Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2017, Qupperneq 8
Vikublað 4.–6. apríl 20178 Fréttir
Gerðu daginn
eftirminnilegan
Kökulist | Firði Hafnarfirði og Valgeirsbakarí | Hólagötu 17 í Reykjanesbæ
Bakarameistari & Konditormeistari
Skoðaðu tertuúrvalið á heimasíðunni www.kokulist.is
Blái dagur-
inn haldinn
hátíðlegur
Blái dagurinn er haldinn hátíðleg-
ur í dag, þriðjudag, en markmiðið
er að vekja athygli á málefnum
barna með einhverfu.
Styrktarfélag barna með ein-
hverfu stendur fyrir átakinu og er
þetta í fjórða skipti sem dagurinn
er haldinn hátíðlegur. Fræðslu-
efni, þar sem einhverfa er útskýrð
fyrir börnum, er afrakstur söfn-
unarfjár sem safnaðist í átakinu í
fyrra. Fræðsluefnið er teiknimynd
og flytur Ævar vísindamaður, sem
er einnig talsmaður verkefnisins,
inngang í upphafi og í lok teikni-
myndarinnar. Hópur barna með
einhverfu sýndi forsetahjónunum,
Guðna Th. Jóhannessyni og Elizu
Reid, teiknimyndina í heimsókn á
Bessastöðum síðastliðinn sunnu-
dag.
Blái liturinn hefur fest sig í
sessi sem litur einhverfunnar um
allan heim og því eru allir hvattir
til að halda upp á daginn með því
að klæðast bláu. Flestir leik- og
grunnskólar landsins taka þátt í
bláa deginum. Þá standa skólarnir
einnig að fræðslu og umræðu um
einhverfu og í ár fá þeir liðsauka í
nýja fræðslumyndbandinu.
60 vilja
hætta alveg
Sextíu manns skráðu sig til
leiks í keppninni „Hættu nú al-
veg“ sem Krabbameinsfélagið
og Reyksíminn stóðu fyrir í til-
efni af Mottumars. Keppendur
munu næstu vikurnar fá aðstoð
sérmenntaðra hjúkrunar-
fræðinga við að hætta að nota
tóbak. Þeir sem ennþá verða
tóbakslausir eftir fimm vikur
geta unnið veglega vinninga frá
flugfélaginu Wow, Hótel Rangá,
Þyrluþjónustunni Helo og
Olís. Einnig tóku 6.000 manns
sjálfspróf á vef Mottumars.
Dýpkun LanDeyjahafnar hefur
kostað 1,8 miLLjarða króna
n Ný ferja væntanleg sumarið 2018 n Vestmannaeyingar bíða óþreyjufullir
R
íflega 1,8 milljarða króna
hefur kostað að dýpka Land-
eyjahöfn frá því hún var opn-
uð. Vestmannaeyjaferjan
Herjólfur hentar illa til sigl-
inga milli Eyja og Landeyjahafnar
sökum þess hversu djúpt ferjan rist-
ir og hefur því kostnaður við dýpkun
verið meiri en skyldi og fleiri dagar
þar sem ekki hefur verið hægt að sigla
til Landeyjahafnar. Ný ferja verður
tekin í notkun í júní á næsta ári ef
að líkum lætur. Sú ferja ristir mun
grynnra og ætti að geta nýst betur í
siglingum. Ferjan áttin hins vegar að
vera tilbúin þegar höfnin var opnuð,
árið 2010, en smíði hennar var frestað
vegna efnahagshrunsins. Bæjarstjóri
Vestmannaeyjabæjar segir að allt of
langan tíma hafi tekið að koma smíði
nýrrar ferju á koppinn og á meðan
hafi miklir fjármunir tapast.
422 milljónir í fyrra
Framkvæmdir við Landeyjahöfn
hófust haustið 2008 og lauk þeim
árið 2010. Síðan þá hefur Landeyja-
höfn orðið Vestmannaeyingum og
gestum þeirra mikil samgöngubót,
þegar hægt hefur verið að sigla þang-
að og þaðan. Bæði hefur veður og
mikil söfnun sands hamlað því oft og
tíðum. Á verðlagi dagsins í dag hefur
kostnaður við dýpkun hafnarinnar
numið ríflega 1,8 milljörðum króna
og hefur kostnaðurinn aldrei verið
meiri en í fyrra, 422 milljónir króna.
Þar fyrir utan kostaði 280 milljónir
króna að dýpka höfnina árið 2010
en stærstur hluti þess kostnaðar var
byggingarkostnaður en ekki viðhalds-
kostnaður.
