Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2017, Qupperneq 20
Vikublað 4.–6. apríl 20172 Ferðalok - Kynningarblað
Ú
tfararstofa Svafars og Her
manns, sem einnig gengur
undir nafninu Kvedja.is,
byggir á 20 ára reynslu og
mikilli þekkingu á útfarar
þjónustu. Stofan veitir þjónustu sem
er í senn heildstæð og mjög persónu
leg. „Þetta er lítil útfararstofa og við
komum að ferlinu frá upphafi til
enda, erum með fólkinu allan tím
ann því þessi persónulegu samskipti
eru mjög mikilvæg,“ segir Hermann
Jónasson, annar eigenda stofunnar,
en hinn eigandinn er Svafar Magnús
son. Báðir hafa starfað afar lengi í
faginu. Þriðji starfsmaðurinn er Ingi
björg Halldórsdóttir.
Á heimasíðu stofunnar, kvedja.
is, er að finna mjög gagnlegar upp
lýsingar, meðal annars gátlista fyr
ir útför sem bæði er hægt að skoða
á síðunni og prenta út. Útfararstofa
Svafars og Hermanns getur séð um
alla þætti útfararinnar. „Það er svo
misjafnt hvernig fólk er statt gagn
vart þessu. Sumir eru búnir að
ákveða alla hluti og hafa kannski gert
þetta áður. En suma þarf að leiða vel
áfram og þá upplýsum við fólkið um
allt sem er í boði og mögulegt er,“
segir Hermann sem leggur áherslu á
að laga þjónustuna að þörfum hvers
og eins.
„Það hefur færst í vöxt að fólk sé
ekki í kirkjunni og ekki eru lengur all
ir með presta. Það ríkir sá misskiln
ingur að allt sé niður njörvað varð
andi hvað má og hvað má ekki við
útför. En í rauninni ræður hver hvað
hann gerir og hvernig hann hefur
þetta,“ segir Hermann sem leggur
áherslu á að þjóna öllum trúarhóp
um og líka hinum trúlausu.
„Við leggjum áherslu á að hver út
för sé einstök. Hún er ekki eins og
hver önnur. Við mætum fólki á þeim
stað þar sem það er og uppfyllum
óskir þess. Við förum heim til fólks ef
það vill það en það getur líka kom
ið til okkar því við erum með góða
aðstöðu að Síðumúla 28,“ segir Her
mann en stofan býður upp á alla
þjónustu sem til þarf og kemur með
al annars á sambandi við tónlistar
fólk þegar þess gerist þörf.
„Fyrir suma sjáum við um allt,
tölum við prestinn og aðra sem
koma að útförinni, en síðan eru aðr
ir svo sjálfstæðir að þeir vilja gera
þetta sjálfir og þá er það bara í góðu
lagi. Þetta er nokkuð misjafnt en við
þjónum öllum og leggjum alltaf mik
ið upp úr persónulegri nálgun,“ segir
Hermann að lokum. n
Nánari upplýsingar eru á heima-
síðunni kvedja.is. Símanúmer stof-
unnar er 571-8222.
Hver útför er einstök
Útfararstofa Svafars og Hermanns, Síðumúla 28
F
rímann og Hálfdán – Útfarar
þjónusta veitir syrgjendum
þjónustu sem einkennist
af virðingu og nærgætni
og byggir á mikilli reynslu
og þekkingu á mannlegum sam
skiptum. Þjónustan er jafnframt
heildstæð og víðtæk og veittar eru
greinargóðar upplýsingar um kostn
að. Saga fyrirtækisins nær aftur til
ársins 2002 er Hálfdán Hálfdánar
son og Ólöf Helgadóttir stofnuðu
Útfararþjónustu Hafnarfjarðar, en
frá árinu 1996 hafa Hálfdán og Ólöf
rekið Fjölsmíð líkkistuvinnustofu.
Árið 2015 bættist Frímann
Andrés son í hópinn og breyttist
þá nafnið í Frímann & Hálfdán –
Útfararþjónusta Hafnarfjarðar
Á vandaðri heimasíðu fyrirtæk
isins, uth.is, er að finna greinar
góðar upplýsingar um þjónustu og
verð. Þjónustan, sem í boði er, getur
tekið til fjölmargra þátta:
n Flytja hinn látna í líkhús
n Aðstoða við val á kistu, rúmfötum og
líkklæðum
n Útvega kapellu til kistulagningar
n Útvega kirkju
n Panta organista, söngfólk og hljóð
færaleikara
n Útvega legstað í kirkjugarði
n Panta kistuskreytingar
n Aðstoða við val á sálmum
n Útbúa sálmaskrá
n Aðstoða við öflun líkbrennsluheimildar
n Útvega duftker
n Útvega kross og skilti á leiði
n Stjórna útför
Á vefsíðu fyrirtækisins eru mjög
greinargóðar upplýsingar um alla
kostnaðarliði en hér á myndum má
sjá dæmi um vandaðar vörur á hag
stæðu verði.
Frímann og Hálfdán – Útfarar
þjónusta er til húsa að Stapahrauni
5, Hafnarfirði. Þar er rúmgóð og hlý
lega aðstaða til að taka á móti að
standendum. Þar eru einnig líkkistu
vinnustofa og saumastofa til húsa.
Skrifstofan er opin frá kl. 8 til 17 virka
daga, en þjónustan á sér stað allan
sólarhringinn, alla daga vikunnar. n
Síminn er 565-9775.
Netfang: uth@uth.is
Heimasíða: www.uth.is
Skýrar upplýsingar, nærgætni og virðing
Frímann & Hálfdán – Útfararþjónusta Hafnarfjarðar
Hvítur kross, 11.000
Líkbíll Cadillac, árgerð 2017
Vistvæn duftker, 11.000 kr.
Hvít kista, 127.000 kr.
Kista úr gegnheilli furu, 155.000 kr.