Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2017, Qupperneq 31
Vikublað 4.–6. apríl 2017 Menning 27
D
úettinn Between Mountains
vann hljómsveitakeppnina
Músíktilraunir 2017, en úr
slitakvöld keppninnar fór
fram í Hörpu síðastliðinn laugardag.
Tólf sveitir spiluðu á úrslitakvöldinu
og var tónlistin sem hljómaði að
venju mjög fjölbreytt, meðal annars
rapp, rokk, kammertónlist, djass og
popp.
Sigursveitin Between Mountains
er skipuð hinni fjórtán ára gömlu
Kötlu Vigdísi Vernharðsdóttur frá
Suðureyri, sem syngur og spilar á
hljómborð, og hinni sextán ára Ás
rósu Helgu Guðmundsdóttur frá
Núpi í Dýrafirði, en hún syngur
og spilar á xylófón. Þær léku lögin
„Into the Dark“, „Lost in Space“ og
„Little Sunny Flower“ og gáfu þau
góð fyrirheit um framhaldið, lág
stemmd og snotur popplög með
ljúfum textum, grípandi melódíum
og vel smurðum samsöng. Hljóm
sveitin hefur einungis verið starfrækt
í um mánuð, en hún var stofnuð í
mars með það fyrir augum að taka
þátt í söngkeppni Samfés og Músík
tilraunum.
Hinar verðlaunasveitirnar
voru rokkdúettinn
Phlegm, sem lenti í
öðru sæti, og hljóm
sveitin Omotrack,
sem lenti í þriðja. Katla Vigdís og
Ásrós Helga úr Between Mountains
voru valdar söngvarar Músíktil
rauna, Helgi Freyr Tómasson úr
Hewkii var bæði valinn gítarleikari
Músíktilrauna og rafheili tilraun
anna, Flemming Viðar Valmundsson
úr Phlegm var valinn bassaleikari
Músíktilrauna og hljómsveitarfélagi
hans, Ögmundur Kárason, var
valinn trommuleikari Músíktilrauna.
Píanó/hljómborðsleikari Músík
tilrauna var Dagur Bjarki Sigurðsson,
öðru nafni Adeptus, rappsveitin Hill
ingar fékk viðurkenningu fyrir texta
gerð á íslensku, og hljómsveitin
Misty var valin Hljómsveit fólksins í
símakosningu. n kristjan@dv.is
fyrir sinn tíma. Var hann mikill
hugsjónamaður?
„Já, það kemur mjög skýrt fram í
frásögn Jörundar að hann var barn
upplýsingarinnar og hafði til dæm
is mjög framsæknar hugmynd
ir um sjálfsákvörðunarrétt þjóða.
Þetta er raunar ein fyrsta heimildin
þar sem hugmyndir um gullöld
Íslendinga og mögulega endur
reisn hennar koma fram, en Fjöln
ismenn og fleiri áttu eftir að tala
um þetta nokkrum áratugum síð
ar. Jörundur lýsir því að gullöld Ís
lendinga hafi verið þegar þeir voru
sjálfstæðir á miðöldum en svo hafi
allt orðið verra þegar þeir voru sett
ir undir vald erlendra konunga.
Hann vildi því endurreisa Alþingi
og láta einungis íslenska embættis
menn stjórna landinu. Við vitum
hins vegar ekki hvernig þetta hefði
endað ef hann hefði ekki verið tek
inn frá völdum. Það er náttúrlega
óljóst hvað var mikið á bak við
þessi fögru fyrirheit.“
Virðist hann hafa stefnt á að
halda völdum til frambúðar?
„Eftir svona sex vikur leit eigin
lega út fyrir að byltingarstjórn Jör
undar væri komin til að vera. Hann
var búinn að byggja sér upp ákveðið
stjórnkerfi en samkvæmt auglýs
ingum sem hann birti vildi hann þó
færa völdin til Íslendinga. Á með
an það væri að gerast var hann hins
vegar með alræðisvöld. Þetta breytt
ist svo á örfáum dögum þegar enskt
herskip kom og skipstjórinn ákvað
að taka völdin af honum. Það er
alltaf erfitt að segja hvað hefði getað
gerst, en það er ljóst að þetta hefði
aldrei getað haldist lengi – einhvern
tímann hefðu dönsk og ensk stjórn
völd frétt af ástandinu og brugðist
við. En það hefði verið mjög athygl
isvert ef engin skip hefðu komið
fyrr en næsta vor. Það er nefnilega
mjög ólíklegt að Íslendingar hefðu
gert einhverja uppreisn, þeir voru
skíthræddir og þorðu ekki að gera
neitt.“
Skömmuðust sín fyrir Jörund
Heldur þú að þessar framsæknu
hugmyndir sem Jörundur kynnti,
um frelsi og lýðræði, hafi haft ein-
hver áhrif inn í íslenskan hug-
myndaheim?
