Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Side 33
Kraftajötnar gæða sér á
PaPas-Pítsum Sterkustu menn Íslands
þurfa að næra sig vel og það er nóg af
góðum veitingastöðum í Grindavík. Þessir
kappar mættu á Sterkasti maður í heimi
fyrir tveimur árum og smelltu sér í pítsur á
Papas milli aflrauna.
Ellubúð Það er jafnan nóg um að vera við Ellubúð.
„Hún Elín Pálfríður Alexandersdóttir, sem er ein af stofnfé-
lögum Þórkötlu og heiðursfélagi hennar í dag, var svo frá-
bær að gefa okkur gáminn og stjórnarkonur voru sammála
um að nefna hann Ellubúð henni til heiðurs.“
öflug björg-
unarsvEit Björg-
unarsveitin Þorbjörn
sér um kappróðurinn,
koddaslaginn og
skemmtisiglinguna,
auk gæslu á hátíðinni
sjálfri. „Það eru um
30 manns sem koma
að hátíðinni af okkar
hálfu,“ segir Otti Sig-
marsson, varaformað-
ur Þorbjarnar. „Þetta
hefur alltaf gengið
rosalega vel og það
eru sennilega hátt í
þúsund vinnustundir af
hálfu sveitarinnar sem
fara í hátíðina.“
Kvenfélag Grímneshrepps hefur síðastliðið ár unnið að umhverfisverkefninu „Ekki
kaupa rusl!“ Markmiðið með verk-
efninu er að auka vitundarvakningu
hjá íbúum Grímsnes- og Grafn-
ingshrepps og í vikunni fengu íbúar
hreppsins fjölnota innkaupapoka frá
kvenfélaginu, en þeir eru saumaðir
úr gömlu gardínuefni og gömlum
dúkum.
„Tildrög verkefnisins voru að á
vorfundi félagsins í fyrra fengum við
fræðslufyrirlestur um rusl, hversu
mikið félli til, hvernig ruslmagn
tengist efnahagssveiflum í samfé-
laginu, hvernig það er flokkað og hvar
er hægt að gera betur svo að dæmi séu
nefnd,“ segir Laufey Guðmundsdóttir,
formaður kvenfélagsins.
Ekki kaupa rusl
Það sem stóð upp úr fyrirlestrinum
að sögn Laufeyjar var setningin „Ekki
kaupa rusl“, það er ekki kaupa of stórar
pakkningar þar sem innihaldið verður
aldrei klárað og minni einingar eru
til, ekki kaupa hluti, föt, mat og annað
sem ekki verður notað og fer þar af
leiðandi beint í ruslið. „Einnig komu
fram upplýsingar um það gífurlega
magn af matvælum og lífrænum
úrgangi sem fer beint í ruslatunnuna
okkar, en sem hægt væri að koma í veg
fyrir með vandaðri innkaupum, betri
flokkun og endurnýtingu eins og með
moltugerð eða hreinlega með því að fá
sér hænur sem svo framleiða egg fyrir
þig í staðinn,“ segir Laufey.
Gömul efni fá framhaldslíf
„Síðan áskotnaðist kvenfélaginu
mikið magn af efni í alls kyns litum
og mynstri auk gömlu dúkanna úr
félagsheimilinu,“ segir Laufey. „Út frá
því fórum við að huga að hvernig þetta
efni myndi nýtast best og kviknaði sú
hugmynd að sauma taupoka úr þessu
og færa íbúum sveitarfélagsins þá að
gjöf og þannig hvetja þá til að lág-
marka plastpokanotkun við innkaup
sem dæmi.“ Félagskonur skiptu með
sér verkum, lituðu efni, sniðu pokana
til, merktu og saumuðu.
Íbúar hrifnir af verkefninu
„Við nýttum daginn Borg í sveit til að
dreifa fyrsta hollinu af pokum á heim-
ilin í Grímsnes- og Grafningshreppi
og hvöttum um leið íbúa til að nota
fjölnota poka. Það var tekið vel á móti
okkur og gaman að heyra hvað margir
notast nú þegar við fjölnota poka,“
segir Laufey sem þakkar fyrir góðar
móttökur. Sannarlega gott framtak
hjá Kvenfélagskonum í Grímsnes- og
Grafningshreppi.
ánægðir íbúar Anna Margrét
Sigurðardóttir og Ágúst Gunnarsson
á Stærri-Bæ ánægð með pokann
sinn.
umhverfisvænar
Fjölnota innkaupapokar á öll heimili
KvenfélagsKonur
grímneshrepps
KraftmiKlar Konur Laufey
Guðmundsdóttir, formaður Kven-
félags Grímsneshrepps, Ingibjörg
Harðardóttir, sveitarstjóri Gríms-
nes- og Grafningshrepps, Kristín
Carol Chadwick kvenfélagskona.
sKEmmtilEgar álEtranir „Þú
mátt nota mig aftur og aftur og aftur
og aftur …,“ stendur meðal annars á
pokunum.