Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Blaðsíða 26
Glæsileg salsahátíð, Midnight Sun Salsa, er nýafstaðin í Reykjavík. Hápunktur hennar
var salsadanskeppni sem haldin var á
laugardagskvöldið og meðal þeirra sem
kepptu þar er Pálmar Örn Guðmunds-
son sem kynntist salsa á Kúbu og fór á
námskeið hjá Salsa Ísland í kjölfarið.
„Þetta byrjaði þannig að ég ferðaðist
til Kúbu þar sem ég var í tíu vikur og ég
kynntist salsa þar,“ segir Pálmar Örn.
„Þegar ég kom heim aftur þá langaði
mig til að læra salsa, af því að ég hef
einfaldlega áhuga á dansi.“
Pálmar Örn er afar listhneigður og
helgast bæði vinnan og áhugamálin
af því, hann kennir börnum í grunn-
skóla Grindavíkur, hefur samið og æft
árshátíðarsýningu með nemendum efri
bekkja skólans, þjálfar í fótbolta, málar,
spilar og syngur sem trúbador auk þess
að dansa salsa.
Örlítið krefjandi í upphafi
Pálmar Örn fór fljótlega á byrjenda-
námskeið hjá Salsa Ísland og er í dag
búinn að fara á alls átta námskeið, bæði
byrjenda- og framhaldsnámskeið. „Það
var örlítið krefjandi fyrst að mæta og
þekkja engan og kunna ekki dansinn,“
segir Pálmar Örn. „En það er fljótt að
breytast og ég mæli með að fólk fari á
námskeið og sérstaklega ef það hefur
ekkert verið í dansi áður. Á námskeiðun-
um þá lærir þú sporin og svo fer maður
á danskvöldin í Iðnó til að æfa þau.“
Pálmar Örn segir það töfrum líkast að
fara á gólfið og dansa við einhvern með
hreyfingum í takti. „Það er ekki skipað
fyrir með orðum, heldur leiðir maður
dömuna áfram með ákveðnum hreyf-
ingum og bendingum, sem einmitt eru
kennd á námskeiðum. Tilgangurinn með
danskvöldunum er að æfa sig og verða
betri og betri. Það er ekkert mál að mæta
einn á þau, maður kynnist fólki gegnum
námskeiðin og þá gerist það ósjálfrátt að
maður dansar við þau á opnu kvöldun-
um, svo kynnist maður sífellt fleirum.“
Fyrsta keppnin
Pálmar Örn keppti í fyrsta sinn á
Midnight Sun Salsa og keyrði alls
fjórum sinnum í viku til Reykjavíkur,
bara fyrir salsað, en hann er búsettur í
Grindavík. „Edda valdi hópinn minn í
janúar og við slógum öll til. Síðan var
samin dansrútína fyrir okkur sem við
byrjuðum að æfa núna í maí, þannig að
síðustu vikur þá er ég búinn að mæta á
Frábær
Félagsskapur
og Fín hreyFing
Pálmar Örn Guðmundsson kynntist salsa
LíFið er
tækiFæri
– gerum það
skemmtiLegt
Ég er oft barnaleg, ég veit það og
mér er alveg sama. Ég hendi oft í
hnyttnar athugasemdir (að eigin
mati) þegar ég hitti fólk af því að
mér finnst gaman að hlæja sjálf
og fá aðra til að brosa. Af sömu
ástæðu pósta ég misgáfulegum
bröndurum og myndum á Face-
book. Fréttir um limlestingu fólks,
stjórnmálaumræða og stanslaust
væl er eitthvað sem ég set ekki
þar, ég er með vefsíður fréttamiðla
fyrir það fyrst nefnda, hef næstum
engan áhuga á stjórnmálum og ég
á vini til að hringja í þegar ég þarf
á öxl að halda til að gráta á.
Sumum finnst þetta sérstakt
og finnst nú kannski kominn tími
til að ég hagi mér eftir aldri, enda
komin á miðjan aldur með barn
sem nálgast þrítugsaldurinn hratt.
En ég er búin að ákveða að halda
uppteknum hætti eins lengi og
ég get. Ég ætla að vera konan á
Grund sem hendir í hjólastólarall
og koppafleytingar á ganginum
og klípur í rassinn á lækninum.
Það verður líka að vera eitthvað
fútt í köflum lífsins ef einhverjum
dytti í hug að skrifa um mann á
gamalsaldri, hvað þá ef lesningin á
að verða metsölubók. Það er ekkert
gaman að sigla nema séu öldur,
eins og máltækið segir. Hvert fleyið
ber mann svo áður en yfir lýkur er
eitthvað sem mun koma í ljós, en
vonandi verður áfram fútt og fjör í
hvaða höfn sem maður lendir í.
Ég er líka einstaklega forvitin
að eðlisfari, sem hentar auðvitað
mjög vel í mínu starfi. Hef einkar
gaman af fólki, öllu því sem fær
það til að „tikka“ og hvað það er
gera og ætlar að fást við í lífinu.
Þess vegna er alveg tilvalið ef
þú ert heima hjá þér eða annars
staðar að dútla við eitthvað sem
er skemmtilegt og áhugavert fyrir
þig og jafnvel fyrir aðra að láta
mig vita. Mig langar pottþétt til
að fræðast um það og koma því á
framfæri.
Sköpum tækifæri í lífinu, höf-
um það skemmtilegt og áhugavert
því lífið er of stutt fyrir leiðindi.
Kær kveðja, Ragna
ragna@dv.is