„Nei, menn tóku þetta ekkert
sérstaklega alvarlega. Íslendingar
voru eiginlega miður sín og
skömmuðust sín hálfpartinn
fyrir þetta atvik. Það er furðulegt
hvað þessi bylting árið 1809 skipti
litlu máli í sjálfstæðisbaráttu Ís
lendinga. Þetta er frekar skrýtið
því Ísland var jú sjálfstætt ríki í tvo
mánuði en þetta virðist ekki hafa
skipt neinu máli. Það var ekki mik
ið talað um Jörund í nokkra ára
tugi eftir þetta, það er ekki fyrr en
seinna, undir lok 19. aldarinnar,
sem menn fara að skrifa um hann
leikrit og bækur.“
Undanfarið hefur verið mikill
áhugi á Jörundi. Það hafa komið út
vinsælar bækur um hann, til dæm-
is ævisaga eftir Söruh Blakewell og
auðvitað skáldsagan Hundadagar
eftir Einar Má Guðmundsson, sem
hlaut Íslensku bókmenntaverð-
launin 2015 En hvernig er að heyra
söguna frá Jörundi sjálfum, hvernig
penni er hundadagakonungurinn?
„Mjög skemmtilegur! Hann er
kannski ekki besti rithöfundur
inn ef við hugsum að frásögnin
eigi að hafa skýran rauðan þráð,
hann tekur nokkra útúrdúra.
Hann skrifar hins vegar lýtalausa
ensku og er með alveg ótrúlegan
orðaforða. Þetta sýnir bara hvað
hann var í raun greindur, vel að
sér í sögu og gat vel rökstutt það
sem hann hafði gert. Þarna eru
líka margar skemmtilegar klaus
ur, til dæmis þegar hann kvartar
yfir því hversu ömurlega er kom
ið fram við hann. Textinn er mjög
læsilegur og auðvelt að skilja
hann. Handritið sjálft er líka mjög
fallegt,“ segir Óðinn og bendir á
að Jörundur hafi haldið áfram að
skrifa um hin miklu ævintýr sín
víða um heim en þær bækur hafi
fæstar verið gefnar út. n
Varnarrit hundadagakonungs
„Það kemur
mjög skýrt
fram í frásögn Jör
undar að hann var
barn upplýsingarinnar
og hafði til dæmis
mjög framsæknar
hugmyndir um sjálfs
ákvörðunarrétt
þjóða.
Þrír þorskar Jörundur lét gera nýjan
fána fyrir hina sjálfstæðu íslensku þjóð
og flaggaði í þær átta vikur sem hann
var við völd í landinu árið 1809.
Between
Mountains
sigraði
14 og 16 ára vinkonur af Vestfjörðum komu,
sáu og sigruðu í Músíktilraunum 2017
T
ilkynnt hefur verið um sextán
erlenda rithöfunda sem
munu taka þátt í dagskrá Bók
menntahátíðar í Reykjavík
2017 sem fer fram í september. Bók
menntahátíð í Reykjavík hefur ver
ið haldin annað hvert ár frá 1985 og
fara þá fram fjölbreyttir viðburðir á
borð við upplestra, viðtöl, málþing,
ráðstefnur og bókaball, en frítt er inn
á alla viðburði.
Meðal gesta í ár eru kóreski rit
höfundurinn Han Kang, sem hlaut
alþjóðlegu Man Bookerverðlaun
in í fyrra fyrir bókina Grænmetisæt
an (e. The Vegetarian), og sænski rit
höfundurinn Jonas Hassan Khemiri,
sem sagður hefur verið einn
mikilvægasti höfundur
sinnar kynslóðar í Sví
þjóð, en á dögunum
kom bók hans Allt
sem ég man ekki (s.
Allt jag inte minns)
út í íslenskri þýð
ingu.
Aðrir rithöfundar
sem koma fram á hátíð
inni eru meðal annars
ísraelski rit og handritshöfundurinn
Etgar Keret, danska ljóðskáldið Maja
Lee Langvad, sænska ljóðskáldið
Aase Berg, finnski
rithöfundurinn
Tapio Koivukari,
Norðmennirnir
Morten Strøks
nes og Fredrik
Sjöberg, danski rit
höfundurinn Anne
Cathrine Riebnitzsky, Banda
ríkjakonan Yaa Gyasi sem á ættir að
rekja til Gana, bandaríski sagnfræði
prófessorinn Timothy
Snyder, breski rithöf
undurinn og blaða
maðurinn John Crace,
skoska ljóðskáldið
Christine De Luca,
indónesíski rihöfund
urinn Eka Kuniawan,
japanski rithöfurinn Hiromi
Kawakami og Esmeralda Santiago
frá Púertó Ríkó. n kristjan@dv.is
Sextán erlendir höfundar
verða á Bókmenntahátíð
Between Mountains
Katla Vigdís og Ásrós Helga
úr hjómsveitinni Between
Mountains voru ánægðar með
sigurinn. Myndir BrynJar GunnarSSon
omotrack Hljómsveitin
Omotrack lenti í þriðja sæti.
Phlegm Bassa-trommudúettinn
Phlegm lenti í öðru sæti.
Margverðlaunuð Han Kang (til hægri) ásamt enskum þýðanda bókarinnar The Vegetarian,
eða Grænmetisætan, við afhendingu alþjóðlegu Man Booker-verðlaunanna 2016.
Jonas Hassan
Khemiri Esmeralda Santiago