Fréttablaðið - 30.09.2017, Side 22

Fréttablaðið - 30.09.2017, Side 22
Rannsóknarsjóður Öldrunarráðs Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrk úr sjóðnum Umsóknarfrestur er til og með 10. október 2017 og skulu umsóknir sendar til Öldrunarráðs Íslands, Sóltúni 2, 105 Reykjavík. Frekari upplýsingar veitir Anna Birna Jensdóttir, formaður stjórnar Öldrunarráðs. Fyrirspurnir sendist á netfangið oldrunarrad@oldrunarrad.is Stjórn Öldrunarráðs Íslands Úr 5. gr. skipulagsskrár Rannsóknarsjóðsins: Hlutverk sjóðsins er að styrkja rannsóknir í öldrunarmálum á Íslandi svo og þau verkefni sem stjórn sjóðsins ákveður. Kolsvartur húmor Sesselíu Ólafsdóttur og Vilhjálms B. Bragasonar hefur vakið mikla athygli. Þau kalla sig vand- ræðaskáld og semja vísur um lífið, ástina, samfélagið og pólitíkina. Nýlega sendu þau frá sér hárbeitta vísu um Bjarna Benediktsson for- sætisráðherra sem fer sem eldur um sinu á Youtube. Vísuna kalla þau Bjarnaverndarnefnd. „Við höfum verið vinir frá því í menntaskóla og vorum bæði að læra úti í London, ég leiklist og leik- stjórn í KADA (Kogan Academy of Dramatic Arts) og Vilhjálmur leik- ritun og leikbókmenntir í RADA (The Royal Academy of Dramatic Art),“ segir Sesselía og segir þau hafa verið sitt í hvoru lagi að fikta við að semja tónlist. „Í eitt skiptið sem við hittumst ákváðum við að semja lag saman og skemmtum okkur gríðar- lega við það. Svo fluttum við á svip- uðum tíma heim til Íslands aftur og þá varð nafnið Vandræðaskáld til og í kjölfarið sýningin Útför – saga ambáttar og skattsvikara, þar sem við greindum uppruna okkar Íslendinga. Sú sýning naut mikilla vinsælda og var sýnd lengi á Akur- eyri og í kjölfarið sýndum við svo í Tjarnarbíói, en þess má til gamans geta að við snúum aftur í Tjarnar- bíó nú 21. október með sýninguna Framhjá rauða húsinu og niður stigann,“ segir Sesselía. Sýningin er skrifuð af þeim og leikin í félagi við vinkonu þeirra Birnu Pétursdóttur undir fána atvinnuleikhópsins Umskiptinga og hefur hlotið góða dóma. Vandræðaskáldum er ekkert heilagt Vandræðaskáldin Sesselía Ólafsdóttir og Vilhjálmur B. Bragason halda í tónleikaför. Þau verða á Ísafirði í kvöld og halda tónleika með yfirskriftinni „Vandræðaskáld vega fólk“. Þeim er ekkert heilagt og með beittri þjóðfélagsádeilu fjalla þau um lífið og auðvitað pólitíkina. Sesselía og Vilhjálmur eru oftast til vandræða á Akureyri en nú ætla þau að ferðast um landið og breiða út boðskapinn. FréttAblAðið/Auðunn Bjarnaverndarnefnd Hvað gengur að hjá fólki, ég get þetta ekki lengur? Sjá þau ekki í alvöru hvað Bjarni er góður drengur? Þau pískra bara og púa og finna allt til ama, þau geta ekki sætt sig við hans pólitíska frama og grafa því upp smámál eins og Icehot og Panama, eða þetta nýjasta sem mér finnst öllu verra, hvað með þó að pabb’ans hafi kvittað fyrir perra? Og þó Bjarni hafi leynt því kallar ekki á hýðingar, svo hættið þessu, hættið þessu Bjarnaníðingar. #bjarnaverndarnefnd #höfumaðeinslægra Um helgina „Eftir Útför fóru okkur svo að ber- ast fyrirspurnir um veislustjórn og skemmtanir og má eiginlega segja að það hafi undið upp á sig síðan, ekki síst fyrir tilstilli þeirra mynd- banda sem við höfum sett á verald- arvefinn, svo sem LÍN og Áramóta- kveðjunnar,“ segir Vilhjálmur frá. Þau segja vinskap sinn byggjast á ást þeirra á ljóðum. „Við