Fréttablaðið - 07.10.2017, Side 82
Hvers vegna sóttir
þú um Bata-
skólann? Ég
er með mikla
kvíðaröskun og
þunglyndi. Ég hef
verið í Hugarafli
síðan í fyrra og mér
finnst Bataskólinn næsta skref til að
fara út í lífið.
Hvernig er hann ólíkur öðrum
skólum? Við sitjum á skólabekk og
fáum verkefni. Þetta er mjög ein-
staklingsmiðað og mjög skipulagt.
Þetta er eins og að vera kominn í
skóla í sjálfum sér. Við fáum líka
upplýsingar um réttindi okkar og
mörg svör um sjúkdómana sem við
erum haldin.
Hvað langar þig til að breytist í
lífi þínu með námi í Bataskólanum?
Bataskólinn er ákveðinn áfangi í
átt að betra lífi og þar mætir fólk
virðingu og jákvæðum stuðningi.
Ég sé nú möguleika sem ég sá ekki
áður. Ég mæli með skólanum fyrir
alla sem berjast við geðraskanir.
Hvers vegna sóttir þú
um Bataskólann?
Ég var í öðru
úrræði og frétti
af Bataskólanum
þar. Ég sótti strax
um og hef verið í
skólanum síðan hann
byrjaði.
Hvernig er hann ólíkur öðrum
skólum? Kennararnir styðja við mann
og hjálpa manni að skilja veikindin
betur. Ég greindist með kvíða og það
að mæta og hlusta hefur hjálpað mér
að takast á við daglegt líf og líðan og
að sjá nýjar leiðir.
Hvernig líkar þér skólinn? Myndir
þú mæla með honum við aðra? Mér
líkar mjög vel í skólanum, finnst þetta
frábær viðbót við það sem er í boði. Ég
myndi hiklaust mæla með Bataskól-
anum við aðra sem eru í sömu stöðu.
Hvað langar þig til að breytist í
lífi þínu með námi í Bataskólanum?
Mig langar til að ná betri tökum á
veikindum mínum og geta orðið
aðeins virkari í samfélaginu.
Eftir því sem ég
fræðist meira, og
skilningurinn eykst,
þeim mun betur gengur
daglegt líf.
Jóhanna Sturludóttir
Næsta
skref út í lífið
Ásthildur Kristjánsdóttur
sér möguleika sem
hún sá ekki áður.
Hvers vegna sóttir þú um Bataskól-
ann? Ég hafði heyrt um Bataskólann
í Bretlandi og það vakti áhuga minn
að nemendurnir fá að koma að
mótun hans.
Hvernig er hann ólíkur öðrum
skólum? Þetta eru ekki bara fræði
heldur er reynsla annarra nemenda
líka til umfjöllunar, hvort sem um
einstaklinginn með áskoranirnar
eða aðstandandann er að ræða. Það
má segja að námið og námsefnið
gangi nær manni en annað nám, því
það kallar á að horfast í augu við sitt
eigið líf.
Hvernig líkar þér skólinn?
Mjög vel, mér finnst góður andi í
hópnum. Allir eru velkomnir og
öllum sýnd virðing, hópurinn er
fjölbreyttur og ólík sjónarmið fá að
heyrast.
Myndir þú mæla með honum
við aðra? Já, bæði við þá sem eru
að fást við geðrænar áskoranir og
aðstandendur. Námskeiðin eru
mjög vel unnin og bæði studd
rannsóknum og innleggi þeirra sem
reynsluna hafa sem er mjög mikil-
vægt. Fræðslan og skilningurinn á
sinni eigin áskorun finnst mér eiga
stærstan þátt í að hægt sé að vera í
bata.
Hvað langar þig til að breytist í
lífi þínu með námi í Bataskólanum?
Eftir því sem ég fræðist meira og
skilningurinn eykst, þeim mun
betur gengur daglegt líf. Það getur
verið óþægilegt að horfast í augu við
sjálfan sig og sínar áskoranir en það
er nauðsynlegt og ég nota oft orðin:
„Eina leiðin er í gegn.“ Allir vilja taka
þátt í samfélaginu en það verður að
vera á forsendum hvers og eins. Það
er mikilvægt að allir komist í ein-
hverja virkni og einangrist ekki.
