Fréttablaðið - 07.10.2017, Síða 32

Fréttablaðið - 07.10.2017, Síða 32
Þá var sagt við mig: „Já, já, Haffi minn. Þú leikur kassastarfsmann í Bónus,““ segir hann og hlær og tekur fram að honum þyki samt sem áður mjög gaman að leika glæpamenn og annað í þeim dúr. „Ég fékk líka símhringingu um daginn og var boðið hlutverk gaurs sem er að smygla. Ég komst ekki í það verkefni en sagði að það mætti hringja í mig aftur. Skömmu síðar var mér boðið annað hlutverk og þá átti ég að vera að stinga lögguna af,“ segir Hafsteinn og skellir upp úr. „Ég meina, vantaði ekki einhvern í hlutverk bankastjóra eða …?“ Spurð út í hvort þau hafi fengið hlutverk sem snúast ekki um að þau séu dökk svara þau játandi. „Já, já, þetta er alveg að breytast. Núna var ég til dæmis að leika í mynd sem heitir Pity the Lovers og þar leik ég bara einn félagann. En það er bara ótrúlega oft að maður er „type- castaður“.“ Jonni bendir á að þó að þau séu að ræða það sem betur mætti fara þá sé líka mikilvægt að taka fram að öll hafi þau fengið góð hlutverk á ferlinum. „Ég hef til dæmis leikið í tveimur sýningum á stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu svo dæmi sé tekið.“ „Þetta er alveg að breytast og það er gaman að sjá breytinguna gerast, hún er hæg en þetta er allt að fara í rétta átt. Ég trúi því innilega að við þrjú gætum einhvern tímann verið í uppsetningu á Njálu til dæmis. Það væri sjúklega gaman,“ segir Tinna. Alvarlegri fordómar Jonni, Tinna og Hafsteinn hafa síðan þau voru lítil börn fundið fyrir for- dómum að einhverju leyti en þau eru sammála um að fordómar séu smátt og smátt að verða áþreifan- legri og alvarlegri. Þess vegna er Smán unnið í samtarfi við Rauða krossinn. Spurð út í hvernig samstarfið við Rauða krossinn kom til segir Jonni: „Ég ákvað að hafa samband við þau vegna þess að þetta snýst um meira en bara leikritið fyrir mér. Og teymið hjá Rauða krossinum stakk upp á að þetta gæti verið góður vinkill inn í Vertu næs-verkefnið sem þau standa fyrir.“ Þess má geta að það verkefni er áskorun til fólks um að koma fram hvert við annað af virðingu óháð uppruna, litarafti og trúarbrögðum. „Í dag verður maður var við mun áþreifanlegri fordóma,“ segir Tinna. „Fyrir mitt leyti, jú, auðvitað varð maður fyrir einhverjum fordómum sem krakki, því það voru ekki marg- ir dökkir krakkar á Íslandi þegar við vorum að alast upp. En það var samt æðislegt að alast hérna upp,“ útskýrir hún. Hafsteinn og Jonni taka undir með henni. „En maður var samt oft kallaður „Haffi svarti“ og maður heyrði af „Jonna svarta“,“ segir Hafsteinn sem getur ekki annað en skellt upp úr þegar hann rifjar upp atvik úr æsku. „Maður var bara farinn að trúa því að maður væri einhver körfubolta- maður frá Chicago sko. Maður var alltaf í Jordan-treyju. Dökkur strák- ur á Íslandi var alltaf bara „from the hood“. Svo sagði maður krökkunum að maður væri frá Sri Lanka og þá spurðu þau hvar það væri í Banda- ríkjunum.“ Hafsteinn, Jonni og Tinna hafa mikinn húmor fyrir þessum hug- myndum sem börn þá höfðu gjarn- an um dökkt fólk. En þegar talið berst að fordómum fullorðins fólks núna, árið 2017, þá breytist stemn- ingin í hópnum. „Hlutirnir hafa verið að breytast og fordómar eru að verða öðruvísi,“ segir Jonni. „Það eru nýnasistahópar að spretta upp og það er rosalega ógnvekjandi. Þegar maður var lítill þá var lífið bara geggjað og maður upplifði ekki beint fordóma, frekar fáfræði. En margt af því sem er að gerast núna eru hreinir fordómar. Og það er þess vegna sem leik- verkið Smán var skrifað. Eftir að ég varð fullorðinn þá hef ég alveg lent í því til dæmis að maður er að fara inn í lyftu með einhverjum ókunn- ugum en svo lítur einstaklingurinn á mann og fer í burtu. Þannig að við erum búin að lenda í miklu meiri fordómum núna síðustu tuttugu ár heldur en þegar við vorum lítil.