Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Blaðsíða 13
Helgarblað 2. júní 2017 fréttir 13
eftir þegar fólk rennir sér. Skíðin eru
vanalega breið og virka vel í púður
snjó og mjúku færi utan brauta,“
segir Tómas. Hann hefur, ásamt
Helga Jóhannessyni lögmanni,
haldið úti fjallaskíðaferðum með
Ferðafélagi Íslands, sem einnig stóð
fyrri þessari ferð. „Þessi ferð sem far
in var á Sveinstind er líkast til stærsta
og fjölmennasta fjallaskíðaferð á Ís
landi hingað til, 45 manns með farar
stjórum og leiðsögumönnum. Ofan í
kaupið þá var þessi dagur á jöklin
um sá allra besti. Uppi á toppi var
norðangustur og fyrir vikið var loftið
alveg tært og hægt var að sjá norður
til Herðubreiðar og Snæfells.“
FÍFL-in ferðast
Tómas byrjaði fjallamennsku með
föður sínum á unga aldri. „Pabbi er
jarðfræðingur og vann sem leiðsögu
maður á sumrin uppi á hálendi. Ég
fékk að fara með í þessar ferðir. Um
tvítugt var ég svo eitt sumar í Þýska
landi og lærði þýsku. Ég vann svo
við fjallaleiðsögn í átta sumur með
læknanáminu, aðallega með Austur
ríkismenn og Þjóðverja, og kynntist
þá vel svæðunum við Herðubreið,
Kverkfjöll og í Skaftafelli ekki síður.
Eftir að hafa verið í tólf ár erlendis
kom ég heim og þá var hér brostið á
algjört fjallaæði. Þá hófst ég handa
ásamt kollegum mínum að rífa upp
starfsemi Félag íslenskra fjalla
lækna, FÍFL, til þessa að sameinast
í skemmtilegum ferðum og ná fal
legum myndum og laða fólk að úti
vistinni í leiðinni.“ n
Áfram Það er
þolinmæðisverk að
komast upp á öskju-
brún Öræfajökuls.
Mynd ÓLaFur MÁr Björnsson
Á fjallaskíðum Hlémegin jökuls
varð veðrið blítt og fólk þurfti að
fækka fötum. Mynd sigtryggur ari
sandfell Ferðin hófst á hefðbundinni fjallgöngu,
með skíðabúnaðinn á bakinu. Mynd sigtryggur ari
Línusteinn Við svonefndan línustein festa ferðalangar sig í
línur áður en gangan hefst yfir sprunginn jökulinn. Mynd sigtryggur ari
Á tindinum Hópurinn
fagnar að hafa náð á
tindinn. Mynd ÓLaFur MÁr Björnsson
tómas guðbjartsson „Eftir að hafa verið í
tólf ár erlendis kom ég heim og þá var hér br
ostið
á algjört fjallaæði.“ Mynd sigtryggur ari