Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.10.2017, Qupperneq 88

Fréttablaðið - 07.10.2017, Qupperneq 88
Halldór heilsar heimamanni í Tógó. Börn í Gana.Á l iðinn sunnudag í september 2013 tínast farþegar í brottfararsalinn á Charles de Gaulle-flugvellinum í París. Þeir eru á leið í flug 451 til Dakar, höfuðborgar Senegal, og draga dám af áfangastað sínum. Klæðnaður í öllum regnbogans litum, karlar með fez-hatt á höfði og konur með slæður. Framandi skeggsnið. Stúlka á heimleið sest við hlið mér og tekur upp úr skjóðu sinni nýútkomna ævisögu Steve Jobs. Maðurinn gegnt okkur les Kóraninn. Áætlaður flug- tími sex klukkustundir.“ Með þessum orðum hefst ferða- saga Halldórs Friðriks Þorsteins- sonar, Rétt undir sólinni. Frásögn af sex mánaða ferðalagi hans um Afríku. Halldór starfaði á verðbréfa- markaði um árabil áður en hann hóf að ferðast um heiminn. Hann fann fyrir kulnunareinkennum í starfi. „Ég varð að skipta um gír og breyta um rútínu. Ég var farinn að finna fyrir kulnunareinkennum,“ segir Halldór sem fór fyrst í langar ferðir um Asíu og Eyjaálfu. „Ég ferðast einn, það er svo merkilegt hvað það styrkir mann og stælir. Ég ferðaðist með það markmið að læra eitthvað nýtt og komst að því hvað ströng ferðalög eru góð menntun. Þau breyta manni. Breyta hugsun, þankagangi og lífsstíl,“ segir Halldór. Þetta er í fyrsta sinn sem hann skrifar ferðasögu sína. Hann ferð- aðist til Afríku með dagbók og punktaði hjá sér á ferðalaginu. „Ég ætlaði mér alltaf að skrifa ferðasögu um þessa ferð. Fyrir mér þarf ferða- sagan að vera þannig að þú ferðast með höfundinum. Það eru engar ljósmyndir í bókinni og það er með ráðum gert. Ljósmyndirnar trufla ímyndunaraflið. Bókin snýst held- ur ekki um mig, þetta er leiðangur sem ég fer í með lesandanum,“ segir Halldór. Ólík veröld Halldór hóf ferðalagið vestast í álf- unni. „Þetta eru ólíkar heimsálfur sem ég hef ferðast til. Allar hafa þær sinn sjarma. En Afríka var áhrifamest. Það eru andstæðurnar í henni og fjöl- breytileikinn. Þessi ólíka veröld sem Afríka er frá því sem við þekkjum í Evrópu. Afríka kennir manni svo margt. Ég byrjaði í Vestur-Afríku og var þar í þrjá mánuði. Vestur-Afríka er krefjandi og það er erfitt að ferðast þar af ýmsum ástæðum. Helst vegna innviðanna sem eru veikari heldur en í Austur-Afríku, til dæmis. Þú sérð ekki marga ferðamenn í Vestur- Afríku, nema þá sem tengjast góð- gerðarmálum. Ég var tilbúinn í svo krefjandi ferð eftir reisur mínar um heiminn, en fyrir byrjendur þá mæli ég ekki með því að byrja í Vestur- Afríku,“ segir Halldór. „En þessi hluti ferðarinnar var mjög sterk og eftirminnileg upplifun. Mér finnst eftirsóknarvert að vera þar sem er lítill túrismi. Ég átti mjög góða daga í Gabon, landi sem fáir Íslendingar þekkja en kemur á óvart.“ Vísað úr landi Halldór lenti í ýmsum skrítnum, spaugilegum og forvitnilegum aðstæðum. „Það voru alls konar uppákomur auðvitað. Ég tók eitt sinn leigubíl að kvöldlagi og leigubíl- stjórinn rúntaði með mig og ferða- félaga minn í bílnum í góðan klukku- Ferðalög eru hugleiðsla Halldór Friðrik Þorsteinsson ferðaðist einn í Afríku í hálft ár og skrifaði um það ferða- sögu. Hann lenti í ýmsum skemmtilegum og forvitnilegum uppákomum. Hann segir mannbætandi að ferðast einn. Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is Mannlíf í Senegal. Halldór fær sér að drekka í Tógó. SVO VAR MÉR VÍSAÐ ÚR LANDI Í KAMERÚN, ÉG VAR Í ÞEIRRI TRÚ AÐ ÉG FENGI VEGABRÉFS- ÁRITUN EN ÉG FÉKK HANA EKKI. tíma að hótelinu. Þegar ég vakna um morguninn átta ég mig á því að staðurinn sem ég tók leigubílinn frá var nánast við hliðina á hótelinu,“ segir hann og hlær. „Svo var mér vísað úr landi í Kamerún, ég var í þeirri trú að ég fengi vegabréfsáritun en ég fékk hana ekki. Það var auðmýkjandi. Að vera vísað úr landi. Þeim leiddist ekkert að leiða mig, hvíta karlmanninn, út í flugvélina, það gleymist seint glottið á þeim,“ segir Halldór. Hann ferðaðist síðan austar og fór svo suður og lauk ferðalaginu í Suður-Afríku. „Eþíópía er eitt af þessum löndum sem stendur upp úr sökum fjölbreytileika. Ég var með ákveðnar ranghugmyndir um landið sem byggðust á gömlum fréttum um hungursneyð og fátækt. Maður hélt að þetta væri guðsvolað land en þarna er mikil menning, saga og yndislegt mannlíf,“ segir Halldór. Að kynnast sjálfum sér Hann er nýkominn heim og segir að þótt hann dvelji langdvölum frá fjölskyldu sinni njóti hún ferða- reynslunnar með óbeinum hætti. „Ég á þrjú börn á aldrinum 15 ára til 25 ára og hvet þau til ferðalaga og víðsýni. Ég átta mig betur á því sem skiptir máli í lífinu og vonandi nýtur fjölskyldan þess. Ég hvet þau að minnsta kosti til sama lífs og ég sé að þetta er vaxandi hjá ungu fólki. Að ferðast til að mennta sig og víkka sjóndeildarhringinn,“ segir Halldór. „Auðvitað eru ekki allir sem vilja fara út fyrir þægindarammann og ferðast einir. En ég mæli nú samt með því. Maður kynnist fleirum á leiðinni. Gömlum körlum eins og mér sjálf- um,“ segir hann og hlær. „En best er þegar maður nær að dvelja með heimafólki. Ég get allavega sagt að ég hafi gengið í endurnýjun lífdaga. Það var mjög góð breyting að brjóta upp þetta mynstur sem ég var fastur í. Ferðalög eru hugleiðsla, ég er einn með sjálfum mér. Í rauninni eru ferðalög mjög góð leið til að kynn- ast sjálfum sér. Tilgangurinn með þessari ferðasögu er fyrst og fremst að kynna töfra Afríku og sýna fólki að það að ferðast einn getur verið mjög gefandi.“ 7 . O K T Ó B E R 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R40 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 7 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :4 4 F B 1 2 0 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D E C -5 B 9 0 1 D E C -5 A 5 4 1 D E C -5 9 1 8 1 D E C -5 7 D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 2 0 s _ 6 _ 1 0 _ 2 0 1 7 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.