Fréttablaðið - 07.10.2017, Page 86
Vilborg býr í mið-borginni en þó á frið-sælum stað í bakhúsi. Kettir stukku til og frá upp á hlið og steina og vísuðu veginn að
rauðmálaðri hurðinni. Skildu blaða-
mann eftir þar. Annars er ekki víst að
hann hefði ratað.
Í húsinu er mikið um að vera, það
er síðla dags. Dóttir hennar og vin-
kona eru á leiðinni út og heilsa blaða-
manni. Það er rætt um nesti og skutl
og ýmislegt umstang. Kærasti Vil-
borgar, Þorgrímur Pétursson, stendur
í eldhúsinu og lagar te.
Vilborg missti eiginmann sinn,
Björgvin Ingimarsson, sálfræðing og
kennara, úr krabbameini árið 2013.
Hún hefur miðlað reynslu sinni ríku-
lega, skrifaði um hana bók, stofnaði
með fleirum samtökin Ljónshjarta
fyrir fólk sem hefur misst maka í
blóma lífsins og ferðast um land allt
og leiðbeint fólki í sorg.
„Skrítið hvernig lífið fer,“ segir Vil-
borg eftir að 13 ára dóttir hennar og
vinkona hafa kvatt. „Ég er viss um
að einhver stýrir þessu öllu saman.“
Hún segir frá því að vinkona dóttur
hennar hafi nýverið misst móður
sína. Hún sé af lettneskum uppruna
og eigi ekki aðra að hér á landi en
sextán ára systur og tvo eldri bræður
sem munu brátt fá forræði yfir henni.
„Hún hefur verið heimagangur hér
síðustu tvö árin, bjó áður á Vitastíg
en er flutt til bróður síns í Breiðholti
og við hjálpumst öll að. Hún mun
halda áfram að ganga í sama skóla,
Austurbæjarskóla. Ég veit nefnilega
að þegar öll jörðin titrar og skelfur,
þá er gott að hafa lífið í eins föstum
skorðum og kostur er,“ segir Vilborg.
„Mér finnst hreinlega engin tilviljun
að einmitt þær tvær séu vinkonur
sem geta stutt hvor aðra núna. Að
þessi stúlka sé hér og ég með öll síma-
númerin sem þarf að hringja í, geti
leiðbeint þessum ungu systkinum
sem þekkja ekki hvað þarf að gera.
Og eiga ekki að þurfa að þekkja það.
Það er enn erfiðara að vera í þessum
aðstæðum og frá öðru landi,“ segir
Vilborg.
„Ég hef haldið fyrirlestra um allar
trissur. Oft hafa prestar fengið mig til
að koma og halda erindi í kirkjum.
Jafningjahjálp er svo dýrmæt.“
Hvað segir þú við fólk? „Ég segi því
mína sögu. Ég segi því hvað gerðist
í mínu lífi. Hvernig ég og Björgvin
heitinn litum á gönguna með drek-
anum í kolli hans. Við ákváðum að
líta á þetta sem áhugavert ævintýri.
Í stað þess að segja ,,þetta er hræði-
legt!“ Við fórum aldrei út í þetta
átakatal, að berjast eða horfa á sjúk-
dóm sem stríð. Það tekur alla orku
frá manni. Ég segi fólki frá okkar
ævintýri og hvað var þó gott í okkar
aðstæðum. Og hvernig ég hef upp-
lifað það að sitja með manni mínum
hans síðustu daga og ganga í hlutverk
ekkju. Hvað ég hef lært af þessu. Hvað
sorgin dýpkar mann sem manneskju.
Í einu vetfangi eignastu skilning á því
sem gríðarlegur fjöldi annarra hefur
gengið í gegnum.
Þetta er dálítið eins og þegar þú
átt von á barni og reynir að ímynda
þér hvernig það er að vera móðir en
gerir það ekki í raun fyrr en þú held-
ur á barninu. Þá skilur þú það með
hjarta, lifur og lungum. Þú öðlast
dýpri skilning á því hvað það er að
vera manneskja. Þú skilur að lífið er
leiftur, að við megum ekki sóa einu
einasta andartaki. Ég sjálf fór að lifa
af meiri krafti og dýpt en áður. Það
er svo yndislegt að vera til.“
Ný bók Vilborgar, Blóðug jörð,
kemur úr prentun eftir helgi. „Mig
langar að vekja fólk til umhugsunar
um hvað fólkið sem byggði Ísland
lagði mikið undir í von um betra líf.
