Fréttablaðið - 07.10.2017, Page 92
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurgeir Sigurðsson
fv. bæjarstjóri
Miðbraut 29, Seltjarnarnesi,
sem lést að heimili sínu þriðjudaginn
3. október, verður jarðsunginn frá
Seltjarnarneskirkju föstudaginn 13. október kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim sem
vildu minnast hans er bent á sjóð til styrktar æskulýðs-
og forvarnarstarfi íþróttafélagsins Gróttu.
Reiknnr. 0512-26-202252, kt. 700371-0779.
Margrét Sigurgeirsdóttir Héðinn Valdimarsson
Sigurður Ingi Sigurgeirsson Lóa Hjaltested
Þór Sigurgeirsson María Björk Óskarsdóttir
Hörður Sigurgeirsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær mamma, ammó og
langamma okkar,
Svanhildur Petra
Þorbjörnsdóttir
Sléttahrauni 32, Hafnarfirði,
lést á Landakoti 30.09. sl. Útförin fer fram
í Hafnarfjarðarkirkju 19.10. kl. 13.00.
Birna Arinbjarnardóttir
Edda Arinbjarnardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Halldóra Guðmundsdóttir
hjúkrunarfræðingur,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
aðfaranótt 2. október. Útförin fer fram
frá Seljakirkju þann 11. október kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem
vildu minnast hennar er bent á Barnaspítala Hringsins.
Atli Gunnar Jónsson
Anna María Jónsdóttir Guðlaugur Kr. Sigurðsson
Kristjón Jónsson Díana Hrönn Sigurfinnsdóttir
ömmu- og langömmubörnin.
Bestu þakkir fyrir auðsýnda samúð
við andlát og útför föður okkar,
Páls Ragnars Sigurðssonar
sem lést 24. ágúst síðastliðinn.
Við viljum sérstaklega þakka
starfsfólki líknardeildar Landspítalans
fyrir frábæra umönnun og andlegan
stuðning í gegnum ferlið.
Lifi hann í minningu okkar.
Stefanía Pálsdóttir
Ólafur Pálsson
Arna Pálsdóttir
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Útfararstofa kirkjugarðanna
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Við önnumst alla þætti undir-
búnings og framkvæmd útfarar
ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og
umhyggju að leiðarljósi
og af faglegum metnaði.
Lára Árnadóttir,
skrifstofustjóri
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Olgeir Olgeirsson
vélstjóri,
lést fimmtudaginn 5. október á
hjúkrunarheimilinu Eir.
Útförin fer fram í Grafarvogskirkju,
fimmtudaginn 12. október kl. 15.00.
Nanna Lára Pedersen
Reynir Olgeirsson Karlína Friðgeirsdóttir
Níels Sigurður Olgeirsson Ragnheiður Valdimarsdóttir
Sigrún Olgeirsdóttir Ásgeir Árnason
Bryndís Olgeirsdóttir Þorvaldur Hermannsson
Salvör Lára Olgeirsdóttir Þorsteinn Hilmarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Málhildur Þóra
Angantýsdóttir
sjúkraliði,
Kristnibraut 33,
sem lést 1. október, verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju föstudaginn 13. október klukkan 11.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á líknarfélög.
Angantýr Sigurðsson Erla Björk Gunnarsdóttir
Hallvarður Sigurðsson Anna Margrét Ingólfsdóttir
Elín Fríða Sigurðardóttir Davíð Þór Óskarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
7 . o k t ó b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r44 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Þessar fréttir fékk ég bara í gær (fyrradag) og er að reyna að átta mig á þeim. Þær komu mér ánægjulega á óvart,“ segir Inga Hlín
Pálsdóttir um tilnefningar sem
hún hefur hlotið í þremur flokkum
til Stevie Awards verðlaunanna,
sem ætluð eru framúrskarandi
konum í atvinnulífinu á heims-
vísu og verða afhent í New York
17. nóvember.
Hún stýrir markaðsmálum á sviði
ferðaþjónustu og skapandi greina
hjá Íslandsstofu sem er samstarfs-
vettvangur atvinnulífs og stjórn-
valda.
Flokkarnir sem hún er tilnefnd
í hjá Stevie Awards eru: Umbóta-
maður ársins, Stjórnandi ársins og
Kona ársins. „En ég er ekki búin að
fá verðlaunin,“ tekur hún fram.
Kveðst þó pottþétt fara út til
New York. „Það eru margir búnir
að hringja og bjóðast til að vera +1
með mér! En ég er ekki komin svo
langt að hugsa um þann þátt.“
Hverju þakkar hún þennan
heiður? „Rúna Magnúsdóttir heitir
konan sem tilnefndi mig. Ef ég las
rétt í gær þá eru 170 dómarar sem
fara í gegnum alla sem þykja hæfir
í þetta ferli og velja svo úr þeim.
Þetta er ekki netkosning.“
Inga kveðst hafa byrjað hjá
Útflutningsráði fyrir ellefu árum
og hjá Íslandsstofu fyrir sjö árum.
„Inspired by Iceland er raunveru-
lega mitt fyrsta markaðsverkefni
og ég hef stýrt því og þróað það.
Við notum það vörumerki í allri
markaðssetningu erlendis fyrir
ferðaþjónustuna og það verður
bara sterkara og sterkara. Á mánu-
daginn kynnum við nýja vegferð í
því verkefni.“
En Inga Hlín kveðst langt í frá
eiga heiðurinn ein. „Við erum að
vinna með hundruðum fyrirtækja
og áherslurnar eru afsprengi mik-
illar samvinnu og samtals. Ég tala
mikið erlendis og þar þykir sam-
starfið hér á landi sérstakt og að
við vinnum undir einu merki þykir
merkilegt. Aðrar þjóðir öfunda
okkur af því fyrirkomulagi.“
Engin íslensk kona hefur komist
svona langt í Stevie Awards en hin
danska Janne Sigurðsson hlaut gull-
verðlaun Stevie sem forstjóri ársins
2012. Hún var þá forstjóri Fjarðaáls
á Reyðarfirði.
gun@frettabladid.is
Er tilnefnd til alþjóðlegra verðlauna
Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu, er tilnefnd í þremur flokkum hjá hinum alþjóð-
legu heiðursverðlaunum kvenna í atvinnulífi, Stevie Awards. Flokkarnir eru Umbótamaður ársins, Stjórnandi ársins og Kona ársins.
„Það eru margir búnir að hringja í mig og bjóðast til að vera +1 með mér í ferðinni til New York um miðjan nóvember
en ég er ekki komin svo langt að hugsa um þann þátt,“ segir Inga Hlín hlæjandi. FréttablaðIð/ErNIr
0
7
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
E
C
-2
F
2
0
1
D
E
C
-2
D
E
4
1
D
E
C
-2
C
A
8
1
D
E
C
-2
B
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
2
0
s
_
6
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K