Fréttablaðið - 07.10.2017, Blaðsíða 26
Þetta hefur verið falinn heimur sem lítið hefur verið fjallað um,“ segir Sindri Sindrason fjölmiðlamaður en hann frumsýnir þáttaröðina
Fósturbörn á þriðjudag á Stöð 2. Um
er að ræða sjö þátta seríu þar sem
Sindri skyggnist inn í heim fóstur
barna, fósturforeldra en einnig kyn
foreldra sem hafa þurft að láta börn
sín af hendi. „Sögurnar sem þetta
fólk hefur að segja eru margar hverj
ar átakanlegar, en um 400 börn eru
í fóstri á Íslandi og hafa þau aldrei
verið fleiri.“
Sjálfur ættleiddi Sindri stúlku fyrir
nokkrum árum ásamt eiginmanni
sínum og kynntist þannig kerfinu frá
fyrstu hendi. „Við tókum hana fyrst í
tímabundið fóstur, síðar í varanlegt
og gengum svo frá ættleiðingu stuttu
síðar en fæst þessara barna eru ætt
leidd.“ Sindri segir sína reynslu bæði
hafa auðveldað honum þáttagerðina
og þvælst fyrir honum. „Ég þekki
þetta kerfi mjög vel, barnaverndina
og allt fósturkerfið. Það hjálpaði mér
að sjálfsögðu, en mér fannst líka
erfitt að halda fókus stundum. Þetta
er svo viðamikið viðfangsefni, við
kvæmt og að svo mörgu að huga. Mig
langaði til að fjalla um alla angana.“
Færst hefur í aukana að samkyn
hneigð pör taki börn í fóstur. Sindri
hefur eftir einum viðmælanda að slíkt
fyrirkomulag mælist sérstaklega vel
fyrir þegar um er að ræða samkyn
hneigða karlmenn sem taka að sér
hlutverk fósturforeldra. „Það reynist
oft blóðmæðrum þessara barna erfitt
þegar barnið fer að kalla einhverja
aðra konu mömmu. Einni sem ég
ræddi við fannst gott að fóstur
foreldrar hennar barns væru tveir
karlmenn og það skilur maður vel.“
Sindri segir kerfið oft fá ómak
lega gagnrýni, en margt megi þó
fara betur. „Eins og það að við 18
ára aldurinn er ekkert sem tekur við
fyrir þessa krakka. Þau eru send út
af stofnunum á átján ára afmælis
daginn og sum fósturheimili hafa
sömu reglu. Þau fá lítið veganesti
nema doðrant af gögnum um mál
þeirra innan úr kerfinu. Mér finnst
það algjörlega galið fyrirkomulag,“
segir Sindri. Hins vegar sé gagnrýni
á kerfið um að það grípi of snemma
inn í, gengið sé á rétt kynforeldra, úr
lausu lofti gripin. „Sum þessara fóst
urbarna segja einmitt að þau vildu
að það hefði verið gripið fyrr inn í.“
Fósturbörn verða á dagskrá Stöðv
ar 2 á þriðjudögum klukkan 20.30.
Aldrei fleiri fósturbörn á Íslandi
Sögur fólks eru margar átakanlegar að sögn Sindra.
„Sum þessara fósturbarna segja einmitt að þau vildu að það hefði verið gripið fyrr inn í,“ segir Sindri Sindrason stjórnandi nýrrar þáttaráðar um tilveru fósturbarna á Íslandi. Mynd/Stöð2
Sindri Sindrason
fjallar um falinn
heim fósturbarna og
fósturforeldra í nýrri
þáttaröð. Sjálfur
kynntist hann kerf-
inu frá fyrstu hendi
þegar hann ættleiddi
dóttur sína fyrir
fáum árum.
við 18 ára aldurinn er
ekkert sem tekur við
fyrir þessa krakka.
Um helgina
safnar undirskriftum
Helgin mun lit-
ast af störfum
fyrir Viðreisn.
Ég er að fara
að safna undir-
skriftum og við
í ungliðahreyf-
ingunni erum
með viðburð
á Dillon um
laugardags-
kvöldið. Svo
er flokkurinn
sjálfur með
kosningahátíð
sama dag.
lestu
Ósýnilega verndarann.
Fyrsta bindi glæpasagnaþrí-
leiks eftir Dolores Redondo.
Gerð var bíó-
mynd
eftir
bókinni
sem er
nú sýnd
á Net-
flix við
gríðar-
legar vin-
sældir.
Katrín Júlíu Stein-
grímsdóttir, fram-
bjóðandi og nemi.
tríthelgi
„Ég ætla að taka
smá trít-helgi svona
samhliða lærdómn-
um. Sem sagt drekka
gott kaffi, kaupa ný-
bakað súrdeigsbrauð
í Brauð & co. Töfra
fram heimagert avó-
kadó-ristað brauð og
jafnvel setja á mig
andlitsmaska, og já,
fara í gott pottatjill
í Vesturbæjarlaug
eftir góða rækt!“
horfðu
á Kartöfluæturnar, nýtt verk
Tyrfings Tyrfingssonar í
Borgarleikhúsinu sem fær
stórgóða dóma.
Ólöf
Skaftadóttir
olof@frettabladid.is
Aron Leví Beck, formaður Ungra
jafnaðarmanna.
list og landsþing
Ég er að fara á landsþing Ungra
jafnaðarmanna, sýningaropnun
Errós í Listasafni Reykjavíkur
og hver veit nema að ég kíki á
Babies flokkinn á Húrra í kvöld.
Anna Jia, verkfræðinemi og
fyrirsæta.
7 . o k t ó b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r26 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
helgin
0
7
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
C
-5
1
B
0
1
D
E
C
-5
0
7
4
1
D
E
C
-4
F
3
8
1
D
E
C
-4
D
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
2
0
s
_
6
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K