Fréttablaðið - 07.10.2017, Side 32
Þá var sagt við mig: „Já, já, Haffi
minn. Þú leikur kassastarfsmann í
Bónus,““ segir hann og hlær og tekur
fram að honum þyki samt sem áður
mjög gaman að leika glæpamenn og
annað í þeim dúr.
„Ég fékk líka símhringingu um
daginn og var boðið hlutverk gaurs
sem er að smygla. Ég komst ekki í
það verkefni en sagði að það mætti
hringja í mig aftur. Skömmu síðar
var mér boðið annað hlutverk og
þá átti ég að vera að stinga lögguna
af,“ segir Hafsteinn og skellir upp úr.
„Ég meina, vantaði ekki einhvern í
hlutverk bankastjóra eða …?“
Spurð út í hvort þau hafi fengið
hlutverk sem snúast ekki um að
þau séu dökk svara þau játandi. „Já,
já, þetta er alveg að breytast. Núna
var ég til dæmis að leika í mynd sem
heitir Pity the Lovers og þar leik ég
bara einn félagann. En það er bara
ótrúlega oft að maður er „type-
castaður“.“
Jonni bendir á að þó að þau séu
að ræða það sem betur mætti fara
þá sé líka mikilvægt að taka fram
að öll hafi þau fengið góð hlutverk
á ferlinum. „Ég hef til dæmis leikið í
tveimur sýningum á stóra sviðinu í
Þjóðleikhúsinu svo dæmi sé tekið.“
„Þetta er alveg að breytast og það
er gaman að sjá breytinguna gerast,
hún er hæg en þetta er allt að fara í
rétta átt. Ég trúi því innilega að við
þrjú gætum einhvern tímann verið
í uppsetningu á Njálu til dæmis. Það
væri sjúklega gaman,“ segir Tinna.
Alvarlegri fordómar
Jonni, Tinna og Hafsteinn hafa síðan
þau voru lítil börn fundið fyrir for-
dómum að einhverju leyti en þau
eru sammála um að fordómar séu
smátt og smátt að verða áþreifan-
legri og alvarlegri. Þess vegna er
Smán unnið í samtarfi við Rauða
krossinn.
Spurð út í hvernig samstarfið við
Rauða krossinn kom til segir Jonni:
„Ég ákvað að hafa samband við
þau vegna þess að þetta snýst um
meira en bara leikritið fyrir mér. Og
teymið hjá Rauða krossinum stakk
upp á að þetta gæti verið góður
vinkill inn í Vertu næs-verkefnið
sem þau standa fyrir.“ Þess má geta
að það verkefni er áskorun til fólks
um að koma fram hvert við annað af
virðingu óháð uppruna, litarafti og
trúarbrögðum.
„Í dag verður maður var við mun
áþreifanlegri fordóma,“ segir Tinna.
„Fyrir mitt leyti, jú, auðvitað varð
maður fyrir einhverjum fordómum
sem krakki, því það voru ekki marg-
ir dökkir krakkar á Íslandi þegar
við vorum að alast upp. En það var
samt æðislegt að alast hérna upp,“
útskýrir hún.
Hafsteinn og Jonni taka undir
með henni.
„En maður var samt oft kallaður
„Haffi svarti“ og maður heyrði af
„Jonna svarta“,“ segir Hafsteinn sem
getur ekki annað en skellt upp úr
þegar hann rifjar upp atvik úr æsku.
„Maður var bara farinn að trúa því
að maður væri einhver körfubolta-
maður frá Chicago sko. Maður var
alltaf í Jordan-treyju. Dökkur strák-
ur á Íslandi var alltaf bara „from the
hood“. Svo sagði maður krökkunum
að maður væri frá Sri Lanka og þá
spurðu þau hvar það væri í Banda-
ríkjunum.“
Hafsteinn, Jonni og Tinna hafa
mikinn húmor fyrir þessum hug-
myndum sem börn þá höfðu gjarn-
an um dökkt fólk. En þegar talið
berst að fordómum fullorðins fólks
núna, árið 2017, þá breytist stemn-
ingin í hópnum.
„Hlutirnir hafa verið að breytast
og fordómar eru að verða öðruvísi,“
segir Jonni. „Það eru nýnasistahópar
að spretta upp og það er rosalega
ógnvekjandi. Þegar maður var lítill
þá var lífið bara geggjað og maður
upplifði ekki beint fordóma, frekar
fáfræði. En margt af því sem er að
gerast núna eru hreinir fordómar.
Og það er þess vegna sem leik-
verkið Smán var skrifað. Eftir að ég
varð fullorðinn þá hef ég alveg lent
í því til dæmis að maður er að fara
inn í lyftu með einhverjum ókunn-
ugum en svo lítur einstaklingurinn
á mann og fer í burtu. Þannig að við
erum búin að lenda í miklu meiri
fordómum núna síðustu tuttugu ár
heldur en þegar við vorum lítil.“
Jonni tekur svo skotárásina í Las
Vegas fyrr í vikunni sem dæmi.