Ferjan nýja sem taka á við af Herj-
ólfi sumarið 2018 kemur til með að
kosta rúma þrjá milljarða króna mið-
að við núverandi gengi. Miklar vonir
eru bundnar við að hún muni breyta
samgöngum til og frá Eyjum verulega.
Herjólfur dugað betur
en búist var við
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vest-
mannaeyjum, segir að nýja ferjan
muni valda straumhvörfum í Eyjum.
Herjólfur hafi þó nýst betur en við
hefði mátt búast. „Herjólfur hefur í
raun siglt meira en talið var í upp-
hafi að yrði hægt, í Landeyjahöfn.
Siglingamálastofnun hafði efasemd-
ir um að það yrði yfirhöfuð hægt að
halda nægu dýpi fyrir Herjólf þannig
að það sem hefur gerst hefur raunar
verið vonum framar.“
„No-season“ í ferðaþjónustunni
Engu að síður hafi þeir verið margir
dagarnir sem ekki var hægt að sigla,
bæði vegna sandburðar og einnig
vegna ölduhæðar, en nýja ferjan á að
ráða betur við ölduna en Herjólfur
gerir. Elliði segir tímann í bið vera
orðinn langan. „Það var hætt við
smíði nýju ferjunnar út af efnahags-
hruninu og síðan höfum við beðið.
Á sama tíma og störfum í sjávarút-
vegi hefur fækkað mjög hratt með
aukinni tæknivæðingu þá eigum
við gríðarleg tækifæri í ferðaþjón-
ustu. Þau getum við hins vegar ekki
nýtt nema með tryggum samgöng-
um. Víðast hvar á landsbyggðinni er
talað um, ef ég má sletta, „high-sea-
son“ og „low-season“ í ferðaþjón-
ustunni. Við aftur á móti erum bara
með „high-season“ og no-season“.
Hingað kemur bara enginn á meðan
siglt er í Þorlákshöfn.“
Þola ekki kyrrstöðuna lengur
Elliði segir að miklar vonir séu
bundnar við nýja ferju í Vestmanna-
eyjum. „Öryggi í siglingum verður
allt annað því ferjan nýja á að ráða
mun betur við ölduhæð. Við von-
umst til að tíminn sem hægt verður
að sigla í Landeyjahöfn gæti lengst
verulega, níu til tíu mánuðir á ári
gætu bara verið góðir með litlar sem
engar frátafir, en tveir til þrír mánuð-
ir yrðu erfiðari. Þá mun ekki þurfa að
dýpka jafn mikið og frátafir, sem og
kostnaður, verða minni.“
Það er öllum ljóst, segir Elliði,
að fleira þurfi til þó að ný ferja
verði tekin í gagnið. Það þurfi að
fara í framkvæmdir við varnar-
garða við höfnina, til að veita skip-
um skjól á innsiglingunni. Þá verði
höfnin orðin heilsárshöfn. „Við höf-
um orðað það svo að nýja ferjan sé
nauðsynleg en ekki nægjanleg til að
bæta samgöngurnar. Kyrrstöðuna
þolum við ekki lengur.“
Ekki flókin stærðfræði
Spurður hvort það hafi verið
skammsýni að semja ekki fyrr um
smíði nýrrar ferju segir Elliði að
vissulega hefði það verið æski-
legra. Það hafi þó verið skiljanlegt
að henni hafi verið frestað við efna-
hagshrunið, hins vegar hefði átt að
fara fyrr af stað með smíðina þegar
efnahagsástand fór batnandi. „Þegar
ríkið ákvað að hætta við að smíða
nýja ferju og spara þannig krónur
en nota þess í stað gamla Herjólf,
sem ristir svona miklu meira, þá var
öllum ljóst að meira þyrfti að dýpka
og það myndi kosta meira. Það er
ekki flókin stærðfræði. Það hefði
verið langskynsamlegast að fara fyrr
af stað með smíði ferjunnar, bæði í
fjárhagslegu tilliti og auðvitað fyrir
samgöngur til og frá Vestmannaeyj-
um.“ n
Hafa beðið of lengi Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir að nýrrar ferju
hafi verið beðið of lengi. Á meðan hafi fjármunir tapast. MyNd Sigtryggur Ari„Hingað kemur
bara enginn á
meðan siglt er í Þorláks-
höfn
Freyr rögnvaldsson
freyr@dv.is
1,8 milljarðar í dýpkun Dýpkun í Land-
eyjahöfn hefur kostað 1,8 milljarða króna
frá upphafi. Með nýrri ferju sem afhent
verður næsta sumar er vonast til að sá
kostnaður lækki og höfnin nýtist betur.