Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Blaðsíða 62
42 fólk Helgarblað 2. júní 2017 Fanney og Ragnar Fanney Eiríksdóttir gekk að eiga sinn heittelskaða, Ragnar Njálsson, síðastliðið sumar. Fanney ákvað að hanna og sauma sinn eigin kjól ásamt móður sinni sem er flink að sauma. Þetta var skemmtilegt og eftirminnilegt samstarfsverkefni þeirra mæðgna. Kjóllinn er tvískiptur við mittið. Efri parturinn er þakinn fallegum blúndum en neðri parturinn er sítt pils. Fallegt klassískt snið á kjólnum með tignarlegu V-hálsmáli. Mynd Arnór Halldórsson. „Minn brúðarkjóll er hannaður af mér og móður minni Rósu Láru, sem einnig saumaði kjólinn. Það kom eiginlega ekkert annað til greina en að láta mömmu mína sauma kjólinn, því hún er algjör snillingur í höndunum og það er alls ekki sjálfgefið að maður geti gift sig í kjól sem mamma manns gerði. Mér þykir líka bara ótrúlega vænt um það að geta sagt fólki að mamma mín hafi búið til brúðarkjólinn minn,“ segir Fanney. „Ég elska að teikna upp föt og láta eitthvað verða úr hugmyndum sem ég fæ. Ég sjálf er ekki mikil saumakona og því mjög gott að eiga eina svona snilldarmömmu. Ég vissi nákvæmlega hvað ég vildi og mamma kom með sitt að borðinu og útkoman varð þannig að ég hefði ekki getað verið ánægðari,“ segir Fanney um brúðarkjólinn sem hún og móðir hennar bjuggu til saman. Brúðarkjóllinn minn Flíkin sem skiptir öllu máli B rúðkaupstímabilið er um það bil að skella á og sjást nú gæsir og steggir víða um land. Ein stærsta tákn­ mynd brúðkaups í hugum margra er sjálfur brúðarkjóllinn. Ófáar stundir hjá verðandi brúður fara í að skipuleggja kjólinn og fleira sem tilheyrir þessum degi. Það er eiginlega ótrúlegt að þessi flík, sem mun einungis verða nýtt einu sinni á ævinni af sama einstaklingi er sú, sem konur leggja mestan metnað í. Enda ekki ólíklegt að brúðina hafi dreymt um að klæðast slíkum kjól frá unga aldri. Af þessu tilefni óskuðum við eftir skemmtilegum ábendingum um sérhannaða kjóla, heimagerða eða jafnvel breytta og uppfærða kjóla. Sumir hanna og sauma frá grunni, aðrir vinna að einhvers konar eftir­ líkingum, enn aðrir breyta og bæta keypta kjóla. n Hönn- unar- Horn Kolfinna Von Arnardóttir kolfinna@artikolo.is Kolfinna Von Arnardóttir Ég gekk að eiga Björn Inga Hrafnsson sumarið 2015. Eftir að hafa heillast á Another Creation-tískusýningunni á Reykjavik Fashion Festival fyrr um vorið ákvað ég að hafa samband við hönnuðinn Ýri Þrastardóttur og fékk hana til að hanna kjólinn. Við vildum hafa hann margbreytilegan svo úr varð þrískiptur kjóll. Í grunninn er þetta stuttur kokteilkjóll. Saumaði svo Ýr tvö pils, eitt sítt fyrir athöfnina og annað styttra fyrir veisluna. Kjóllinn er í takt við fatamerkið sjálft. Brúðarkjóllinn sem Ýr Þrastardóttir hannaði og saumaði sést hér með síða pilsinu sem var notað í athöfninni. Í veislunni var svo skipt um pils og sett styttra pils sem auðveldara var að dansa í og fagna. Mynd Ásgeir Ásgeirsson. Laufey Fríða Guðmundsdóttir Giftist Benedikt Árna Jónssyni í fyrrasumar í Skálholtskirkju. Dagurinn, staðurinn og kjóllinn var dásamlega fallegur. Brúðarkjóll Laufeyjar „Eftir að hafa að skoðað marga kjóla og myndir af gömlum klassískum kjólum þá var ég með einhverja ákveðna mynd af kjólnum í huganum. Ég vissi að mig langaði í minn eigin, sem enginn ætti eins og enginn hefði notað áður, þess vegna kom ekkert annað til greina en að sérhanna og sauma,“ segir hún. „Ég bjóst ekki við að finna einhvern góðan hönnuð í Noregi þar sem ég bý, en það endaði á því að ég fór og talaði við spænska konu sem var brúðarkjólameistari, hún var með alls konar áherslur sem ég var mjög sammála og hún var algjör sérfræðingur í sínu fagi. Ég sagði henni hvað ég var að hugsa og við teiknuðum kjólinn upp í sameiningu. Ég vildi hafa hann opinn í bakið, svo var ég eitthvað tvístígandi hvort ég ætti að hafa ermar eða ekki, svo hún saumaði kjólinn þannig að ef mig langaði að taka ermarnar af þá væri hægt að losa þær með því að draga í mjög fínan silkiþráð, ég reyndar gerði það aldrei þar sem ég var mjög ánægð með hann eins og hann var. Eftir það fundum við ofsalega fallega perlusaumaða blúndu sem var yfir undirkjólnum sem var úr satíni. Mér fannst svo skemmtilegt að hafa svolítinn slóða en vildi ekki hafa hann of þungan svo hann var úr fínu tjulli sem var saumað við blúnduna. Ég var rosalega ánægð með hann, fannst heildar- myndin koma mjög vel út. Þykir mjög vænt um hann og vona að stelpurnar mínar vilji nota hann þegar þar að kemur,“ segir Laufey um kjólinn sinn. Mynd Eddi Jónsson. Brúðarkjóll Karítasar „Maðurinn minn og ég giftum okkur 7.7.2012 í Laugarneskirkju en ég ólst upp á Hofteigi nálægt kirkjunni. Við bjuggum í London á þessum tíma og ég keypti kjólinn þar. Ég heillaðist af efninu og sniðinu og en lét breyta kjólnum að- eins þar sem mig langaði að vera með borða um mittið í staðinn fyrir skraut sem var á honum fyrir ofan mitti,“ segir Karítas. „Vera Þórðardóttir frænka mín bjó til borða á kjólinn sem ég held rosalega mikið upp á. Borðinn er úr silki með silíkoni og Swarovski-steinum en Vera er fatahönnuður og vann mikið með slík efni á þessum tíma, Lady Gaga klæddist m.a. flík eftir hana sem var gerð úr þeim efnum. Mynd Baldur Kristjánsson. Glæsilegt belti Karítas Diðriks- dóttir, markaðsstjóri hjá Igló & Indi, fékk frænku sína til að hanna glæsi- legt belti úr Swarovski-steinum. Þannig gerði hún brúðarkjólinn að sínum. Mynd Baldur Kristjánsson. Karítas með sínum heittelskaða
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.