Það er ráð að hugsa til sögu okkar nú
þegar fólk á flótta undan hörmung-
um leitar hér skjóls. Þessi síðasta bók
um Auði djúpúðgu er því tileinkuð
flóttafólki á öllum tímum. Enda var
hún flóttakona sjálf,“ segir Vilborg.
,,Þessi kona á engan sinn líka í
landnámssögu Íslands. Þó er hún
ekki sú eina, fleiri konur komu til
Íslands og námu hér land en saga
hennar er einstök á svo margan hátt.
Ekki síst fyrir það að hún er kristin
og gefur þrælum sínum frelsi og jarð-
næði þegar hún kemur til Íslands.
Það er einstakt,“ segir Vilborg.
„Svo er það ættgöfgi hennar. Hún
er drottning. Maðurinn hennar var
konungur í Dyflinni á Írlandi. Þau
áttu einn son saman sem sjálfur
eignaðist sex dætur og einn son með
sinni konu. Það hlýtur að hafa verið
erfitt á þessum tíma þegar það eina
sem skipti máli var að eignast syni.
Að eignast dætur var dýrt því það
þurfti að greiða með þeim heiman-
fylgju, þetta hafa verið sexföld von-
brigði liggur við. En þær fá allar að
Lífið er leiftur
Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur hefur gefið út nýja bók, Blóðug
jörð, og lýkur þar með þríleiknum um Auði djúpúðgu. Bókin er til-
einkuð flóttafólki. Vilborg hefur stutt við fólk í sorg eftir að hafa
tekist á við missi og er sterkari eftir að hún skildi að lífið er leiftur.
„Síðasta bók um Auði er tileinkuð flóttafólki á öllum tímum. Enda var hún flóttakona sjálf,“ segir Vilborg frá og segir Auði djúpúðgu einstaka fyrirmynd íslenskra kvenna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
lifa og það á tímum þegar útburður
barna er hluti af veruleikanum, sér-
staklega stúlkna.“ Og hún segir frá
hættuförinni til Íslands.
„Auður siglir frá Skotlandi með sjö
ung sonarbörn eftir að sonur hennar
fellur þar í bardaga, svikinn af Skot-
um. Hún þarf því að flýja land í leyn-
um á ófriðartímum. Fara í ferð sem
fólk fer ekki í nema líf liggi við. Það
var yfir úthaf að fara á opnum tré-
skipum, án siglingartækja af nokkru
tagi. Mögulega hafði fólk eins konar
áttavita, sólarstein eða kristal sem var
hægt að nota þegar skýjað var til að
sjá stöðu sólar. Og eini siglingatíminn
er frá vori fram á síðsumar,“ segir Vil-
borg og tekur dæmi af siglingu Eiríks
rauða sem fer öld síðar frá Borgarfirði
til Grænlands. „Í einu best heppnaða
markaðsátaki allra tíma þá fær hann
eigendur 25 skipa til að leggja af stað
með sér í landnámsför til Græn-
lands. Fjórtán af þessum skipum
komust alla leið. Ellefu annaðhvort
fórust eða rak til baka aftur og auð-
vitað mun styttri leið frá Borgarfirði
til Grænlands en yfir úthafið frá Bret-
landi. Við heyrum aldrei sögur af öllu
fólkinu sem fórst í hafi.“
Vilborg hefur ferðast um sögu-
slóðirnar í Bretlandi og Færeyjum,
sökkt sér ofan í annála og skrif
sagn-, þjóð- og fornleifafræðinga.
„Það er stundum svolítið mikið haft
fyrir litlum hlutum: ég kynnti mér
til dæmis vandlega vinnuna á bak
við gerð segls fyrir víkingaskip þótt
afraksturinn sé ekki nema ein eða
tvær setningar. Mér finnst mikil-
vægt að reyna að komast sem næst
því hvernig lífið var. Ég reyni samt
að stilla mig um að fræða fólk; sögu-
framvindan og sannfærandi persónur
skipta vitanlega miklu meira máli en
hitt.
Heimildir um Auði eru ekki miklar.