höfum bæði ort frá því að við vorum börn og unglingar og haft mikla ástríðu fyrir flutningi á ljóðum og texta. Tónlistin var svo rökrétt framhald, þar sem það er greiðasta leiðin til að koma textum á framfæri í nútíman- um. Það eru margvíslegar ástæður fyrir því að við yrkjum, stundum sjáum við eitthvað í samfélaginu sem betur mætti fara, stundum er þetta tilraun til þess að fanga ein- hverja tilfinningu, en umfram allt viljum við skemmta fólki … og svo auðvitað þetta klassíska: Hvernig veit ég hvað mér finnst fyrr en ég heyri hvað ég hef að segja?“ segir Sesselía. Vilhjálmur segir þeim almennt vel tekið. „Sem sannast ekki síst í því að við höfum aldrei auglýst okkur sem skemmtikrafta eða veislu- stjóra, heldur hefur fagnaðarerindið breiðst út mann af manni, eins og kynsjúkdómur,“ segir hann. Tíndu SVeppi „Nú vaxa sveppir langt fram í septem- ber og allt þar til fer að frysta,“ segir Ása Margrét Ásgríms- dóttir sem er einna landsmanna fróðust um matsveppi í náttúru Íslands. Það má finna ullserk og furusveppi. Ull- serkinn er að finna á túnum, það þarf að tína hann fjarri um- ferðargötum. Furu- sveppinn í skógum, svo sem Heiðmörk. Farðu í BíÓ RIFF – alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík er hafin og úrval feiki- góðra mynda sem hægt er að velja um. 226 myndir frá 43 löndum verða sýndar á hátíðinni. LeSTu Barnagælu eftir Leilu Slimane. Leila er fædd 1981 og er hratt rísandi stjarna í heimalandi sínu, Frakk- landi. Þessi ljóðræni sálfræðitryllir og glæpa- saga hlaut hin virtu Goncourt- verðlaun í Frakklandi og er þýdd af Friðriki Rafnssyni. Nú leggja þau í tónleikaferðalag. „Nú erum við að fara af stað með tónleikaferðalagið Vandræðaskáld vega fólk. Við byrjum á Ísafirði og ætlum að koma víða við, þó ekki sé búið að staðfesta allar dagsetningar enn, þar á meðal ekki í Reykjavík. Vega fólk snýst um grunnþætti lífs- ins, lífið sjálft, ástina og dauðann, þar leikum við okkur líka með marg- ræðni þess að vega fólk, vera vega- fólk og að vega fólk og meta,“ segir Vilhjálmur. Þið fylgist grannt með samfélags- umræðunni og gerið grimmt gaman að. Það er væntanlega af nógu að taka? „Já, eiginlega er svo mikið um að vera í samfélaginu að við gætum stöðugt verið að semja um það, en staðreyndin er að við verðum að vera dálítið vandlát til þess að þynna ekki út það sem skiptir mestu máli. Þar fyrir utan erum við líka að vasast í svo mörgu öðru og við hefð- um engan tíma til þess ef við værum að semja samfélagslegar grínvísur alla daga,“ segir Sesselía en á meðal verkefna dúettsins er að setja upp Sjeikspír eins og hann leggur sig í Leikfélagi Akureyrar. Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is Við höFum aLdrei augLýST okkur Sem SkemmTikraFTa eða VeiSLuSTjÓra, heLdur heFur Fagnaðarerindið BreiðST úT mann aF manni, einS og kynSjúkdÓmur. 3 0 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r22 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð helgin 3 0 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :1 9 F B 1 3 6 s _ P 1 1 5 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 9 8 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D E 1 -6 9 8 8 1 D E 1 -6 8 4 C 1 D E 1 -6 7 1 0 1 D E 1 -6 5 D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 3 6 s _ 2 9 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.