Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Blaðsíða 42
Helgarblað 2. júní 2017KYNNINGARBLAÐ4 Allt fyrir garðinn
Réttarhóll:
Fjölbreytt ræktun
Garðyrkjustöðin Réttarhóll á Svalbarðseyri var stofnuð árið 1990 og er hún enn í
fullum blóma í dag. Í gegnum tíð-
ina hefur aðalsmerki fyrirtækisins
verið framleiðsla ýmissa sumar-
blóma og runna. Að sögn Ólafs
Eggertssonar, eiganda og eina
starfsmanns Réttar hóls,er hann
með á boðstólum allar algeng-
ustu tegundir sumarblóma sem
ræktaðar eru fyrir norðan.
„Auk sumarblómanna er ég
einnig með fjölær blóm, nokkrar
tegundir blaðplantna og aðrar
garðplöntur. Hér rækta ég einnig
ýmsar tegundir og afbrigði runna.
Svo fást á Réttarhóli pottablóm en
einkum er um að ræða tegundir
sem þola lítinn vetrarhita, eða
eru einærar. Einnig er ég með
matjurtir og skógarplöntur í
fjölpottabökkkum eru oftast til,“
segir hann.
Trjáplöntur, áburður
og pottamold
„Kryddjurtirnar sem ég rækta hér
eru vinsælar enda verður sífellt
algengara að fólk vilji hafa þær í
eldhúsgluggum eða annars staðar
sem auðvelt er að grípa til þeirra
við matargerðina. Matjurtir, eins og
t.d. hvítkál, blómkál og spergilkál,
selst vel og sama má segja um
gulrófur, rauðrófur og ýmsar gerðir
salats. Trjáplöntur (nokkrar tegundir
í pottum) og skógarplöntur er
einnig að finna á Réttarhóli auk
þess sem hér er einnig fáanleg
pottamold og áburður,“ segir Ólafur
og býður fólk velkomið á Réttarhól.
Stöðin er ofan við kirkjuna á
Svalbarði, rétt ofan við þorpið Sval-
barðseyri, við austan verðan Eyja-
fjörð, um 12 kílómetra frá Akureyri.
Réttarhóll
601 Svalbarðseyri
Sími: 461-1660
www.rettarholl.is