Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2017, Qupperneq 2
Vikublað 4.–6. apríl 20172 Fréttir
Við erum stolt af útgáfu á íslenskri tónlist
StudioNorn.is
Neydd til þess
að lyfta upp
kjól sínum
Mál indverskrar konu, sem er gift
íslenskum manni og búsett hér-
lendis, hefur vakið mikla athygli
og reiði á Indlandi. Konan, sem
heitir Shruti Basappa, var á flug-
vellinum í Frankfurt þegar hún
var tekin afsíðis af öryggisvörð-
um. Kröfðust þeir að hún lyfti
upp kjól sínum til þess að þeir
gætu gengið úr skugga um að
hún leyndi þar engu.
Fram kemur að Shruti hafi
verið á leiðinni til Íslands frá Ind-
landi ásamt eiginmanni sínum,
Eini Hlé Einarssyni, og fjögurra
ára dóttur þeirra. Shruti skrifaði
um reynslu sína á Facebook-síðu
sína þar sem hún greindi frá því
að hún væri alltaf tekin í öryggis-
leit á flugvöllum. Velti hún því
upp að líklega væri það út af húð-
lit hennar því eiginmaður hennar
væri aldrei stoppaður þegar þau
ferðuðust saman.
Indverskir fjölmiðlar hafa fjall-
að ítarlega um málið. Í umfjöllun
NDTV sjónvarpstöðvarinnar í
Nýju-Delí kemur fram að Shruti
hafi sent formlega kvörtun til
flugvallarins og þá hafi Sushma
Swaraj, utanríkisráðherra Ind-
lands, óskað eftir skýrslu frá kon-
súlnum í Frankfurt um atvikið.
Kókaín í tösku
Gefin hefur verið út ákæra á
hendur Þjóðverja á fertugs-
aldri sem var handtekinn við
komuna til landsins í lok janú-
ar. Í fölskum botni á ferðatösku
hans fundust tvö kíló af kókaíni.
Í frétt RÚV, sem greindi frá mál-
inu á mánudag, kom fram að
styrkleiki efnisins hafi verið 87
prósent og er talið að selja hafi
átt efnið hér á landi. Maður-
inn hefur setið í gæsluvarðhaldi
síðan hann var handtekinn.
D
rengurinn sem lést af slys-
förum í Hveragerði að kvöldi
laugardagsins 1. apríl hét
Mikael Rúnar Jónsson.
Mikael Rúnar var fæddur 2. jan-
úar árið 2006 og var til heimilis að
Kambahrauni 58 í Hveragerði. Hann
var því ellefu ára gamall. Þetta kem-
ur fram í tilkynningu frá lögreglunni
á Suðurlandi.
Líkt og fram hafði komið barst
Neyðarlínunni tilkynning um slys í
Hveragerði laust fyrir klukkan ellefu
á laugardagskvöld, þar sem dreng-
ur, sem virtist hafa verið einn að leik
hafði klemmst af vörulyftu á flutn-
ingabifreið við heimili hans. Lög-
regla og sjúkralið fór þegar á staðinn
en tilraunir til endurlífgunar báru
ekki árangur. Var hann úrskurðaður
látinn á vettvangi.
Fram hafði komið að tildrög
slyssins væru til rannsóknar hjá
rannsóknardeild lögreglunnar
á Suðurlandi og tæknideild lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu. n
Mikael Rúnar var fæddur 2. janúar 2006
Lést í slysi í Hveragerði
Mikael Rúnar Jónsson Lést af slysförum
í Hveragerði að kvöldi 1. apríl.
Stefnir Kópavogsbæ sem áminnti hana fyrir brotið
Þ
ann 14. mars síðastliðinn fór
málflutningur fram í máli
sem Halldóra María Hauks-
dóttir, starfsmaður Kópavogs-
bæjar, höfðaði gegn bænum
eftir að hún var áminnt fyrir brot í
starfi. Áminninguna fékk Halldóra
fyrir að hafa látið starfsmenn Heima-
þjónustu Kópavogsbæjar þrífa heim-
ili sitt fyrir veislu sem hún hélt vorið
2015. Niðurstöðu í málinu, sem var
tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness,
er að vænta á næstu vikum. Í samtali
við DV þvertekur Halldóra fyrir að hafa
brotið af sér í starfi og er ósátt við að
hafa fengið áminningu tveimur árum
eftir að atvikið átti sér stað.
