Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Blaðsíða 53

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Blaðsíða 53
Helgarblað 2. júní 2017 KYNNING 33 Hreinsun loftræstikerfa í fjölbýlishúsum mikilvæg Loftstokkahreinsunin K2 ehf. sérhæfir sig í hreinsun og sótthreinsun loftræstikerfa og hefur yfir áratuga reynslu af hreinsun loftræstikerfa á Íslandi. Magnús Ásmundsson, verkefnastjóri K2, segir fyrirtæk- ið sinna einstaklingum sem og fyrirtækjum og það sé nóg að gera enda gríðarlega mikilvægt að hreinsa loftræstikerfi reglulega áður en þau skaða heilsu fólks. Stundum er ekki þörf á hreinsun – þetta getið þið gert sjálf Það kemur stundum fyrir að starfsmaður K2 mætir til að skoða loftræstingu, til dæmis í baðher- bergi í fjölbýlishúsi, og þá kemur í ljós að ekki er þörf á hreinsun. Stundum þarf bara að skrúfa túðuna úr og þrífa. En þetta geta allir gert sjálfir. Þessi aðgerð er framkvæmd í þremur skrefum: 1. Þú byrjar á því að skrúfa miðjuna úr 2. Síðan snýrðu túðunni til að losa hana frá 3. Loks skolar þú túðuna og skrúfar hana síðan aftur Þegar þörf er á hreinsun – hvernig fer hún fram? „Loftræsting í fjölbýlishúsum er í flestum tilfellum á gluggalausum baðherbergjum og geymslum. Það er mjög mikilvægt að loft- ræstingin nái að losa raka og hita sem safnast upp því að þegar loftstokkar eru skítugir og ná ekki að loftræsta rýmið þá er hætta á að raki þéttist í herberginu sem býður svo upp á skemmdir og jafnvel myglu. Hreinsun fer þannig fram að starfsmenn K2 mæta og fara annaðhvort upp á þak eða á lagnaloft sé það til staðar, þaðan eru loftræstistokkar hreinsaðir frá þaki niður í hverja íbúð fyrir sig og í sumum tilfellum sótthreinsaðir. Einnig er blásari hreinsaður sé hann til staðar. Að því loknu þarf að fara inn í allar íbúðir í húsinu sem tengjast loftræstingunni og þar er lofttúðan tekin úr og þrifin, og restin af loft- stokk hreinsuð. Það er lítið ónæði fyrir íbúa hússins við svona hreinsun og yfirleitt tekur það ekki meira en 10–15 mínútur að klára hverja íbúð eftir að búið er að hreinsa lagnir og blásara frá þaki. Æskilegt er að hreinsa útsogskerfi frá baðher- bergjum á 3–5 ára fresti.“ Magnús bætir við að K2 bjóði upp á ástandsskoðun loftræsti- kerfa og mat á því hvort tími sé kominn á hreinsun; ekkert er rukkað fyrir þá þjónustu á höfuð- borgarsvæðinu. Þjónustusíminn hjá Loftstokkahreinsun K2 ehf. er 775-7770 og 557-7000. Heima- síðan er: http://k2.is/. Loftstokkahreinsunin K2: Mjúkur barki fyrir Mjúkur barki eftir Rör fyrir Rör eftir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.