Fréttablaðið - 07.10.2017, Side 86

Fréttablaðið - 07.10.2017, Side 86
Vilborg býr í mið-borginni en þó á frið-sælum stað í bakhúsi. Kettir stukku til og frá upp á hlið og steina og vísuðu veginn að rauðmálaðri hurðinni. Skildu blaða- mann eftir þar. Annars er ekki víst að hann hefði ratað. Í húsinu er mikið um að vera, það er síðla dags. Dóttir hennar og vin- kona eru á leiðinni út og heilsa blaða- manni. Það er rætt um nesti og skutl og ýmislegt umstang. Kærasti Vil- borgar, Þorgrímur Pétursson, stendur í eldhúsinu og lagar te. Vilborg missti eiginmann sinn, Björgvin Ingimarsson, sálfræðing og kennara, úr krabbameini árið 2013. Hún hefur miðlað reynslu sinni ríku- lega, skrifaði um hana bók, stofnaði með fleirum samtökin Ljónshjarta fyrir fólk sem hefur misst maka í blóma lífsins og ferðast um land allt og leiðbeint fólki í sorg. „Skrítið hvernig lífið fer,“ segir Vil- borg eftir að 13 ára dóttir hennar og vinkona hafa kvatt. „Ég er viss um að einhver stýrir þessu öllu saman.“ Hún segir frá því að vinkona dóttur hennar hafi nýverið misst móður sína. Hún sé af lettneskum uppruna og eigi ekki aðra að hér á landi en sextán ára systur og tvo eldri bræður sem munu brátt fá forræði yfir henni. „Hún hefur verið heimagangur hér síðustu tvö árin, bjó áður á Vitastíg en er flutt til bróður síns í Breiðholti og við hjálpumst öll að. Hún mun halda áfram að ganga í sama skóla, Austurbæjarskóla. Ég veit nefnilega að þegar öll jörðin titrar og skelfur, þá er gott að hafa lífið í eins föstum skorðum og kostur er,“ segir Vilborg. „Mér finnst hreinlega engin tilviljun að einmitt þær tvær séu vinkonur sem geta stutt hvor aðra núna. Að þessi stúlka sé hér og ég með öll síma- númerin sem þarf að hringja í, geti leiðbeint þessum ungu systkinum sem þekkja ekki hvað þarf að gera. Og eiga ekki að þurfa að þekkja það. Það er enn erfiðara að vera í þessum aðstæðum og frá öðru landi,“ segir Vilborg. „Ég hef haldið fyrirlestra um allar trissur. Oft hafa prestar fengið mig til að koma og halda erindi í kirkjum. Jafningjahjálp er svo dýrmæt.“ Hvað segir þú við fólk? „Ég segi því mína sögu. Ég segi því hvað gerðist í mínu lífi. Hvernig ég og Björgvin heitinn litum á gönguna með drek- anum í kolli hans. Við ákváðum að líta á þetta sem áhugavert ævintýri. Í stað þess að segja ,,þetta er hræði- legt!“ Við fórum aldrei út í þetta átakatal, að berjast eða horfa á sjúk- dóm sem stríð. Það tekur alla orku frá manni. Ég segi fólki frá okkar ævintýri og hvað var þó gott í okkar aðstæðum. Og hvernig ég hef upp- lifað það að sitja með manni mínum hans síðustu daga og ganga í hlutverk ekkju. Hvað ég hef lært af þessu. Hvað sorgin dýpkar mann sem manneskju. Í einu vetfangi eignastu skilning á því sem gríðarlegur fjöldi annarra hefur gengið í gegnum. Þetta er dálítið eins og þegar þú átt von á barni og reynir að ímynda þér hvernig það er að vera móðir en gerir það ekki í raun fyrr en þú held- ur á barninu. Þá skilur þú það með hjarta, lifur og lungum. Þú öðlast dýpri skilning á því hvað það er að vera manneskja. Þú skilur að lífið er leiftur, að við megum ekki sóa einu einasta andartaki. Ég sjálf fór að lifa af meiri krafti og dýpt en áður. Það er svo yndislegt að vera til.