Horfst í augu við eigið líf
Jóhönnu Sturludóttur finnst aðkoma nemenda að náminu mikilvæg.
Áfangi í átt að betra lífi
Bataskólinn býður upp á úrval af skemmtilegum og fjölbreytilegum námskeiðum fyrir fólk í
bata frá geðröskunum og aðstandendur þess. Einu kröfurnar eru jákvætt viðhorf og virðing fyrir
starfsfólki og samnemendum. Hér segja nokkrir nemendur frá reynslu sinni af skólanum.
Jóhanna Sturludóttir telur mikilvægt að fólk komist í virkni og einangrist ekki.
Frábær viðbót
við annað
sem er í boði
Sigrún Bjarnadóttir vill
verða virkari í samfélaginu.
08.30 – 08.45 Opnunarávarp
Óttarr Proppé, heilbrigðisráðherra.
08.45 – 09.00 Börn í brennidepli
Anna Gunnhildur Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Geðhjálpar.
09.00 – 09.25 Áhrif áfalla í æsku á geðheilsu fullorðinna – kostnaður samfélagsins
Karen Hughes, sérfræðingur hjá heilsugæslu Wales.
09.25 – 09.50 Íslensk barnavernd – betur má ef duga skal
Steinunn Bergmann, félagsráðgjafi og sérfræðingur hjá Barnaverndarstofu.
09.50 – 10.15 Aðgengi að sjálfræðiþjónustu innan heilsugæslunnar – framtíðarsýn
Agnes Agnarsdóttir, sálfræðingur og fagstjóri sálfræðiþjónustu hjá heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins.
10.15 – 10.35 Kaffi
10.35 – 11.00 Átak norskra stjórnvalda í innleiðingu geðheilbrigðisþjónustu fyrir 0-3 ára
Kari Slinning sálfræðingur og dósent í þróunarsálfræði við háskólann í Ósló.
11.00 – 11.25 Rannsókn á högum 7 ára barna foreldra með geðrofasjúkdóma í Danmörku.
Ditte Ellersgaard, doktorsnemi í læknisfræði og rannsakandi.
11.25 – 11.50 Meðferðarúrræði fyrir fjölskyldur hælisleitenda í kjölfar áfalla í heimalandinu
Auður Ósk Guðmundsdóttir, fjölskylduþerapisti hjá mannréttindasamtökunum
Freedom from torture í Glasgow.
11.50 – 12.10 Okkar rödd – viðbrögð og tillögur til úrbóta.
Fanney Björk Ingólfsdóttir, Magnús Friðrik Guðrúnarson og Andrea Sif Jónsdóttir Hauth.
12.10 – 13.00 Matarhlé
Málstofa A
Börn frá 0-6 ára
Málstofustjóri Gunnlaug Thorlacius félagsráðgjafi og fjölskyldufræðingur á geðsviði LSH.
13.00 – 13.20 1001 dagur í lífi hvers barns
Anna María Jónsdóttir, geðlæknir á Landspítalanum og Miðstöð foreldra og barna.
13.20 – 13.40 Sálfræðiþjónusta í mæðra- og ungbarnavernd í nútíð og framtíð
Sólrún Ósk Lárusdóttir, sálfræðingur hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðsins.
13.40 – 14.00 Fjölþættur vandi og þjónusta – ólíkar þarfir á ólíkum tímum
Dr. Evald Sæmundsen, sálfræðingur og sviðsstjóri rannsókna hjá Greiningar-
og ráðgjafastöð ríkisins.
14.00 – 14.15 Spurningar & svör
Málstofa B
Börn frá 12-18 ára
Málstofustjóri Þorsteinn Guðmundsson leikari og verkefnisstjóri Bataskóla Íslands?
13.00 – 13.20 Geðrækt í skólastarfi – er hlutverk grunnskólans að efla geðheilsu og vellíðan?
Sigrún Daníelsdóttir, sálfræðingur og verkefnisstjóri geðræktar hjá embætti landlæknis.
