Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Blaðsíða 50
30 sport Helgarblað 2. júní 2017 FH gæti misst af lestinni - Pressan er á KR gegn Grindavík n Keppni í Pepsi-deild karla er að harðna n Línur á toppi og botni að skýrast Í Kaplakrika á sunnudaginn fer fram leikur umferðarinnar þegar FH og Stjarnan eigast við. FH hefur misstigið sig hressilega undanfarið og er sjö stigum á eftir Stjörnunni, tap á sunnudag myndi gera liðinu afar erfitt fyrir í að verða Íslandsmeistari þriðja árið röð. KR- ingar þurfa einnig á sigri að halda og eftir tvö slæm töp í röð vilja Valsar- ar koma sér á beinu brautina. Tvö lið sem byrjuðu illa en hafa komið sér á skrið, ÍA og Breiðablik, eigast við á Skaganum. Nýliðar KA, sem byrjuðu með látum, hafa aðeins misst flugið og heimsækja nú Ólafsvík. Í Reykja- vík verður svo slagur á milli Víkings og Fjölnis. n Sunnudagurinn 4. júní - 17.00 Valur - ÍBV (Valsvöllur) n Það er mikið undir í þessum leik en Valsmenn þurfa að koma sér aftur á rétta braut eftir tvö slæm töp í röð. Liðið tapaði fyrir Grindavík í Pepsi-deildinni um síðustu helgi og féll svo úr leik í bikarnum á heimavelli gegn Stjörnunni á miðvikudag. Leikurinn er áhugaverður fyrir margar sakir en Kristján Guðmundsson sem nú stýrir ÍBV var þjálfari Vals árin 2011 og 2012. Kristjáni gekk ekki vel á Hlíðarenda og var látinn fara að lokum. Undir stjórn Kristjáns hjá Val léku leikmenn eins og Haukur Páll Sigurðsson og Arnar Sveinn Geirsson sem enn í dag leika með Val. Sigurbjörn Hreiðarsson sem nú er aðstoðarþjálfari Vals var einnig leikmaður undir stjórn Kristjáns. Í liði ÍBV í dag eru tveir leikmenn sem Kristján fékk til Vals á sínum tíma, Jónas Tór Næs kom til Vals frá Færeyjum þegar Kristján var þjálfari liðsins og Hafsteinn Briem, sem verður í banni í leiknum á sunnudag, kom einnig til Vals þegar Kristján var þar þjálfari. Báðir leika undir hans stjórn í Eyjum í dag. Tveir fyrr- verandi leikmenn ÍBV eru í röðum Vals í dag, Rasmus Christiansen, miðvörður Vals, átti sín bestu ár á Íslandi þegar hann lék með ÍBV frá 2010 til ársins 2012. Á dögunum fékk svo Valur Eið Aron Sigurbjörnsson heim úr atvinnumennsku. Eiður ólst upp hjá ÍBV og gæti frumraun hans í rauðu treyjunni orðið gegn uppeldisfélaginu á sunnudag. Sunnudagur 4. júní - 20.00 FH - Stjarnan (Kaplakrikavöllur) n Ætla FH-ingar að vera með í barátt- unni á toppi Pepsi-deildar karla er stóra spurningin í þessum leik. Fari Stjarnan með sigur af hólmi í leiknum er liðið tíu stigum á undan FH á toppi deildarinnar þegar sex umferðir eru búnar. Stjarnan verður án fyrirliða síns, Daníels Laxdal sem meiddist í bikarleik í vikunni. Stjarnan á góðar minningar af Kaplakrikavelli en þar kom í hús fyrsti og eini Íslandsmeistara- titill félagsins, árið 2014. Stjarnan vann þá dramatískan sigur með marki úr vítaspyrnu en sigurmark leiksins kom á lokaandar- tökum hans þegar Ólafur Karl Finsen skoraði úr vítaspyrnu. Í liði FH í dag eru Gunnar Nielsen, Halldór Orri Björnsson og Veigar Páll Gunnarsson sem allir léku með Stjörnunni áður, Gunnar og Veigar voru í liði Stjörnunnar árið 2014 þegar liðið varð Íslandsmeistari. Aðstoðarþjálfari FH í dag er Ólafur Páll Snorrason en hann þekkir til hjá Stjörnunni, hann lék með liðinu árið 2001 og 2002 þegar liðið lék í 1. deildinni. Mánudagurinn 5. júní - 17.00 Víkingur Ólafsvík - KA (Ólafsvíkurvöllur) n Botnlið Víkings Ólafsvíkur tekur á móti nýliðum KA í mikilvægum leik fyrir bæði lið, Ólafsvík hefur tapað báðum leikjum sínum á heimavelli en heimavöllurinn þarf að gefa vel í sumar ætli Ólafsvík að eiga möguleika á að halda sæti sínu í Pepsi-deildinni. KA hefur aftur á móti misst flugið eftir frábæra byrjun og eitt stig í síðustu tveimur leikjum er