„Þessi mannskæða árás sýnir forrétt-
indi hvíta fólksins. Það er ekki búið
að stimpla árásarmanninn sem eitt
eða neitt. En um leið og þetta hefði
verið dökkur einstaklingur þá hefði
umræðan strax breyst og heilu hóp-
arnir hefðu orðið fyrir aðkasti.“
„Og eins með árásina á tvíbura-
turnana 11. september. Þá breyttust
ekki hlutirnir bara í Bandaríkjunum
heldur breyttist allt fyrir fólk eins
og okkur. Það lá við að maður væri
stoppaður nánast í hvert einasta
skipti sem maður fór til útlanda.
Hvort sem maður var á leiðinni
til eða frá Íslandi. Maður var alltaf
tekinn í gegn.“
Tinna kannast líka við þetta.
„Þetta er kallað „random-check“ en
maður fór stundum á flugvöllinn
mjög tímanlega því maður vissi að
maður væri að fara í þetta „random-
check“. Og svo hef ég oft verið spurð
út í af hverju ég sé með íslenskt vega-
bréf þar sem fólk telur mig augljós-
lega ekki íslenska,“ segir hún.
Hafsteinn bætir við: „En við
megum ekki gleyma því að það er
til hræðsla og fáfræði annars vegar
og svo hreinir fordómar hins vegar.
Hræðslan er orðin svo ótrúlega
mikil og ég held að þegar maður er
stoppaður af tollvörðum eða annað
þá sé það ekki vegna þess að þeir
séu að reyna að vera vondir. Það er
meira af því að þeir eru hræddir og
eru bara á nálum.“
Átakanlegt og eldfimt efni
Leikarahópurinn er sammála um
að Smán sé átakanlegt verk enda
er umfjöllunarefnið eldfimt, svo
sem trúarbrögð, fordómar og mis-
munun.
„Umræðurnar sem verða um
verkið sýna að fólk er virkilega að
pæla í innihaldi þess. Áhorfendur
taka sig í sjálfskoðun. Og sama með
mig. Ég hef alltaf talið mig rosa-
lega fordómalausan, sem ég er, en
samt þegar ég las handritið þá sá
ég hvað það var margt sem ég vissi
ekki eða skildi ekki,“ segir Haf-
steinn. „Það var ofboðslega hollt
fyrir mig að fara í smá sjálfskoðun.
Maður heldur að maður sé með allt
á hreinu en ég komst að því að ég
vissi rosalega lítið um íslamstrú,
múslima og svo framvegis. Það sem
maður hefur heyrt í fjölmiðlum
og annars staðar í gegnum árin fer
í undirmeðvitundina en svo fer
maður að kynna sér hlutina sjálfur
og þá breytist kannski viðhorfið,“
útskýrir Hafsteinn.
Jonni er sammála og hvetur fólk
til að láta sjónvarpsefni og fjölmiðla
ekki mata sig. „Margir trúa bara því
sem þeir sjá og heyra án þess að
leita dýpra og kynna sér hlutina
betur. Þaðan kemur þessi hræðsla.“
Jonni segir það hafa verið afar
krefjandi að takast á við svona eld-
fimt viðfangsefni. „Þetta var mikil
vinna og gríðarlega langt ferli. Við
Þorsteinn Bachmann leikstjóri
höfum verið að vinna að þessu
síðan í byrjun 2015. Þetta var erfitt
og ég þurfti reglulega að minna
mig á að leikritið snýst ekki um
okkur sem einstaklinga. Ég var oft
ekki sammála því sem karakterinn
minn var að segja og þá þurfti ég að
minna mig á að þetta er ekki Jonni
sem er að tala, þetta er karakterinn
minn. Ég persónulega hefði aldr-
ei getað þetta án Þorsteins. Við
tókumst oft mikið á eins og gerist
í svona ferli en á bak við það var
alltaf ást og virðing. Í ferlinu áttaði
ég mig á hversu góður og yndis-
legur maður hann er og þar að auki
stórkostlegur listamaður. Og svo er
ekki til betri staður til að setja upp
verk eins og Smán heldur en Þjóð-
leikhúsið. Og við eigum Baltasar
Kormáki og Ara Matthíassyni þjóð-
leikhússtjóra mikið að þakka, sem
og Rannís.“
„Eftir fyrstu þrjár, fjórar sýning-
arnar var ég svo búinn á því andlega
og líkamlega að ég fór bara að gráta,
maður brotnaði bara niður. Þetta
er svo „heavy“ efni sem við erum
að tala um. Ég hef sjaldan verið
jafn þreyttur,“ útskýrir Jonni. „En
ég meina, leikhúsið er frábær vett-
vangur til að takast á við viðfangs-
efni án þess að vera með svörin við
vandamálunum. Á sviði getum við
leyft okkur að ögra og vekja spurn-
ingar.“
„Og það sem er áhugavert við
þetta tiltekna verk er að það vekur
fleiri spurningar heldur en það
svarar,“ bætir Tinna við.