“ Ný bók Vilborgar, Blóðug jörð, kemur úr prentun eftir helgi. „Mig langar að vekja fólk til umhugsunar um hvað fólkið sem byggði Ísland lagði mikið undir í von um betra líf. Það er ráð að hugsa til sögu okkar nú þegar fólk á flótta undan hörmung- um leitar hér skjóls. Þessi síðasta bók um Auði djúpúðgu er því tileinkuð flóttafólki á öllum tímum. Enda var hún flóttakona sjálf,“ segir Vilborg. ,,Þessi kona á engan sinn líka í landnámssögu Íslands. Þó er hún ekki sú eina, fleiri konur komu til Íslands og námu hér land en saga hennar er einstök á svo margan hátt. Ekki síst fyrir það að hún er kristin og gefur þrælum sínum frelsi og jarð- næði þegar hún kemur til Íslands. Það er einstakt,“ segir Vilborg. „Svo er það ættgöfgi hennar. Hún er drottning. Maðurinn hennar var konungur í Dyflinni á Írlandi. Þau áttu einn son saman sem sjálfur eignaðist sex dætur og einn son með sinni konu. Það hlýtur að hafa verið erfitt á þessum tíma þegar það eina sem skipti máli var að eignast syni. Að eignast dætur var dýrt því það þurfti að greiða með þeim heiman- fylgju, þetta hafa verið sexföld von- brigði liggur við. En þær fá allar að Lífið er leiftur Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur hefur gefið út nýja bók, Blóðug jörð, og lýkur þar með þríleiknum um Auði djúpúðgu. Bókin er til- einkuð flóttafólki. Vilborg hefur stutt við fólk í sorg eftir að hafa tekist á við missi og er sterkari eftir að hún skildi að lífið er leiftur. „Síðasta bók um Auði er tileinkuð flóttafólki á öllum tímum. Enda var hún flóttakona sjálf,“ segir Vilborg frá og segir Auði djúpúðgu einstaka fyrirmynd íslenskra kvenna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM lifa og það á tímum þegar útburður barna er hluti af veruleikanum, sér- staklega stúlkna.“ Og hún segir frá hættuförinni til Íslands. „Auður siglir frá Skotlandi með sjö ung sonarbörn eftir að sonur hennar fellur þar í bardaga, svikinn af Skot- um. Hún þarf því að flýja land í leyn- um á ófriðartímum. Fara í ferð sem fólk fer ekki í nema líf liggi við. Það var yfir úthaf að fara á opnum tré- skipum, án siglingartækja af nokkru tagi. Mögulega hafði fólk eins konar áttavita, sólarstein eða kristal sem var hægt að nota þegar skýjað var til að sjá stöðu sólar. Og eini siglingatíminn er frá vori fram á síðsumar,“ segir Vil- borg og tekur dæmi af siglingu Eiríks rauða sem fer öld síðar frá Borgarfirði til Grænlands. „Í einu best heppnaða markaðsátaki allra tíma þá fær hann eigendur 25 skipa til að leggja af stað með sér í landnámsför til Græn- lands. Fjórtán af þessum skipum komust alla leið. Ellefu annaðhvort fórust eða rak til baka aftur og auð- vitað mun styttri leið frá Borgarfirði til Grænlands en yfir úthafið frá Bret- landi. Við heyrum aldrei sögur af öllu fólkinu sem fórst í hafi.“ Vilborg hefur ferðast um sögu- slóðirnar í Bretlandi og Færeyjum, sökkt sér ofan í annála og skrif sagn-, þjóð- og fornleifafræðinga. „Það er stundum svolítið mikið haft fyrir litlum hlutum: ég kynnti mér til dæmis vandlega vinnuna á bak við gerð segls fyrir víkingaskip þótt afraksturinn sé ekki nema ein eða tvær setningar. Mér finnst mikil- vægt að reyna að komast sem næst því hvernig lífið var. Ég reyni samt að stilla mig um að fræða fólk; sögu- framvindan og sannfærandi persónur skipta vitanlega miklu meira máli en hitt. Heimildir um Auði eru ekki miklar. Það sem er skrifað um hana í Íslend- ingasögum kemst fyrir á tíu blað- síðum,“ segir Vilborg og nefnir að Landnáma og Laxdæla