Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Blaðsíða 32
StyttiSt í
Sjóarann
Síkáta
Fjörug fjögurra daga bæjarhátíð
Það styttist í fyrstu bæjarhátíð ársins, Sjóarann síkáta, í
Grindavík sem jafnan er fyrstu helgina í júní en fellur í ár
á aðra helgi júnímánaðar sökum hvítasunnuhelgarinnar.
Það hefur þó engin áhrif á bæjarbúa sem eru margir
hverjir löngu byrjaðir að skipuleggja hvernig skreyta
skuli hús sín og nánasta umhverfi fyrir helgina.
Þetta er í 21. sinn sem hátíðin Sjóar-inn síkáti er haldin og hér er jafn-an mikið fjör alla helgina,“ segir
Siggeir F. Ævarsson, upplýsingafulltrúi
Grindavíkurbæjar. „Dagskráin er tilbúin
og komin í prent og í henni má finna bæði
hefðbundna, árlega
viðburði, auk nokkurra nýrra.“
Sjóarinn síkáti byrjar mánudaginn 5.
júní með sýningunni Samfélaginu okkar
í Kvikunni, en gamlar ljósmyndir sýna
atvinnuhætti og mannlíf í Grindavík. Fyr-
irlestrar verða síðan mánudags- og þriðju-
dagskvöld í Kvikunni. Á
miðvikudaginn verður
heimildamyndin Brotið
sýnd í Kvennó, en hún
fjallar um mannskætt
veður sem gekk yfir
Ísland. Myndin verður
þátttakandi á næstu
kvikmyndahátíð í
Cannes í Frakklandi.
Dagskráin hefst svo
af krafti föstudaginn
9. júní þegar götugrill
verður um allan bæ
og litaskrúðganga
verður úr
fjórum hverfum niður á hátíðarsvæði við
bryggjuna. „Á bæjarhátíðinni er bænum
skipt í fjögur hverfi sem hvert á sinn lit og
sitt tákn og leggja flestir bæjarbúar mikinn
metnað í skreytingar á húsum sínum og
hverfum,“ segir Siggeir. Best skreytta húsið
og best skreytta hverfið er valið á hverju
ári og er það jafnan heiðurinn sem er í
húfi, frekar en verðlaun.
Fjöldi viðburða í boði
Helgina sjálfa verður svo heilmikil dag-
skrá, meðal annars keppnin um sterkasta
mann í heimi, Íslandsmeistaramót í
kasínu, hópakstur bifhjóla, leiktæki og
andlitsmálun fyrir börnin, paintball og
lasertag svo eitthvað sé nefnt. „Hátíðin
hefur verið afar vel sótt undanfarin ár
og í fyrra fóru samkvæmt mælingum
vefmyndavéla 40 þúsund manns í gegnum
Grindavík um sjómannadagshelgina,“
segir Siggeir. Íbúafjöldi bæjarins margfald-
ast því þessa helgi, en í Grindavík búa um
3.200 manns.
Dagskráin mun birtast von bráðar á
heimasíðu Grindavíkurbæjar, grindavik.
is, og það er um að gera fyrir áhugasama
að bregða undir sig betri fætinum og kíkja
til Grindavíkur, skoða mannlífið og njóta
skemmtiatriða á fjörugri bæjarhátíð.
Litríkt fóLk Fjögur hverfi í
fjórum litum mætast í skrúðgöngu
á föstudagskvöldinu og ganga
fylktu liði niður á hátíðarsvæðið við
bryggjuna. Síðan tekur við skemmti-
dagskrá fram á nótt.
fjöLdi sjáLfboðaLiða hLuti af hátíðinni Björgunarsveitin Þorbjörn og slysavarnadeildin Þórkatla eru órjúfanlegur hluti af hópnum sem kemur að bæjarhátíðinni. Slysavarnadeildin Þórkatla sér um sölu á ýmsum veitingum, sælgæti, candyfloss, blöðrum og fleiru á hátíðarsvæðinu sjálfu úr sölugám þeirra sem heitir Ellubúð. „Við erum búnar að gera þetta svo lengi að þetta er eins og vel smurð vél sem fer fulla ferð áfram um leið og við byrjum,“ segja þær Guðrún Kristín Einarsdóttir formaður og Ragna Gestsdóttir, ritari í stjórn Þórkötlu. Þær eru hér ásamt Önnu Magnúsdóttur félagskonu.
best skreytta húsið Á hverju ári er eitt
hús valið sem best skreytta húsið. Þetta hús í
appelsínugula hverfinu hlaut verðlaun.