Kópavogsbær tekur til varna
Sigríður Björg Tómasdóttir, almanna-
tengill Kópavogsbæjar, staðfestir í
samtali við DV að starfsmaður bæjar-
ins hafi stefnt bænum vegna áminn-
ingar sem hann hlaut í starfi. Bærinn
brást við stefnunni með því að taka
til varna og fer fram á að áminningin
verði staðfest en stefnandi fer fram á
að áminningin verði ógilt. Lögmaður
Halldóru, Hilmar Gunnarsson, kveðst
ekki geta tjáð sig um málið að svo
stöddu.
Halldóra, sem er þjónustustjóri
hjá þjónustudeild aldraðra á vel-
ferðarsviði Kópavogsbæjar, hefur
starfað fyrir bæinn í rúm tíu ár. Starf
Halldóru felst, meðal annars, í því að
halda utan um þrif fyrir heimaþjón-
ustu Kópavogsbæjar sem hefur það
markmið að aðstoða einstaklinga og
fjölskyldur sem ekki geta séð hjálpar-
laust um heimilishald.
Málið komst upp á þessu ári eftir
að nokkrir starfsmenn, sem starfa við
þrif hjá heimaþjónustunni, tóku sig
saman og kvörtuðu formlega undan
Halldóru. „Þegar við bárum saman
bækur okkar kom upp úr krafsinu að
tveir starfsmenn hafi verið látnir þrífa
heimili Halldóru,“ segir heimildar-
maður DV.
Ekki á hefðbundnum vinnutíma
Halldóra játar að hafa látið tvær kon-
ur þrífa heimili sitt á hefðbundnum
vinnutíma hjá Kópavogsbæ. „Vinnu-
tíminn hjá okkur var mjög sveigjan-
legur. Við verðlaunuðum oft starfs-
fólk með því að senda það fyrr heim
þegar engin verkefni voru til staðar
fyrir það. Ég var búin að senda minn
starfsmann heim og hin konan sem
þreif með henni var einnig búin að
fá leyfi frá sínum yfirmanni til að fara
heim þegar þær komu og þrifu hjá
mér. Þess vegna sé ég ekki að brot hafi
verið framið.“
Þá kveðst Halldóra hafa greitt báð-
um konunum fyrir verkið sem tók um
þrjár klukkustundir.
Heimildarmaður DV segir að kon-
urnar tvær hafi ekki farið heim til yfir-
manns síns eftir að þeim hafi verið
leyft að fara heim, líkt og Halldóra
heldur fram, heldur hafi þær verið
sendar heim til Halldóru til að þrífa
klukkan níu um morgun tvo daga í
röð. Annan daginn voru þær til klukk-
an 16.00 og seinni daginn voru þær
búnar að þrífa allt húsið í hádeginu.
Eftir hádegi þann dag á Halldóra að
hafa gefið báðum frí á launum.
Þá segir heimildarmaðurinn að
Halldóra hafi fundið aðra starfsmenn
heimaþjónustunnar til að sinna þeirra
verkefnum í vinnunni. Þá segir heim-
ildarmaðurinn að önnur konan hafi
aldrei fengið greitt fyrir þrifin.
„Ég taldi mig ekki vera að brjóta
af mér í starfi. Ég var með mörg vitni
fyrir dómi sem staðfesta mína hlið á
málinu,“ segir Halldóra sem er einnig
mjög ósátt við að hafa fengið áminn-
ingu fyrir „brotið“ tæpum tveimur
árum eftir að það var framið. Niður-
stöðu í málinu er, sem fyrr segir, að
vænta á næstu vikum. n
Kópavogsbær tekur til
varna Niðurstöðu í málinu er
að væta á næstu vikum.
Kristín Clausen
kristin@dv.is
Lét starfsmenn
þrífa heimili sitt