Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Blaðsíða 54
34 menning Helgarblað 2. júní 2017 Þ að er ótrúlegt að Nick Payne, hafi aðeins verið á 28. aldursári þegar leik- rit hans, Í samhengi við stjörnurnar, eða Con- stellations, var fyrst frumsýnt. Verkið fékk glimrandi dóma og Nick Payne hlaut Evening Standard- leiklistarverðlaunin fyrir handritið. Þessi virtu verðlaun hafa verið veitt í rúm 60 ár en aldrei í sögu þeirra hefur jafn ungt leikskáld hlotið þau. Ári síðar hlaut jafnaldri hans, Lucy Kirkwood, verðlaunin, en þau voru þá bæði orðin árinu eldri, svo metið var aldrei í hættu. Það er ljóst að fram er að stíga sterk kynslóð ungra leikskálda víða um heim og það er bæði skemmtilegt og brýnt fyrir leikhúsáhorfendur hér á landi að fá að kynnast verkum þeirra í íslenskri þýðingu. Gjarnan mætti fjölga slíkum uppsetningum á næstu leik árum. Í leikritinu kynnumst við þeim Maríu og Ragnari. Hann er með býflugnabú uppi á þaki heima hjá sér og selur hunang í sérvöru- verslunum en hún starfar í háskóla við flóknar rannsóknir á eðlis- fræðisviði. Þau virðast ekki eiga margt sameiginlegt og líkurnar á áframhaldandi samskiptum eða mögulegu sambandi virðast litlar. En þarna spilar aldur höfundar inn í verkið. Á yngri árum spáir mað- ur einmitt gjarnan í hversu ótrú- lega margt þurfi að ganga upp til þess eins að maður hafi orðið til. Makaval og barneignir hvers ein- asta forfeðra okkar þurftu allar að ganga upp með nákvæmlega þeim hætti sem þær gerðu. Jafnvel fram- hjáhald í fornöld getur hafa skipt sköpum fyrir möguleika okkar til lífs. Maður spáir í það hversu ólík- legt þetta líf allt er og hvernig allar gjörðir hanga saman með óendan- legum áhrifum fram í tímann. Þá hættir ungu fólki frekar til þess að meta tímann sem hlutfall af raun- aldri og gera of mikið úr honum, í stað þess að mæla hann út frá væntanlegum heildarlífaldri sem vissulega verður auðveldara með árunum. Á þessu sviði, hinna ótelj- andi möguleika og þýðingarmiklu tímasetninga, leikur höfundur verksins sér. María og Reynir fá tækifæri til að endurtaka samskipti sín nokkrum sinnum á hverjum tímapunkti verksins. Þau eru sjálfum sér sam- kvæm og samskiptin breytast ef til vill ekki alltaf mikið, en þó nóg til þess að maður sér hvernig ólík staða myndast, nýir möguleikar skapast, stundum góðir, stundum vondir. Framúrskarandi tæknivinna er það sem fyrst kemur upp í hug- ann þegar maður hugsar um leik og leikstjórn verksins. Það er ekki auð- velt að læra texta og sviðshreyfingar sem endurteknar eru nokkrum sinnum, en alltaf í örlítið breyttri mynd. Og það krefst mikillar út- sjónarsemi af bæði leikurum og leikstjóra að halda breytilegum blæbrigðum svo fínstilltum sem raun bar vitni, án þess að áhorf- endur þreytist á endurtekningun- um. En þetta tókst þeim Árna Krist- jánssyni leikstjóra og leikurunum Hilmi Jenssyni og Birgittu Birgis- dóttur einstaklega vel upp með. Það var hárrétt ákvörðun hjá leik- stjóranum að færa áhorfendur nær leikurunum með því að raða þeim í kringum sviðið og stytta áhorf- endasalinn. Þótt einstaka sinnum hafi ég saknað þess að sjá ekki framan í leikara sem þá stundina sneru sér að áhorfendum á móti mér, þá bætti nándin það upp að mestu. Áhorfendur hefðu farið á mis við svo miklu meira, sitjandi á aftari bekkjum leikhússins. Það sem helst er út á sýninguna að setja er skortur eða jafnvel áhugaleysi á fleiri skoplegum lausnum. Þannig hefði mátt dýpka angistina sem er undirliggjandi í verkinu. Sviðsmyndin var einföld og fal- leg. Strengjafræðin er teiknuð upp á mitt sviðið í formi steina sem hanga saman úr loftinu í glærum þráðum og minna líka á örlagavef. Strengir mynduðu líka sléttan flöt á tveimur oddhvössum þríhyrningum sem settir höfðu verið saman á lang- hliðinni. Þessi stóri og skrítni hlutur nýttist með ýmsum óvæntum hætti í gegnum sýninguna. Búningur Maríu var svolítið tilgerðarlegur, kannski ekki síst vegna þess að hann var of afgerandi til þess að virka á mismunandi tímaskeiðum verksins. Bæði lýsing og tónlist voru samviskusamlega unnin til þess að þjóna verkinu frekar en að leiða það áfram og féllu því vel inn í heildarmyndina. Í stuttu máli er hér um að ræða verk sem er vel þess virði að kíkja á. Gott handrit, sannfærandi leik- ur og framúrskarandi leiktækni skapa sögusvið sem fær mann til að leiða hugann að því hversu all- ar okkar athafnir, jafnvel fínlegustu blæbrigði radda okkar, geta haft af- gerandi áhrif á viðbrögð annarra og mótað framvindu sem okkur órar ekki fyrir. n Leiðarkerfi ástarinnar Birgitta Birgisdóttir og Hilmir Jensson Tekst einstaklega vel upp. Bryndís Loftsdóttir ritstjorn@dv.is Leikhús Í samhengi við stjörnurnar Höfundur: Nick Payne Leikstjóri: Árni Kristjánsson Leikarar: Hilmir Jensson og Birgitta Birgisdóttir Leikmynd og búningar: Þórunn María Jónsdóttir Lýsing: Hafliði Emil Barðason Tónlist og hljóðheimur: Harpa Fönn Sigurjónsdóttir Sýnt í Tjarnarbíói „framúrskarandi tæknivinna er það sem fyrst kemur upp í hugann þegar maður hugsar um leik og leikstjórn verksins. Metsölulisti eymundsson 25.–31. maí 2017 Allar bækur 1 Litla bakaríið við Strandgötu Jenny Colgan 2 Ljótur leikurAngela Marsons 3 Stofuhiti Bergur Ebbi Benediktsson 4 Gæfuspor - Gildin í lífinu Gunnar Hersveinn 5 Hljóðar raddirAnn Cleeves 6 Sagan af barninu sem hvarf Elena Ferrante 7 Iceland Flying highÝmsir höfundar 8 Í skugga valdsinsViveca Sten 9 LögganJo Nesbø 10 Íslensk öndvegis- ljóð Páll Valsson tók saman Handbækur / fræði- bækur / ævisögur 1 Stofuhiti Bergur Ebbi Benediktsson 2 Gæfuspor - Gildin í lífinu Gunnar Hersveinn 3 Náðu tökum á félagskvíða Sóley Dröfn Davíðsdóttir 4 Laxness um land og þjóð Halldór Laxness 5 Handbók um íslensku Jóhannes B. Sigtryggsson ritstjóri 6 171 Ísland áfanga-staðir í alfaraleið Páll Ásgeir Ásgeirsson 7 Perlur Laxness Halldór Laxness 8 Íslensk orðsnilld Ingibjörg Haraldsdóttir valdi 9 Býr Íslendingur hér Garðar Sverrisson 10 Saga tónlistarinnar Árni Heimir Ingólfsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.