“ Jonni tekur svo skotárásina í Las Vegas fyrr í vikunni sem dæmi. „Þessi mannskæða árás sýnir forrétt- indi hvíta fólksins. Það er ekki búið að stimpla árásarmanninn sem eitt eða neitt. En um leið og þetta hefði verið dökkur einstaklingur þá hefði umræðan strax breyst og heilu hóp- arnir hefðu orðið fyrir aðkasti.“ „Og eins með árásina á tvíbura- turnana 11. september. Þá breyttust ekki hlutirnir bara í Bandaríkjunum heldur breyttist allt fyrir fólk eins og okkur. Það lá við að maður væri stoppaður nánast í hvert einasta skipti sem maður fór til útlanda. Hvort sem maður var á leiðinni til eða frá Íslandi. Maður var alltaf tekinn í gegn.“ Tinna kannast líka við þetta. „Þetta er kallað „random-check“ en maður fór stundum á flugvöllinn mjög tímanlega því maður vissi að maður væri að fara í þetta „random- check“. Og svo hef ég oft verið spurð út í af hverju ég sé með íslenskt vega- bréf þar sem fólk telur mig augljós- lega ekki íslenska,“ segir hún. Hafsteinn bætir við: „En við megum ekki gleyma því að það er til hræðsla og fáfræði annars vegar og svo hreinir fordómar hins vegar. Hræðslan er orðin svo ótrúlega mikil og ég held að þegar maður er stoppaður af tollvörðum eða annað þá sé það ekki vegna þess að þeir séu að reyna að vera vondir. Það er meira af því að þeir eru hræddir og eru bara á nálum.“ Átakanlegt og eldfimt efni Leikarahópurinn er sammála um að Smán sé átakanlegt verk enda er umfjöllunarefnið eldfimt, svo sem trúarbrögð, fordómar og mis- munun. „Umræðurnar sem verða um verkið sýna að fólk er virkilega að pæla í innihaldi þess. Áhorfendur taka sig í sjálfskoðun. Og sama með mig. Ég hef alltaf talið mig rosa- lega fordómalausan, sem ég er, en samt þegar ég las handritið þá sá ég hvað það var margt sem ég vissi ekki eða skildi ekki,“ segir Haf- steinn. „Það var ofboðslega hollt fyrir mig að fara í smá sjálfskoðun. Maður heldur að maður sé með allt á hreinu en ég komst að því að ég vissi rosalega lítið um íslamstrú, múslima og svo framvegis. Það sem maður hefur heyrt í fjölmiðlum og annars staðar í gegnum árin fer í undirmeðvitundina en svo fer maður að kynna sér hlutina sjálfur og þá breytist kannski viðhorfið,“ útskýrir Hafsteinn. Jonni er sammála og hvetur fólk til að láta sjónvarpsefni og fjölmiðla ekki mata sig. „Margir trúa bara því sem þeir sjá og heyra án þess að leita dýpra og kynna sér hlutina betur. Þaðan kemur þessi hræðsla.“ Jonni segir það hafa verið afar krefjandi að takast á við svona eld- fimt viðfangsefni. „Þetta var mikil vinna og gríðarlega langt ferli. Við Þorsteinn Bachmann leikstjóri höfum verið að vinna að þessu síðan í byrjun 2015. Þetta var erfitt og ég þurfti reglulega að minna mig á að leikritið snýst ekki um okkur sem einstaklinga. Ég var oft ekki sammála því sem karakterinn minn var að segja og þá þurfti ég að minna mig á að þetta er ekki Jonni sem er að tala, þetta er karakterinn minn. Ég persónulega hefði aldr- ei getað þetta án Þorsteins. Við tókumst oft mikið á eins og gerist í svona ferli en á bak við það var alltaf ást og virðing. Í ferlinu áttaði ég mig á hversu góður og yndis- legur maður hann er og þar að auki stórkostlegur listamaður. Og svo er ekki til betri staður til að setja upp verk eins og Smán heldur en Þjóð- leikhúsið. Og við eigum Baltasar Kormáki og Ara Matthíassyni þjóð- leikhússtjóra mikið að þakka, sem og Rannís.“ „Eftir fyrstu þrjár, fjórar sýning- arnar var ég svo búinn á því andlega og líkamlega að ég fór bara að gráta, maður brotnaði bara niður. Þetta er svo „heavy“ efni sem við erum að tala um. Ég hef sjaldan verið jafn þreyttur,“ útskýrir Jonni. „En ég meina, leikhúsið er frábær vett- vangur til að takast á við viðfangs- efni án þess að vera með svörin við vandamálunum. Á sviði getum við leyft okkur að ögra og vekja spurn- ingar.