Það sem er skrifað um hana í Íslend-
ingasögum kemst fyrir á tíu blað-
síðum,“ segir Vilborg og nefnir að
Landnáma og Laxdæla geymi hvað
ítarlegustu heimildirnar. „Oft eru
þetta bara fáeinar línur þar sem er
verið að leggja áherslu á það að hún
er formóðirin. Um leið og það er búið
að nefna Auði djúpúðgu þá er búið
að staðfesta það að þetta er aðalsætt.
Gott kyn. En oft glittir í smáatriði.
Sonur hennar heitir Þorsteinn rauð-
ur. Það fær enginn það viðurnefni
nema að vera rauðhærður sem hlýtur
að skila sér til dætranna líka. Pabbi
hans heitir Ólafur hvíti. Það er nátt-
úrulega bjarthærður maður. Þannig
að útlitseinkennin fæ ég líka. Þá er
lagt svolítið í það í Laxdælu að lýsa
hennar hinstu dögum. Það er drottn-
ingarlýsing: kona sem boðar til sín
alla ættina. Hún á systur í Eyjafirði,
Þórunni hyrnu sem var gift Helga
magra. Svo eru það bræður hennar,
Helgi bjólan á Kjalarnesi og Björn
austræni í Bjarnarhöfn. Hún kallar
alla til sín, frændfólk og vini til þess
að vera við brúðkaup sonarsonarins
sem hét Ólafur feilan. Hún gefur
þeim heilræði og segir svo þegar
veislan er hafin að hún eigi að standa
í þrjá daga enn og vera erfisdrykkja
sín. Þarna tilkynnir hún fólkinu sínu
að hún sé að deyja. Svo gengur hún til
skemmu sinnar, hraðstíg, ber sig vel
og menn höfðu á orði hversu virðu-
leg konan væri. Svo er sagt frá því að
þegar Ólafur feilan kemur að henni
morguninn eftir þá situr hún uppi
við hægindin dáin,“ segir Vilborg
og segir lýsinguna benda til þess að
þarna hafi farið stolt kona.
„Auður var einstök fyrirmynd. Á
þessum tíma voru konur eign föður
þar til þær voru gefnar eiginmanni
og tilheyrðu honum eftir það. Sá karl-
maður sem næst stóð konu hafði for-
ræði yfir henni, líkt og í Sádi-Arabíu
í dag. Í þessu karla- og feðraveldi er
saga Auðar þeim mun magnaðri,“
bendir hún á.
En lastu um kumlið sem fannst í Sví-
þjóð? Höfðingjakuml og svo þegar það
var gerð DNA greining kom í ljós að
um var að ræða konu. „Já, þetta finnst
mér verulega spennandi. Fornleifa-
fræðin hefur alltaf kyngreint bein
í kumlum eftir því hvort þar hafa
fundist brjóstnælur eða vopn. Svo er
verið að rannsaka þetta núna, hvert
kumlið á eftir öðru og þá er að koma
í ljós að konur eru stundum grafnar
með sverð. Þetta verður nýtt í næstu
bók, alveg örugglega,“ segir Vilborg
og hlær við. „Saga kvenna frá þessum
tíma geymir margt sem enn á eftir að
koma í ljós. Og arfur Auðar felst í því
hvað hún er og hefur verið mikilvæg
fyrirmynd sem sterk kona. Þess vegna
hafa sögurnar lifað og verið sagðar og
lesnar öld eftir öld, ekki bara um Auði
heldur afkomendur þessara systkina
eins og langömmubarn Auðar, Hall-
gerði langbrók og Guðrúnu Ósvífurs-
dóttur, afkomanda bróður hennar.
Þessar mögnuðu konur sem tóku
örlögin í sínar eigin hendur tala til
okkar ennþá. Þær voru ekki bara
ráðstöfunargripir karla og höfðu eitt-
hvað um líf sitt að segja. Þær hljóta að
hafa áhrif á okkur.“
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
VIÐ HEYRUM ALDREI
SÖGUR AF ÖLLU FÓLKINU
SEM FÓRST Í HAFI.
7 . O K T Ó B E R 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R38 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
7
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
E
C
-6
F
5
0
1
D
E
C
-6
E
1
4
1
D
E
C
-6
C
D
8
1
D
E
C
-6
B
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
2
0
s
_
6
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K