Fréttablaðið - 07.10.2017, Síða 8
Reykjavíkurborg
Umhverfis- og skipulagssvið
Ágústa Kristófersdóttir
Edda Ívarsdóttir
Spurningin vekur fólk til umhugsunar m.a. um
tilgang og markmið borga.
Hvaða áhrif hafa borgir á samskipti?
Hvernig má breyta hegðun og líðan borgarbúa?
Hvað ýtir undir sköpunarkraft borgarbúa?
Hvers vegna vill fólk búa í borgum?
Er hægt að skapa sína eigin borg daglega?
Hvert er gildi þess óvænta í borgarhverfum?
Fram koma á fundinum: Hjálmar Sveinsson,
formaður umhverfis- og skipulagsráðs, Ágústa
Kristófersdóttir, forstöðumaður Hafnarborgar,
menningar- og listamiðstöðvar Hafnarfjarðar,
Gunnar Haraldsson, hagfræðingur og
Edda Ívarsdóttir, borgarhönnuður.
Þau verða hvert með sitt sjónarhorn á svarið.
Fundurinn er í kaffihúsinu á Kjarvalsstöðum
þriðjudaginn 10. október 2017 kl. 20.
Allir velkomnir. Heitt á könnunni.
Gunnar Haraldsson
Til hvers eru borgir?
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar stendur fyrir fundaröðinni
BORGIN – HEIMKYNNI OKKAR um þróun og mótun borgarinnar
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Þriðjudagurinn 10. október 2017 kl. 20 á Kjarvalsstöðum
Hjálmar Sveinsson
Styrkir úr Lýðheilsusjóði 2018
Lýðheilsusjóður óskar eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum til
heilsueflingar og forvarna á sviði geðræktar, næringar, hreyfingar og
tannverndar auk áfengis-, vímu- og tóbaksvarna.
Áhersla er lögð á eftirfarandi:
• Aðgerðir sem miða að því að efla geðheilsu.
• Árangursríkar áfengis, vímu- og tóbaksvarnir.
• Árangursríkar forvarnir sem tengjast kynheilbrigði.
• Aðgerðir sem miða að heilbrigðu mataræði svefni og hreyfingu.
• Verkefni sem beinast að minnihlutahópum til að stuðla að jöfnuði til heilsu.
• Verkefni sem tengjast nýsköpun á sviði forvarna og heilsueflingar.
Við úthlutun verður tekið mið af lýðheilsustefnu velferðarráðuneytisins, sbr. skjalið
Lýðheilsustefna og aðgerðir sem stuðla að heilsueflandi samfélagi –
með sérstakri áherslu á börn og ungmenni að 18 ára aldri. (Útg. 2016)
Verkefni sem uppfylla eftirtalin skilyrði hafa forgang:
- Verkefni sem unnin eru í víðtæku samstarfi hagsmunaaðila í samfélaginu.
- Verkefni með eigin fjármögnun og/eða aðra fjármögnun.
Verkefnin eiga að byggja á faglegum grunni og hafa raunhæf og skýr markmið.
Gera þarf grein fyrir því hvernig árangur verkefnis verður metinn og skal skila
framvinduskýrslu að verkefni loknu.
Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember 2017 og skal sótt um á vefsvæði
Lýðheilsusjóðs, http://lydheilsusjodur.sidan.is/pages/.
Nánari upplýsingar í síma 510 1900 eða á vef Embættis landlæknis.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum vefsvæði sjóðsins.
Embætti landlæknis - Barónsstíg 47 - 101 Reykjavík - Sími 5101900 - lydheilsusjodur@landlaeknir.is - www.landlaeknir.is
Stjórnmál „Þessi skoðun þjóðar-
innar á þessu mikilvæga máli kemur
mér ekki á óvart. Ég hef alltaf haft
sterka sannfæringu fyrir því að
mikill meirihluti þjóðarinnar væri
á því að flugvöllurinn verði áfram
í Vatnsmýrinni,“ segir Njáll Trausti
Friðbertsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins og annar formanna
félagsins Hjartað í Vatnsmýrinni.