13.20 – 13.40 Betri þjónusta við börn með hegðunar- og vímuefnavanda.
Halldór Hauksson, sálfræðingur og sviðsstjóri meðferðar- og fóstursviðs
hjá Barnaverndarstofu.
13.40 – 14.00 Sjálfsskaðahegðun unglinga, áhrif á foreldra og fjölskyldu – hvað er til ráða?
Vilborg G. Guðnadóttir, hjúkrunarfræðingur, fjölskylduþerapisti og handleiðari.
14.00 – 14.15 Spurningar & svör
14.15 – 14.30 Kaffihlé.
Málstofa C
Börn frá 6-12 ára
Málstofustjóri Ólöf Birna Björnsdóttir fjölskyldufræðingur og ráðgjafi hjá Geðhjálp
14.30 – 14.50 Áskoranir í skólaþjónustu
Dr. Bergljót Gyða Guðmundsdóttir sálfræðingur á Þjónustumiðstöð Breiðholts.
14.50 – 15.10 Einstaklingsmiðuð úrræði við hegðunarvanda í skólum
Sesselja Árnadóttir menntunarfræðingur og kennari við Auðarskóla, Búðardal.
Meðhöfundur: dr. Anna-Lind Pétursdóttir, dósent við Menntavísindasvið HÍ.
15.10 – 15.30 Þróun þjónustu BUGL við yngri börn, m.a. með hliðsjón af COS (circle of security)
Unnur Valdimarsdóttir, leikskólasérkennari og fjölskylduþerapisti.
Ástríður Thorarensen þroskaþjálfi, listmeðferðarfræðingur og fjölskylduþerapisti.
15.30 – 15.50 Framtíð annars stigs þjónustu og hlutverk Þroska- og hegðunarstöðvar
Dr. Gyða Haraldsdóttir, sálfræðingur og forstöðumaður Þroska- og hegðunarstöðvar.
15.50 – 16.05 Spurningar & svör
Málstofa D
Ungt fólk frá 18-24 ára
Málstofustjóri Þorsteinn Guðmundsson leikari og verkefnisstjóri Bataskóla Íslands
14.30 – 14.50 Sérhæfð þjónusta fyrir ungt fólk – lærdómur og markmið
Nanna Briem, yfirlæknir á Laugarásnum, sérhæfðri deild fyrir ungt fólk
með geðrofssjúkdóma
14.50 – 15.10 Sálfræðiþjónusta í framhaldsskólum – horft fram á veginn
Bóas Valdórsson sálfræðingur við Menntaskólann við Hamrahlíð.
15.10 – 15.30 Ungir karlmenn – einangrun – geðheilsa.
Halldóra Jónsdóttir, geðlæknir og yfirlæknar á bráðadeild og bráðamóttöku
Landspítalans.
15.30-15.50 Ungt fólk með geðraskanir og þátttaka á vinnumarkaðinum –
þurfum við að hafa áhyggjur?
Linda Bára Lýðsdóttir, sálfræðingur og sviðsstjóri mats og þjálfunar
hjá Virk starfsendurhæfingarsjóði.
15.50 – 16.05 Spurningar & svör
16.05-16.15. Ráðstefnulok
Þátttakendur eru vinsamlega beðnir um að skrá sig á málþingið með því að senda tölvupóst
með nafni þátttakanda og nafni og kennitölu greiðanda á verkefnisstjori@gedhjalp.is.
Aðgangseyrir kr. 3.500, frítt fyrir félaga í Geðhjálp.
Ráðstefna Geðhjálpar um geðheilbrigðisþjónustu við börn og ungmenni á Íslandi
Gullteigur, Grand Hótel 17. október 2017.
Fundarstjóri Þorsteinn Guðmundsson leikari og verkefnisstjóri Bataskóla Íslands
Börnin okkar!
6 GEÐHJÁLP 7 . O K TÓ B E R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
0
7
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
E
C
-9
6
D
0
1
D
E
C
-9
5
9
4
1
D
E
C
-9
4
5
8
1
D
E
C
-9
3
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
0
s
_
6
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K