við vorum börn
og unglingar og haft mikla ástríðu
fyrir flutningi á ljóðum og texta.
Tónlistin var svo rökrétt framhald,
þar sem það er greiðasta leiðin til að
koma textum á framfæri í nútíman-
um. Það eru margvíslegar ástæður
fyrir því að við yrkjum, stundum
sjáum við eitthvað í samfélaginu
sem betur mætti fara, stundum er
þetta tilraun til þess að fanga ein-
hverja tilfinningu, en umfram allt
viljum við skemmta fólki … og svo
auðvitað þetta klassíska: Hvernig
veit ég hvað mér finnst fyrr en ég
heyri hvað ég hef að segja?“ segir
Sesselía.
Vilhjálmur segir þeim almennt
vel tekið. „Sem sannast ekki síst í því
að við höfum aldrei auglýst okkur
sem skemmtikrafta eða veislu-
stjóra, heldur hefur fagnaðarerindið
breiðst út mann af manni, eins og
kynsjúkdómur,“ segir hann.
Tíndu SVeppi
„Nú vaxa sveppir
langt fram í septem-
ber og allt þar til fer
að frysta,“ segir Ása
Margrét Ásgríms-
dóttir sem er einna
landsmanna fróðust
um matsveppi í
náttúru Íslands. Það
má finna ullserk og
furusveppi. Ull-
serkinn er að finna á
túnum, það þarf að
tína hann fjarri um-
ferðargötum. Furu-
sveppinn í skógum,
svo sem Heiðmörk.
Farðu í BíÓ
RIFF – alþjóðleg kvikmyndahátíð í
Reykjavík er hafin og úrval feiki-
góðra mynda sem hægt er að velja
um. 226 myndir frá 43 löndum
verða sýndar á hátíðinni.
LeSTu
Barnagælu eftir Leilu Slimane. Leila
er fædd 1981 og er hratt rísandi
stjarna í
heimalandi
sínu, Frakk-
landi. Þessi
ljóðræni
sálfræðitryllir
og glæpa-
saga hlaut
hin virtu
Goncourt-
verðlaun í
Frakklandi
og er þýdd
af Friðriki
Rafnssyni.
Nú leggja þau í tónleikaferðalag.
„Nú erum við að fara af stað með
tónleikaferðalagið Vandræðaskáld
vega fólk. Við byrjum á Ísafirði og
ætlum að koma víða við, þó ekki sé
búið að staðfesta allar dagsetningar
enn, þar á meðal ekki í Reykjavík.
Vega fólk snýst um grunnþætti lífs-
ins, lífið sjálft, ástina og dauðann,
þar leikum við okkur líka með marg-
ræðni þess að vega fólk, vera vega-
fólk og að vega fólk og meta,“ segir
Vilhjálmur.
Þið fylgist grannt með samfélags-
umræðunni og gerið grimmt gaman
að. Það er væntanlega af nógu að
taka? „Já, eiginlega er svo mikið um
að vera í samfélaginu að við gætum
stöðugt verið að semja um það,
en staðreyndin er að við verðum
að vera dálítið vandlát til þess að
þynna ekki út það sem skiptir mestu
máli. Þar fyrir utan erum við líka að
vasast í svo mörgu öðru og við hefð-
um engan tíma til þess ef við værum
að semja samfélagslegar grínvísur
alla daga,“ segir Sesselía en á meðal
verkefna dúettsins er að setja upp
Sjeikspír eins og hann leggur sig í
Leikfélagi Akureyrar.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
Við höFum aLdrei
augLýST okkur Sem
SkemmTikraFTa eða
VeiSLuSTjÓra, heLdur
heFur Fagnaðarerindið
BreiðST úT mann aF
manni, einS og
kynSjúkdÓmur.
3 0 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r22 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
helgin
3
0
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:1
9
F
B
1
3
6
s
_
P
1
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
1
-6
9
8
8
1
D
E
1
-6
8
4
C
1
D
E
1
-6
7
1
0
1
D
E
1
-6
5
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
3
6
s
_
2
9
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K