Fréttablaðið - 07.10.2017, Síða 2
Veður
Suðlæg átt, 5-13 m/s en hvassara
á Snæfellsnesi fyrripart dags. Víða
rigning eða skúrir en hangir yfirleitt
þurrt á norðaustanverðu landinu þó
lítið sjáist til sólar þar. sjá síðu 50
Vilja bjóða betri forystu
Landsfundur Vinstri grænna var settur á Grand hóteli í Reykjavík í gær og flutti Katrín Jakobsdóttir, formaður flokksins, setningarávarp. Flokkur-
inn mælist með mest fylgi allra flokka, alls 28,6 prósent í könnun fréttastofu 365 sem birt var í vikunni. Ef Vinstri græn halda því fylgi verður
flokkurinn í lykilstöðu í stjórnarmyndunarviðræðum og því ekki ólíklegt að formaðurinn verði næsti forsætisráðherra. Fréttablaðið/Ernir
kæli- og
Frí Heimsending
á öllum kæli- og
frystitækjum
02–08 okt.
frystidagar
skipulagsmál „Gaman væri að
færa götunni aftur týndan sauð,
koma lóð sem hefur verið í órækt
og óstandi um árabil í fallegt horf,“
segir Vigdís Hrefna Pálsdóttir leik
kona í bréfi til til borgaryfirvalda
þar sem hún óskar eftir að fá lóð á
Bergstaðastræti 18 undir gamalt hús
sem nú stendur á Vatnsleysuströnd.
Vigdís sendir bréfið jafnframt
fyrir hönd eiginmanns síns, Arnar
Úlfars Höskuldssonar húsasmiðs.
Hún segir þau hjón hafa fest kaup
á húsi sem byggt var 1902 á Berg
staðastræti 7 en flutt í Hvassahraun
fyrir hálfri öld. Þau hafi keypt húsið
og vilji færa það í upprunalega
mynd. Þótt það líti ekki vel út sé
margt mjög heillegt í því.
„Allt sem fólk sem elskar gömul
hús heillast af er meira og minna
heilt. Hlutir sem fást ekki keyptir
úti í búð eða endurgerðir,“ útskýrir
Vigdís í bréfi sínu. „Við hefðum ekki
áhuga á að byggja við húsið heldur
gera það upp í upprunalegri mynd,
halda öllu sem heillegt er og endur
smíða það sem er ónýtt.“
Vigdís segir lóðina á Bergstaða
stræti 18 henta sérlega vel fyrir
húsið sem sé 58 fermetrar að grunn
fleti og samtals 156 fermetrar. Lóðin
sé á forræði Minjaverndar sem hafi
ekkert hús í hentugri stærð til að
setja á lóðina. Því sé óskað eftir því
við borgina, sem eigi stóran hlut
í Minjavernd, að semja um að fá
lóðina til sín. Minjavernd gæti þá til
dæmis fengið lóð á Bergstaðastræti
31 í staðinn.
Þá kemur fram að Örn hafi unnið
að því undanfarin ár að gera upp
gömul hús, meðal annars hús sem
þau hjón hafi keypt við Bergstaða
Leikkona vill fá týndan
sauð á Bergstaðastræti
Hjónin Vigdís Hrefna Pálsdóttir leikkona og Örn Úlfar Höskuldsson húsasmið-
ur vilja fá auða lóð á Bergstaðastræti til að flytja þangað 115 ára hús sem stóð
áður við götuna en hefur verið í Hvassahrauni á Vatnsleysuströnd í hálfa öld.
Hérna má sjá mynd af húsinu en það
stóð áður við bergstaðarstræti 7.
bergstaðastræti 18 er í höndum Minjaverndar sem Vigdis Hrefna Pálsdóttir
segir ekki vera með hús í hentugri stærð fyrir lóðina. Fréttablaðið/Hanna
stræti 20 fyrir sex árum og fært í
upprunalegt horf. Nú í sumar hafi
Örn verið að gera upp hús á Berg
staðastræti 40 sem sé nánast alveg
eins og húsið sem nú sé í Hvassa
hrauni.
„Vigdís er ritari Torfusamtakanna
og áhugamanneskja um uppgerð,
varðveislu og menningargildi gam
alla húsa að ógleymdu aðdáandi
Bergstaðastrætis sjálfs þar sem hún
er fædd, uppalin og býr í dag,“ segir
enn fremur í bréfi Vigdísar sem
nú er til meðferðar hjá eigna og
atvinnuþróunarsviði Reykjavíkur.
„Vonandi endar þetta hús við
Bergstaðastræti. Það stóð hér í 65 ár
og mér finnst það eiga heima hér,“
segir Vigdís við Fréttablaðið.
gar@frettabladid.is
Vonandi endar þetta
hús við Bergstaða-
stræti. Það stóð hér í 65 ár og
mér finnst það eiga heima
hér.
Vigdís Hrefna
Pálsdóttir,
leikkona
Viðskipti Ísbúðin vinsæla Valdís
seldi sínar ískúlur fyrir ríflega 145
milljónir króna á síðasta ári. Hagn
aður Valdísar, sem er í eigu Gylfa
Þórs Valdimarssonar og Önnu
Svövu Knútsdóttur, nam 24,3 millj
ónum króna samkvæmt nýjum árs
reikningi félagsins.
Hagnaðurinn dregst nokkuð
saman frá fyrra ári þegar hann nam
38,6 milljónum árið 2015 og 40,2
milljónum árið þar áður.
Minni hagnaður skýrist að mestu
leyti af mun hærri launakostnaði en
árin á undan. Árið 2016 nam launa
kostnaður 67 milljónum króna sam
anborið við rúmar 55 milljónir árið
2015.
Skuldir félagsins nema tæpum 19
milljónum króna en eigið fé félags
ins rúmum 25 milljónum. Eigendur
félagsins greiddu sér 38,5 milljónir
króna í arð á síðasta ári. – smj
Valdís hagnast
um 24 milljónir
stjórnmál Jón Gnarr, fyrr
verandi borgar stjóri í Reykja
vík, hefur gengið í raðir Sam
fylkingarinnar. Jón stofnaði
Besta flokkinn árið 2009 sem
síðar rann saman við Bjarta
framtíð. Hann hefur tekið
að sér ráðgjafarstörf fyrir
flokkinn og hélt erindi
á flokksfundi Samfylk
ingarinnar í gær.
Í viðtali við fréttir
Stöðvar 2 í gær sagði
Jón að hann útilokaði
ekki endurkomu í
póli tík. Hann verður
þó ekki á framboðs
lista Samfylkingar
innar að þessu sinni.
„Ef það er gaman og
ég tala nú ekki um
ef það gengur vel, þá
sé ég ekkert því til
fyrirstöðu að halda
áfram að starfa með
Samfylkingunni.“
Þrátt fyrir að
hafa sagt skilið
við Bjarta framtíð
telur hann áherslur
flokkanna svip
aðar. „Er þetta ekki
bara fólkið sem er í
flokkunum sem hefur
mest afgerandi áhrif á
útlit þeirra? Ég veit ekki
hver er hugmynda
fræðilegur munur á
þessum flokkum,“ segir
Jón. – ss
Jón Gnarr gengur í Samfylkinguna
Ég veit ekki hver
er hugmynda-
fræðilegur munur á
þessum flokkum.
Jón Gnarr
7 . o k t ó b e r 2 0 1 7 l a u g a r D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
7
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
C
-1
1
8
0
1
D
E
C
-1
0
4
4
1
D
E
C
-0
F
0
8
1
D
E
C
-0
D
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
0
s
_
6
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K