geymi hvað ítarlegustu heimildirnar. „Oft eru þetta bara fáeinar línur þar sem er verið að leggja áherslu á það að hún er formóðirin. Um leið og það er búið að nefna Auði djúpúðgu þá er búið að staðfesta það að þetta er aðalsætt. Gott kyn. En oft glittir í smáatriði. Sonur hennar heitir Þorsteinn rauð- ur. Það fær enginn það viðurnefni nema að vera rauðhærður sem hlýtur að skila sér til dætranna líka. Pabbi hans heitir Ólafur hvíti. Það er nátt- úrulega bjarthærður maður. Þannig að útlitseinkennin fæ ég líka. Þá er lagt svolítið í það í Laxdælu að lýsa hennar hinstu dögum. Það er drottn- ingarlýsing: kona sem boðar til sín alla ættina. Hún á systur í Eyjafirði, Þórunni hyrnu sem var gift Helga magra. Svo eru það bræður hennar, Helgi bjólan á Kjalarnesi og Björn austræni í Bjarnarhöfn. Hún kallar alla til sín, frændfólk og vini til þess að vera við brúðkaup sonarsonarins sem hét Ólafur feilan. Hún gefur þeim heilræði og segir svo þegar veislan er hafin að hún eigi að standa í þrjá daga enn og vera erfisdrykkja sín. Þarna tilkynnir hún fólkinu sínu að hún sé að deyja. Svo gengur hún til skemmu sinnar, hraðstíg, ber sig vel og menn höfðu á orði hversu virðu- leg konan væri. Svo er sagt frá því að þegar Ólafur feilan kemur að henni morguninn eftir þá situr hún uppi við hægindin dáin,“ segir Vilborg og segir lýsinguna benda til þess að þarna hafi farið stolt kona. „Auður var einstök fyrirmynd. Á þessum tíma voru konur eign föður þar til þær voru gefnar eiginmanni og tilheyrðu honum eftir það. Sá karl- maður sem næst stóð konu hafði for- ræði yfir henni, líkt og í Sádi-Arabíu í dag. Í þessu karla- og feðraveldi er saga Auðar þeim mun magnaðri,“ bendir hún á. En lastu um kumlið sem fannst í Sví- þjóð? Höfðingjakuml og svo þegar það var gerð DNA greining kom í ljós að um var að ræða konu. „Já, þetta finnst mér verulega spennandi. Fornleifa- fræðin hefur alltaf kyngreint bein í kumlum eftir því hvort þar hafa fundist brjóstnælur eða vopn. Svo er verið að rannsaka þetta núna, hvert kumlið á eftir öðru og þá er að koma í ljós að konur eru stundum grafnar með sverð. Þetta verður nýtt í næstu bók, alveg örugglega,“ segir Vilborg og hlær við. „Saga kvenna frá þessum tíma geymir margt sem enn á eftir að koma í ljós. Og arfur Auðar felst í því hvað hún er og hefur verið mikilvæg fyrirmynd sem sterk kona. Þess vegna hafa sögurnar lifað og verið sagðar og lesnar öld eftir öld, ekki bara um Auði heldur afkomendur þessara systkina eins og langömmubarn Auðar, Hall- gerði langbrók og Guðrúnu Ósvífurs- dóttur, afkomanda bróður hennar. Þessar mögnuðu konur sem tóku örlögin í sínar eigin hendur tala til okkar ennþá. Þær voru ekki bara ráðstöfunargripir karla og höfðu eitt- hvað um líf sitt að segja. Þær hljóta að hafa áhrif á okkur.“ Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is VIÐ HEYRUM ALDREI SÖGUR AF ÖLLU FÓLKINU SEM FÓRST Í HAFI. 7 . O K T Ó B E R 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R38 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 7 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :4 4 F B 1 2 0 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D E C -6 F 5 0 1 D E C -6 E 1 4 1 D E C -6 C D 8 1 D E C -6 B 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 1 2 0 s _ 6 _ 1 0 _ 2 0 1 7 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.