léleg uppskera, undir lok síðustu tveggja leikja hefur liðið misst jafntefli og sigur úr sínum höndum. Liðið tapaði fyrir Stjörnunni í Garðabæ með marki á lokamínútunum og Víkingur jafnaði svo í uppbótatíma á Akur- eyri um síðustu helgi. Húsavík er ein helsta uppspretta leikmanna KA en fjórir slíkir voru í byrjunarliði KA í síðasta leik. Þessi lið mættust síðast sumarið 2015 í september en þá léku bæði lið í 1. deildinni. Ólafsvík hafði þá tryggt sér sæti í Pepsi-deildinni en jafntefli varð til þess að KA missti af sæti í deild þeirra bestu það árið. Mánudagurinn 5. júní - 19.15 ÍA - Breiðablik (Norðurálsvöllurinn) n Leikmenn Breiðabliks fara með slæmar minningar á Akranes á mánudaginn þegar liðið heimsækir ÍA, tap gegn ÍA á Skaganum í fyrra var ein helsta ástæða þess að Breiðablik komst ekki í Evrópukeppni. Tapið var Blikum dýrt og Arnari Grétarssyni, sem þá var þjálfari liðsins, en hann var rekinn í upphafi þessa tímabils eftir slæmt gengi frá síðustu leiktíð. Skagamenn unnu sinn fyrsta sigur í sumar í síðustu umferð er liðið heimsótti ÍBV, Blikar eru hins vegar komnir með sjálfstraust eftir erfiða byrjun og hafa unnið unnið tvo leiki í röð. Í marki Skagamanna stendur Ingvar Þór Kale en hann kom til félagsins fyrir tímabilið, Í Kópavoginum þekkja menn Ingvar vel en hann var hluti af liði Breiðabliks sem varð bikar- og Íslandsmeistari árin 2009 og 2010. Varamarkvörður ÍA er svo Páll Gísli Jónsson en hann lék einnig með Breiðabliki árin 2003 og 2004 þegar liðið lék í 1. deildinni. Mánudagurinn 5. júní - 19.15 KR - Grindavík (Alvogen-völlurinn) n KR-ingar þurfa nauðsynlega á sigri að halda gegn sprækum Grindvíkingum á heimavelli. KR er aðeins með sjö stig eftir fimm umferðir og liðið má ekki misstíga sig meira á næstunni til að halda í við toppliðin. KR-ingar eru í markmanns- vandræðum en Stefán Logi Magnússon og Sindri Snær Jensson eru báðir frá vegna meiðsla. Í liði KR er goðsögn úr Grindavík, sjálfur Óskar Örn Hauksson, en hann lék með Grindavík áður en hann kom til KR árið 2007. Grindavík sem er nýliði í deildinni hef- ur byrjað með látum en minningar þeirra af KR velli síðustu ár eru ekki góðar, Grindavík vann síðast á KR velli árið 2004 þegar liðið vann 2-3 sigur en þar skoraði Óskar Örn sig- urmark Grindvíkinga. KR lék þá undir stjórn Willums Þórs Þórssonar sem tók aftur við KR síðasta sumar. Frá þessum leik árið 2004 hefur Grindavík í níu skipti heimsótt KR-völl og aðeins náð einu stigi. Mánudagurinn 5. júní - 20.00 Víkingur Reykjavík - Fjölnir (Víkingsvöllur) n Það verður Reykjavíkurslagur þegar Fjölnir heimsækir Víking í Pepsi-deild karla á mánudaginn. Í fyrra vann Fjölnir góðan sigur, 1-2, í Víkinni þar sem Martin Lund Pedersen skoraði sigurmark Fjölnis. Martin yfirgaf Fjölni eftir tímabilið og leikur nú með Breiðabliki. Víkingar létu Igor Taskovic fara frá sér eftir síðustu leiktíð og hann samdi þá við Fjölni, Igor mætir nú í fyrsta sinn á sinn gamla heimavöll. Víkingar leika fyrsta heimaleik sinn undir stjórn Loga Ólafssonar í þessum leik en honum til aðstoðar verður Bjarni Guðjónsson sem ráðinn var til starfa í gær, Bjarni hefur ekki átt farsælan feril í þjálfun en hann hefur stýrt Fram og KR með slökum árangri. Bjarni vonast nú til þess að koma þjálfara- ferli sínum á rétta braut. Staðan í Pepsi-deild karla: 1 Stjarnan 13 stig 2 Valur 10 stig 3 Grindavík 10 stig 4 KA 8 stig 5 KR 7 stig 6 Fjölnir 7 stig 7 ÍBV 7 stig 8 FH 6 stig 9 Breiðablik 6 stig 10 Víkingur R 4 stig 11 ÍA 3 stig 12 Víkingur Ólafsvík 3 stig Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is Það er hart barist í Pepsi-deild karla Grindavík og Valur verða í eldlínunni um helgina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.