Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2017, Blaðsíða 18
Vikublað 4.–6. apríl 2017
Heimilisfang
Kringlan 4-12
4. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7000
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
18 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson
Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Þ
ingsályktunartillaga þing-
manna fjögurra flokka um
að þjóðin fái að ákveða fram-
tíð Reykjavíkurflugvallar veld-
ur greinilega nokkrum pirringi hjá
borgar stjóra sem hefur látið hafa eftir
sér að verið sé að halda flugvallarmál-
inu í skotgröfunum. Það er einkenni-
legt að Dagur B. Eggertsson skuli reka
upp ramakvein við hugmyndina um
þjóðaratkvæðagreiðslu í mikilvægu
máli. Fram að þessu hefur hann viljað
draga upp mynd af sér sem lýðræðis-
sinna sem virði vilja fólksins. Kvíðafull
tilhugsun um að tapa þjóðaratkvæða-
greiðslu kann að vera skýring á af-
undnum viðbrögðum hans. Alla-
vega er merkilegt að það virðist
einu gilda hvað þjóðinni finnst, það
er nánast heilagt markmið Dags og
félaga hans í borginni að losna við
flugvöllinn úr Vatnsmýrinni þegar
góð og gild rök eru fyrir því að halda
honum þar sem hann er.
Borgarstjóri er argur yfir því að
þeir sem vilja flugvöllinn áfram
í Vatnsmýrinni skuli ekki átta sig
heldur halda baráttunni áfram og
vilja knýja fram þjóðaratkvæða-
greiðslu um málið. Hann segir að
með þingsályktunartillögunni sé
verið að fara með málið afturábak
í staðinn fyrir að mynda breiða
sátt um nýjan stað. Borgarstjórinn
kann að eiga sinn óskastað fyrir
nýjan flugvöll en vilji hans er ekki
lög. Stór hluti þjóðarinnar vill hafa
sinn flugvöll á sama stað og hann hef-
ur verið. Þetta finnst Degi B. Eggerts-
syni ekki bara verulega leiðinlegt,
hann má ekki til þess hugsa.
Í flugvallarmálinu virðist vera
sáluhjálparatriði fyrir borgarstjórann
að hafa vit fyrir þjóðinni. Þarna er
samt einmitt á ferð mál sem vel er til
þess fallið að setja í þjóðaratkvæða-
greiðslu. Eins og þingmennirnir að
baki þingsályktuninni benda á þá
gegnir flugvöllurinn mikilvægu hlut-
verki í tengingu landsbyggðarinnar við
opinbera grunnþjónustu og opinberar
stofnanir, sem og verslun og þjónustu.
Allir ættu síðan að átta sig á því hversu
mikilvægt er að tryggja sjúkra- og
neyðarflug til Reykjavíkur. Flugvöllur
í Vatnsmýri uppfyllir öll þessi skilyrði.
Framtíð Reykjavíkurflugvallar er
ekki bara mál Reykvíkinga og ekki
heldur meirihluta borgarstjórnar
Reykjavíkur. Þetta er mál allra lands-
manna. Borgarstjóri á ekki að fyllast
kvíða við tilhugsunina um að þjóð-
inni verði leyft að úrskurða í máli sem
varðar hag hennar. Það ber að fagna
þingsályktunartillögu þingmannanna.
Það er sannarlega vit í henni. n
Gramur borgarstjóri
Ég hef ekki gert neinum
mein, nema sjálfum mér
Jóhann Björn Guðmundsson var beittur harðræði á Litla-Hrauni. – DV
Stóru málin
Stjórnarandstöðuþingmenn voru
ekki par hrifnir af því að sérstakri
umræðu um fátækt, sem áætluð
var í þinginu í þessari viku, skyldi
ýtt út af borðinu. Umræða um fá-
tækt í íslensku samfélagi hefur
enda verið óvenju hávær upp
á síðkastið og því töldu þing-
mennirnir fulla ástæðu til að
ræða málefnið í þingsal. Ástæða
þess að umræðan fékkst ekki tek-
in á dagskrá mun hafa verið sú
að nauðsyn væri á að ræða mál
ríkisstjórnarinnar sem hafa loks
hrúgast inn síðustu daga. Það er
sannarlega mikilsvert að ræða þau
mál, til að mynda frumvarp um
niðurlagningu lífeyrissjóðs hjúkr-
unarfræðinga, ótal þingsályktun-
artillögur um upptöku ákvarðana
EES-nefndarinnar, fullgildingu
fríverslunarsamninga við Georgíu
og Filippseyjar og lagabreytingar
sem taka til eftirlits með þeim sem
vigta mega fiskafla. Fátæklingarnir
hljóta að geta beðið á meðan, þeir
eru svo sem vanir því.
Píratar deila um Ólaf
Miklar deilur eru meðal Pírata
um það hvort borgin eigi að rifta
samningum við Ólaf Ólafsson og
ýmislegt látið fjúka í Facebook-
spjalli þeirra á meðal. Halldóri
Auðari Svanssyni var nóg boðið og
segir: „Ef flokksfélagi býr yfir ein-
hverjum ráðleggingum sem gætu
mögulega gagnast í málinu (þó
þær gangi reyndar algjörlega þvert
á álit lagasérfræðinga borgarinn-
ar) er rétta leiðin að koma þeim til
viðeigandi fulltrúa flokksins. Ekki
ýja að þeim á Facebook. Hverjum
á það að gagnast?“
( 893 5888
Persónuleg
og skjót
þjónusta
þú finnur
okkur á
facebook
Eins og ég væri
komin í helvíti
Lilja Torfadóttir sneri baki við Vottum Jehóva. – DV
Hún hataði
barnið
Pálína sakar deildarstjóra á leikskóla um harðræði. – DV
Myndin Mugga Notalegasta vorveður undanfarinna daga hefur nú vikið fyrir snjómuggu eða slydduéljum. Líklegast þykir að veturinn ríki eitthvað áfram.
Mynd SiGTryGGur Ari
„Það virðist einu
gilda hvað þjóð-
inni finnst, það er nánast
heilagt markmið Dags og
félaga hans í borginni að
losna við flugvöllinn úr
Vatnsmýrinni.
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Mynd SiGTryGGur Ari
Mynd SiGTryGGur Ari