Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Blaðsíða 4
4 Helgarblað 2. júní 2017fréttir É g held að íslenskt fjölbýlishús, þar sem allir þekkja alla, sé ekki gáfulegasti vettvangur- inn fyrir undirheimastarfsemi sem þessa. Það er í raun með ólíkindum að þeim hafi dottið þetta í hug. En þetta sýnir bara að það er mikilvægt að vera vakandi og með augun opin,“ segir íbúi í fjölbýlishúsi í Bólstaðarhlíð í samtali við DV. Í lok síðustu viku fór fram umfangsmikil lögregluaðgerð í götunni þar sem þrennt var handtekið, karl og tvær konur. Grímur Grímsson aðstoðar- yfirlögregluþjónn staðfestir að mál- ið sé rannsakað sem mansals- og vændismál. „Það fannst einnig lítil- ræði af fíkniefnum í íbúðinni,“ segir Grímur en gat að öðru leyti ekki gef- ið frekari upplýsingar um málið. Karlmaðurinn tók aðgerðum lög- reglu óstinnt upp og hótaði ná- grönnum sem fylgdust í forundran með gangi mála. Leigð til þriðja aðila Íbúðin sem um ræðir hafði verið í útleigu í rúmt ár þegar eigendur hennar ákváðu að selja íbúðina. Það gekk fljótt eftir og þegar rúmur mánuður var í að leigjandinn þyrfti að yfirgefa íbúðina virðist sem við- komandi hafi ákveðið að leigja íbúð- ina til þriðja aðila um skamma hríð. Skyndilega hafi maðurinn flutt út og þrír einstaklingar frá Ungverjalandi flutt inn. Umsvifalaust fór að bera á tíðum heimsóknum karlmanna í íbúðina og tóku konurnar á móti þeim. Þá herma heimildir DV að megn graslykt hafi komið frá íbúð- inni. „Þessir einstaklingar voru um þrítugt. Þau voru ekki á neinn hátt skuggaleg heldur snyrtileg og vel til höfð,“ segir annar nágranni. Þegar þríeykið var handtekið í síðustu viku hafði starfsemin aðeins verið í gangi í tvær til þrjár vikur. Þá hafði lögreglan veður af því hvers kyns var og lét til skarar skríða. Að- gerðin hófst um kvöldmatar leytið og stóð í rúmar þrjár klukkustundir. Samkvæmt heimildum DV hótaði karlmaðurinn nágrönnum sínum þegar hann var leiddur út í járnum. Í samtali við DV segir Grímur Gríms- son að ekki hafi verið talin ástæða til þess að fara fram á gæsluvarðhald yfir þremenningunum. Var þeim því sleppt að lokinni skýrslutöku en málið er til rannsóknar. Meira framboð af vændi en áður „Það er staðreynd að það er meira framboð af vændi í dag en fyrir nokkrum árum. Við sjáum merki um það á þar til gerðum vefsíðum og á samfélagsmiðlum. En okkar upplifun er sú að það hafi orðið vitundarvakn- ing meðal almennings um vændi al- mennt. Fólk er meira vakandi fyrir því hvað sé í gangi í nærumhverfi þess og við fáum fleiri ábendingar en áður. Við fögnum að sjálfsögðu öllum slíkum ábendingum,“ segir Snorri Birgisson rannsóknarlögreglumaður í samtali við DV. Að hans sögn hefur það viðhorf verið ríkjandi að vændis- sala sé einfaldlega einstaklingar í at- vinnurekstri en sú sé yfirleitt ekki raunin. „Yfirleitt er um að ræða er- lenda einstaklinga hérlendis sem eru undir hatti annarra,“ segir Snorri. Á síðustu árum hefur Snorri stýrt fræðsluátaki undir handleiðslu innan ríkisráðuneytisins og virðist verk efnið því vera að skila sínu. Það er unnið í samráði við velferðarráðu- neytið, Starfsgreinasamband Íslands og mannréttindaskrifstofu Reykja- víkurborgar. Alls hafa 60 fundir verið haldnir og rúmlega tvö þúsund manns sótt þá. Aukið erlent samstarf Að sögn Snorra eru fleiri tilvik núna þar sem grunur leikur á að um man- sal sé að ræða en það verði ekki endi- lega til þess að málin séu tekin til rannsóknar. „Við þurfum að sníða okkur stakk eftir vexti og við þurf- um meira en grun til þess að fara af stað með rannsókn. En við höfum sett upplýsingaöflun um þessi mál í meiri forgang en áður og aukið sam- starf við erlend lögreglulið í gegnum Europol. Þetta eru yfirleitt alþjóðlegir glæpahringir með starfsemi í mörg- um löndum og því er samstarfið afar mikilvægt,“ segir Snorri. n Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Rannsaka mansalsmál í HlíðaHveRfi n Þrír einstak- lingar handteknir n Tíðar mannaferðir vöktu grunsemdir Úr hverfinu Myndin er ekki af vettvangi. Að sögn nágranna er með ólíkindum að fólkinu hafi dottið í hug að það gæti komist upp með vændisstarfsemi í íslensku fjöl­ býlishúsi. Mynd Sigtryggur Ari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.