Að sögn Hafsteins, Tinnu og
Jonna hafa þau fengið jákvæð við-
brögð við Smán og góða dóma.
Miðasala hefur gengið vonum
framar þannig að áhugi fólks leynir
sér ekki. Þau hafa orðið vör við að
verkið fær fólk til að tala saman.
Eins taka þau fram að þau fái mikil
viðbrögð úr salnum á meðan á leik-
sýningu stendur. Það er því ljóst að
innihald verksins snertir við áhorf-
endum. „Maður heyrir fólk svara
persónunum og taka andköf,“ segir
Tinna.
Hafsteinn bætir við að þá sé
gaman þegar fólk gefur sér tíma til
að koma til þeirra og tala um verkið.
„Það er líka ótrúlega gaman þegar
fólk kemur sérstaklega til manns til
að þakka fyrir sig.“
„Já, það eru þær stundir sem gera
það að verkum að öll vinnan verður
þess virði. Þetta er alveg búið að
vera erfitt. Maður þarf að fara í smá
sálartékk. Þannig að þegar maður
fær jákvæð viðbrögð þá er það svo
mikill sigur,“ segir Tinna.
Viðeigandi umræða alls staðar
Smán er skrifað í Bandaríkjunum
og yfir verkinu er amerískur blær að
vissu leyti. „Þó svo að þetta sé skrifað
í Bandaríkjunum þá á umfjöllunar-
efnið samt vel við á Íslandi í dag, og
bara alls staðar í heiminum,“ segir
Tinna. Hún er þeirrar skoðunar að
samtöl leikverksins megi yfirfæra á
önnur umdeild málefni nútímans.
Jonni tekur þá flóttamanna-
umræðuna á Íslandi sem dæmi.
Hann telur að fólk sem er á móti
komu flóttamanna til Íslands sé
gjarnan með einhverjar fyrirfram
mótaðar hugmyndir í höfðinu.
„Fyrir mig persónulega þá er nóg að
sjá myndir af fólki sem er raunveru-
lega að reyna að komast í eitthvert
öryggi, litla krakka. Og ef það er ekki
nóg til að fikta í hjartanu á þér þá er
eitthvað að. Viljum við í alvöru vera
þjóð sem lokar augunum og segir
bara „nei“?“
Tinna tekur undir með Jonna.
„Þegar við horfum til baka, eftir 50
eða 100 ár, hvað viljum við þá að
sagan segi? Viljum við að sagan segi
að Ísland hafi sagt nei við þeim sem
eru í neyð? Eða viljum við vera stolt
og líta til baka og sjá að við hjálp-
uðum til?“
Hafsteinn er sömu skoðunar og á
erfitt með að skilja illskuna sem ein-
kennir ástandið víða í heiminum,
nær og fjær. „Ég á ótrúlega erfitt
með að skilja hversu vond við getum
verið, mannfólkið. Hvort sem það er
í formi þess að ráðast á fólk, rakka
einhvern niður í athugasemda-
kerfum á netinu eða loka augunum
fyrir hópi fólks sem þarf á hjálp að
halda.“
Tinna bætir við: „Við erum bara
ákveðinn tíma á jörðinni, og svo
tekur næsta kynslóð við. Og ef hún
er opin og skilningsrík þá erum
við á réttri leið. Og þess vegna eru
umræður svo mikilvægar.“ Hún
minnir á að því sé mikilvægt að fólk
passi hvaða upplýsingar það lætur
yngri kynslóðir fá. „Já, ég ætla að
segja það enn og aftur, það fæðist
enginn með fordóma, fordómar eru
kenndir.“
Smán (Disgraced)
Fjallar um fordóma vegna upp-
runa og trúarbragða og sjálfs-
mynd og sjálfsvitund fólks í fjöl-
menningarsamfélagi nútímans.
Höfundur: Ayad Akhtar
Skrifað árið 2012
Verðlaun: Obie Award, Pulitzer
Prize og Joseph Jefferson Awards
Leikstjóri íslenskrar uppsetn-
ingar: Þorsteinn Bachman
Leikarar: Jónmundur Grétarsson,
Salóme R. Gunnarsdóttir, Magnús
Jónsson, Tinna Björt Guðjóns-
dóttir og Hafsteinn Vilhelmsson.
Hlutirnir þurfa ekki
alltaf að snúast um
dökk Hlutverk og Hvít
Hlutverk. annars
staðar í evrópu eru
Hlutirnir komnir
lengra. dökkir leikar-
ar eru að leika Hamlet
eða Hvað sem er. við
erum íslensk og þetta
á ekki að skipta máli.
Jonni
maður var bara farinn
að trúa því að maður
væri einHver körfu-
boltamaður frá CHiC-
ago sko. maður var
alltaf í Jordan-treyJu.
Hafsteinn
↣
7 . o k t ó b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r32 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
0
7
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
C
-1
6
7
0
1
D
E
C
-1
5
3
4
1
D
E
C
-1
3
F
8
1
D
E
C
-1
2
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
2
0
s
_
6
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K