Þrír af hverjum fjórum sem
afstöðu taka, eða 74 prósent, vilja að
miðstöð innanlandsflugs verði áfram
í Vatnsmýrinni. Þetta sýna niður-
stöður skoðanakönnunar Frétta-
blaðsins, Stöðvar 2 og Vísis. Þá vilja
13 prósent færa innanlandsflugvöll-
inn til Keflavíkur. Þrettán prósent
vilja hafa hann annars staðar.
Hlutfall þeirra sem vilja hafa
flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni
hefur lækkað svolítið, miðað við
kannanir Fréttablaðsins. Í apríl
2013 var sömu spurningar spurt og
þá sögðust 83 prósent þeirra sem
afstöðu tóku vilja hafa flugvöllinn
í Vatnsmýrinni. Munurinn er vel
umfram vikmörk sem eru 2,35 pró-
sent. Í apríl 2013 vildu 11 prósent
hafa innanlandsflugið í Keflavík og
sex prósent annars staðar.
Áform Reykjavíkurborgar um
að færa flugvöllinn eru skýr. Í
samkomulagi sem Hanna Birna
Kristjánsdóttir, þáverandi innan-
ríkisráðherra, Jón Gnarr, fyrr-
verandi borgarstjóri, og Björgólfur
Jóhannsson, forstjóri Icelandair,
undirrituðu árið 2013 var fallist á
að fullkannaðir yrðu aðrir kostir til
rekstrar innanlandsflugs en fram-
tíðarflugvöllur í Vatnsmýri. Fyrsti
kosturinn fyrir nýjan flugvöll væri
Næstum 74
prósent vilja
hafa völlinn í
Vatnsmýrinni
Það er yfirlýst markmið í aðalskipulagi Reykjavíkurborgar að flugvöllurinn í
Vatnsmýrinni fari. Meirihluti fólks vill hafa hann áfram. FRéttablaðið/eRniR
njáll trausti
Friðbertsson,
þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins
Stuðningsmönnum flug-
vallar í Vatnsmýrinni
hefur fækkað lítillega frá
árinu 2013. Mikill meiri-
hluti vill þó enn hafa
flugvöllinn þar. Þingmað-
ur Norðausturkjördæmis
segir niðurstöðuna ekki
koma sér á óvart.
ávallt á höfuðborgarsvæðinu. Í
samkomulaginu var líka ákveðið
að nefnd skyldi kanna möguleg
flugvallarstæði. Nefndin komst að
því að vænlegasti kosturinn til að
byggja flugvöll á höfuðborgarsvæð-
inu væri í Hvassahrauni.
Nú þegar hefur norðaustur-suð-
vestur flugbrautinni á Reykjavíkur-
flugvelli, sem stundum er kölluð
neyðarbraut, verið lokað. Það gerð-
ist í fyrrasumar eftir að niðurstaða
þess efnis fékkst í Hæstarétti. Þá er
gert ráð fyrir í fyrrnefndu samkomu-
lagi að norður-suðurbrautin verði á
aðalskipulagi til ársins 2022.
Könnunin var gerð þannig að
hringt var í 1.354 manns þar til
náðist í 800 samkvæmt lagskiptu
úrtaki 2. og 3. október. Svarhlut-
fallið var 59,1 prósent. Þátttakendur
voru valdir með slembiúrtaki úr
þjóðskrá.
Svarendur skiptust jafnt eftir kyni
og hlutfallslega eftir búsetu og aldri.
Spurt var: Hvar vilt þú að miðstöð
innanlandsflugs verði staðsett? Alls
tóku 84 prósent afstöðu, 14 prósent
sögðust óákveðin en eitt prósent
svaraði ekki. jonhakon@frettabladid.is
✿ Könnun Fréttablaðsins
Hvar vilt þú
að miðstöð
innanlandsflugs
verði staðsett?
n Á Keflavíkurflugvelli
n Í Vatnsmýrinni
n Annars staðar
13%
13%
74%
7 . o K t ó b e r 2 0 1 7 l A U G A r D A G U r8 F r é t t i r ∙ F r é t t A b l A ð i ð
0
7
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
C
-4
C
C
0
1
D
E
C
-4
B
8
4
1
D
E
C
-4
A
4
8
1
D
E
C
-4
9
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
0
s
_
6
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K