“ „Og það sem er áhugavert við þetta tiltekna verk er að það vekur fleiri spurningar heldur en það svarar,“ bætir Tinna við. Að sögn Hafsteins, Tinnu og Jonna hafa þau fengið jákvæð við- brögð við Smán og góða dóma. Miðasala hefur gengið vonum framar þannig að áhugi fólks leynir sér ekki. Þau hafa orðið vör við að verkið fær fólk til að tala saman. Eins taka þau fram að þau fái mikil viðbrögð úr salnum á meðan á leik- sýningu stendur. Það er því ljóst að innihald verksins snertir við áhorf- endum. „Maður heyrir fólk svara persónunum og taka andköf,“ segir Tinna. Hafsteinn bætir við að þá sé gaman þegar fólk gefur sér tíma til að koma til þeirra og tala um verkið. „Það er líka ótrúlega gaman þegar fólk kemur sérstaklega til manns til að þakka fyrir sig.“ „Já, það eru þær stundir sem gera það að verkum að öll vinnan verður þess virði. Þetta er alveg búið að vera erfitt. Maður þarf að fara í smá sálartékk. Þannig að þegar maður fær jákvæð viðbrögð þá er það svo mikill sigur,“ segir Tinna. Viðeigandi umræða alls staðar Smán er skrifað í Bandaríkjunum og yfir verkinu er amerískur blær að vissu leyti. „Þó svo að þetta sé skrifað í Bandaríkjunum þá á umfjöllunar- efnið samt vel við á Íslandi í dag, og bara alls staðar í heiminum,“ segir Tinna. Hún er þeirrar skoðunar að samtöl leikverksins megi yfirfæra á önnur umdeild málefni nútímans. Jonni tekur þá flóttamanna- umræðuna á Íslandi sem dæmi. Hann telur að fólk sem er á móti komu flóttamanna til Íslands sé gjarnan með einhverjar fyrirfram mótaðar hugmyndir í höfðinu. „Fyrir mig persónulega þá er nóg að sjá myndir af fólki sem er raunveru- lega að reyna að komast í eitthvert öryggi, litla krakka. Og ef það er ekki nóg til að fikta í hjartanu á þér þá er eitthvað að. Viljum við í alvöru vera þjóð sem lokar augunum og segir bara „nei“?“ Tinna tekur undir með Jonna. „Þegar við horfum til baka, eftir 50 eða 100 ár, hvað viljum við þá að sagan segi? Viljum við að sagan segi að Ísland hafi sagt nei við þeim sem eru í neyð? Eða viljum við vera stolt og líta til baka og sjá að við hjálp- uðum til?“ Hafsteinn er sömu skoðunar og á erfitt með að skilja illskuna sem ein- kennir ástandið víða í heiminum, nær og fjær. „Ég á ótrúlega erfitt með að skilja hversu vond við getum verið, mannfólkið. Hvort sem það er í formi þess að ráðast á fólk, rakka einhvern niður í athugasemda- kerfum á netinu eða loka augunum fyrir hópi fólks sem þarf á hjálp að halda.“ Tinna bætir við: „Við erum bara ákveðinn tíma á jörðinni, og svo tekur næsta kynslóð við. Og ef hún er opin og skilningsrík þá erum við á réttri leið. Og þess vegna eru umræður svo mikilvægar.“ Hún minnir á að því sé mikilvægt að fólk passi hvaða upplýsingar það lætur yngri kynslóðir fá. „Já, ég ætla að segja það enn og aftur, það fæðist enginn með fordóma, fordómar eru kenndir.“ Smán (Disgraced) Fjallar um fordóma vegna upp- runa og trúarbragða og sjálfs- mynd og sjálfsvitund fólks í fjöl- menningarsamfélagi nútímans. Höfundur: Ayad Akhtar Skrifað árið 2012 Verðlaun: Obie Award, Pulitzer Prize og Joseph Jefferson Awards Leikstjóri íslenskrar uppsetn- ingar: Þorsteinn Bachman Leikarar: Jónmundur Grétarsson, Salóme R. Gunnarsdóttir, Magnús Jónsson, Tinna Björt Guðjóns- dóttir og Hafsteinn Vilhelmsson. Hlutirnir þurfa ekki alltaf að snúast um dökk Hlutverk og Hvít Hlutverk. annars staðar í evrópu eru Hlutirnir komnir lengra. dökkir leikar- ar eru að leika Hamlet eða Hvað sem er. við erum íslensk og þetta á ekki að skipta máli. Jonni maður var bara farinn að trúa því að maður væri einHver körfu- boltamaður frá CHiC- ago sko. maður var alltaf í Jordan-treyJu. Hafsteinn ↣ 7 . o k t ó b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r32 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð 0 7 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :4 4 F B 1 2 0 s _ P 1 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D E C -1 6 7 0 1 D E C -1 5 3 4 1 D E C -1 3 F 8 1 D E C -1 2 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 2 0 s _ 6 _ 1 0 _ 2 0 1 7 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.