Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Blaðsíða 8
8 Helgarblað 2. júní 2017fréttir
Okkar kjarnastarfssemi er
greiðslumiðlun og innheimta.
Hver er þín?
515 7900 | alskil@alskil.is | alskil.is
Síðan 2006
AfllAus ríkisstjórn
n Kemur engum stórum málum í gegn n Bjarni samt sterki maðurinn í íslenskum stjórnmálum
R
íkisstjórnin hefur ekki mikið
vélarafl. Við höfum ekki
séð framan í nein af stóru
málunum sem boðuð voru
í kosningabaráttunni, skref
in eru afar lítil sem henni tekst að
taka. Ríkisstjórnin nær ekki í gegn
þeim málum sem stjórnarandstað
an er alfarið á móti, ef frá er skilin
ríkisfjármálaáætlunin, sem þó er að
sumu leyti sérstakt mál. Þessi mál
sem samþykkt hafa verið eru í raun
mál sem eru mörg hver stjórnar
andstöðunni alveg jafn hugleikin og
stjórninni, til dæmis jafnlaunavott
un sem í praxís er alveg eins mikið
vinstramál.“
Stjórnarandstaðan sundurtætt
Þetta segir Eiríkur Bergmann stjórn
málafræðiprófessor þegar hann er
beðinn um að leggja mat á stjórn
málaveturinn sem nú er liðinn.
Eiríkur segir ríkisstjórnina einung
is sitja í skjóli þess að stjórnarand
staðan sé sundurtætt. „Ríkisstjórnin
er alveg feikilega veik og eini styrkur
hennar felst í að stjórnarandstaðan er
svo gjörsamlega sundurtætt. Hún er
algjörlega klofin, stjórnarandstaðan.
Píratar, Samfylking og Vinstri græn
geta náð saman um hitt og þetta en
það er erfiðara að ná saman með
Framsókn. Framsókn er síðan sjálf
klofin í sundur og upptekin í innan
flokkserjum. Stjórnarandstaðan
er því ekkert í stakk búin til að taka
við. Það er það sem tryggir að ríkis
stjórnin situr áfram.“
Ríkisstjórn Bjarna
Bene diktssonar hefur ekki náð neinu
máli sem ágreiningur er um í gegn,
utan ríkis fjármálaáætlunar, sem fyrr
segir. „Stjórnarandstaðan virðist
geta stöðvað flest sem hún einsetur
sér að stöðva. Ef henni tekst að fylkja
sér saman þá hefur hún það afl. Þetta
er sú staða sem ríkisstjórnin stend
ur frammi fyrir og er í sjálfu sér ekki
ósvipuð þeirri stöðu sem ríkisstjórn
Samfylkingar og Vinstri grænna var
í, einkum seinni hlutann þegar hún
var í raun bara minnihlutastjórn.
Þá var hún raunar í mun verri stöðu
en ríkisstjórnin er í núna. Þetta er
því ekki óþekkt. Afleiðingarnar sem
þetta hefur eru þær að ríkisstjórnin
kemur ekki fram með stór, pólariser
andi pólitísk mál heldur garfar bara í
smærri málum.“
Framsókn er dragbíturinn
Spurður hvort það sé mögulegt að
stjórnarandstaðan muni slípast
betur saman eftir því sem frá líður
og þingmenn læra að þekkja hver
annan og treysta, og verða með því
alvöru afl sem getur valdið ríkis
stjórninni alls konar vandræðum,
segir Eiríkur að til þess þurfi eitt að
gerast. „Það fer algjörlega eftir því
hvernig uppgjörið í Framsóknar
flokknum fer. Það er mögulegt að
stjórnarandstaðan geti þjappað sér
saman en til þess að það sé mögu
legt þarf Framsóknarflokkurinn að
klára sín mál. Það gerist í fyrsta lagi
í janúar næstkomandi, á flokksþingi,
og mögulega ekki einu sinni þá.
Eins lengi og Framsókn er sundruð
er stjórnarandstaðan veik sem því
nemur.“
Flokkum blæðir í samstarfi við
Sjálfstæðisflokkinn
Fátt hefur komið á óvart á þessum
þingvetri að mati Eiríks. „Það má þó
kannski segja að samstarfsflokkar
Sjálfstæðisflokksins, Björt framtíð
og Viðreisn, fóru fram í kosninga
baráttu með stór mál sem sneru að
grundvallarbreytingum í þjóð
félaginu, og í sjónvarpskapp
ræðum lýstu báðir flokkar sér
sem breytingaflokkum. Þessum
breytingaflokkum hefur hins
vegar ekki tekist að ná fram
neinni viðamikilli breytingu.
Ég er ekki að segja að það
komi á óvart en það er auð
vitað staða sem maður hlýt
ur að staldra við. Slæm staða
þessara flokka tveggja í skoð
anakönnunum kemur því ekk
ert á óvart í þessu samhengi.
Það er raunar gömul saga og
ný að nýjum flokkum blæðir í
samstarfi við Sjálfstæðisflokk
inn. Það sem kemur hvað mest
á óvart þegar horft er til skoð
anakannana er hversu Píratar
halda fylgi sínu. Ég hefði búist við að
þeir færu að dala.“
Bjarni hefur tögl og hagldir
Eiríkur segir vart hægt að taka
nokkurn þingmann út úr sem hafi
staðið sig með þeim hætti að hann
standi upp úr. „Það er þá helst
Bjarni Benediktsson, það er bara
þannig. Bjarni er stjórnmálamaður
sem hefur verið í þeirri stöðu að
vera stanslaust í fallhættu og enda
laus mál hafa komið upp sem hafa
orðið honum fjötur um fót. Nú er
hann hins vegar í þannig stöðu að
hann hefur tögl og hagldir, bæði
í Sjálfstæðisflokknum og í ríkis
stjórninni sjálfri. Ef maður á að
nefna einhvern þá hlýtur það að
vera Bjarni sem er sterki maður ís
lenskra stjórnmála í dag.“ n
Freyr Rögnvaldsson
freyr@dv.is Bjarni er sterki maðurinn
Þrátt fyrir að ríkisstjórnin sé
aflvana telur Eiríkur Bergmann
að Bjarni Benediktsson hljóti að
teljast sterki maður íslenskra
stjórnmála í dag. Mynd SigtRygguR ARi
Eiríkur Bergmann