Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Blaðsíða 20
20 umræða
Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson ritstjóri: Kolbrún
Bergþórsdóttir ritstjóri dv.is: Kristjón Kormákur Guðjónsson Fréttastjóri dv.is: Einar Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjóri : Sigurvin Ólafsson umbrot: DV ehf. Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
aðalnúmer: 512 7000
auglýsingar: 512 7050
ritstjórn: 512 7010
fréttaskot
512 70 70
Heimilisfang
Kringlan 4-12, 4. hæð
103 Reykjavík
Sandkorn
Helgarblað 2. júní 2017
Ég verð bara að hrósa Pírötum sem koma
hér upp í röðum og eru rödd skynseminnar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson í umræðum um jafnlaunavottun á Alþingi.
Vanstilltur Jón Þór
Það er mikil list að koma í ræðu-
stól Alþingis og láta höggin
dynja á andstæðingum sínum
þannig að undan svíði. Í slík-
um atgangi þarf að huga að
mörgu. Að draga menn sund-
ur og saman í hæðni er alltaf
vinsælt og stundum getur það
gengið að byrsta sig harka-
lega úr pontu. Það er hins vegar
ekki sama hvernig slíkt er gert.
Jón Þór Ólafsson, þingmaður
Pírata, missti gjörsamlega alla
stjórn á sér í ræðustól Alþingis á
fimmtudag í umræðum um skip-
an dómara í Landsrétt. Öskraði
hann út í þingsalinn í vanstill-
ingu og sagði að ekki væru all-
ir þingmenn lögfræðingar. „Við
þurfum fokking tíma til að geta
unnið þetta mál,“ æpti Jón Þór
og var réttilega áminntur fyrir
vikið af forseta þingsins, raun-
ar má velta fyrir sér hvort ekki
hefði átt að víta hann fyrir upp-
hlaupið. Jón Þór baðst afsök-
unar á orðnotkuninni en ákvað
engu að síður að ástæða væri til
að halda ræðu sinni áfram, æp-
andi. Flokkur sem hefur svona
fulltrúa getur ekki ætlast til þess
að verða tekinn alvarlega og því
verða Píratar alltaf afgangsstærð
í íslenskum stjórnmálum.
Endurkoma í pólitík í
óþökk stjórnar
Í byrjun vikunnar var Almari
Guðmundssyni sagt upp störfum
sem framkvæmdastjóra Samtaka
iðnaðarins eftir
tæplega þriggja
ára starf. Hvorki
Almar né stjórn-
armenn samtak-
anna hafa svar-
að fyrirspurnum
fjölmiðla um
ástæðu uppsagnarinnar. Heim-
ildir DV herma að óánægja hafi
verið innan stjórnar vegna þess
að Almar hafi tekið sæti sitt sem
aðalmaður í bæjarstjórn Garða-
bæjar á síðari hluta ársins 2016.
Almar skipaði sjötta sæti á fram-
boðslista Sjálfstæðisflokksins í
sveitarstjórnarkosningunum í
maí 2014 sem vann yfirburða-
sigur en þremur mánuðum
síðar var hann ráðinn fram-
kvæmdastjóri SI. Þá fór hann í
leyfi frá bæjarstjórnarstörfum og
opnaði það dyr fyrir bæjarstjór-
ann Gunnar Einarsson sem skip-
aði áttunda sæti listans og náði
ekki kjöri sem aðalmaður. Almar
var í leyfi í tvö ár en sneri svo aft-
ur til leiks í pólitíkina í haust í
óþökk stjórnar.
Á fagmáli heitir það að kyngja
ælunni í þágu mikilvægra hagsmuna
Brynjar Níelsson við atkvæðagreiðslu um jafnlaunavottun á Alþingi.
Góðir grannar í Garðabæ
E
itt af því einkennilega við ís-
lenskt samfélag er að það
er eins og alveg sérstök lög-
mál gildi hér á landi þegar
kemur að verðlagningu. Það
hefur nánast verið ætlast til þess að
neytendur sýni því ríkan skilning
þegar verið er að okra á þeim. Hvað
eftir annað hafa þeim verið send
þau skilaboð að vilji þeir ekki borga
það sem upp sé sett þá geti þeir étið
það sem úti frýs. Íslenskir neytend-
ur hafa löngum sýnt okrurum sínum
mikið langlundargeð og borgað það
sem upp er sett nánast möglunar-
laust – enda hafa þeir oft ekki átt val
um annað.
Frá þessu eru þó vissulega undan-
tekningar og má þar nefna tilkomu
Bónuss á sínum tíma, sömuleiðis
ELKO og ekki má gleyma IKEA. Og
nú höfum við fengið Costco. Tilkoma
Costco er mikill happafengur fyrir ís-
lenska neytendur sem hafa sannar-
lega ekki stillt gleði sinni í hóf. Á
samfélagsmiðlum deila tugþúsundir
reynslu sinni af viðskiptum við Costco
og bera saman við verð hjá öðrum
verslunum hérlendis. Þessi neytenda-
vakt tugþúsunda haukfránna augna
er besta aðhald sem íslensk verslun
hefur fengið í langan tíma. Bent hef-
ur verið á að þessi verðsamanburður
sé ekki alltaf sanngjarn og það er ör-
ugglega rétt. En það breytir engu um
að hann er sanngjarn í langflestum
tilvikum. Íslensk verslun hefur ein-
faldlega alls ekki verið nægilega neyt-
endavæn og á köflum ansi fruntaleg.
Hinn dugmikli framkvæmdastjóri
IKEA, Þórarinn Ævarsson, sagði í ný-
legu viðtali: „Ég tel íslenska verslun
eiga mjög lítið inni hjá neytendum.
Menn hafa farið fram með truntu-
skap og okri mjög lengi og fólk hefur
almennt fundið það.“ Þetta er hárrétt
greining á stöðunni og rímar full-
komlega við upplifun neytenda.
Framkvæmdastjóri IKEA hefur
verið ólatur við að tala máli neytenda
og reyndar svo mjög að hann sagði
eitt sinn að fyrirtæki sitt hefði skil-
að of miklum hagnaði. Landsmenn
ráku vitaskuld upp stór augu við þau
orð, enda fremur óvanir því að þeir
sem reka fyrirtæki setji hag neytenda
í fyrsta sæti.
Það er sannarlega við hæfi að
Costco og IKEA séu grannar í Garða-
bæ. Það setur líka góðan svip á
bæjar félag sem í umræðu manna á
milli er alltof oft kennt við gulldrengi,
silfurskeiðar og græðgi. n
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
E
ins og fram hefur komið í
fjölmiðlum hef ég nú í nafni
svokallaðrar Imrali-sendi-
nefndar afhent Blaðamanna-
félagi Íslands skýrslu um
stöðu mannréttindamála í Tyrklandi
og þá ekki síst um brot sem framin
eru á Kúrdum. Imrali vísar til eyju í
Marmarahafinu þar sem tyrkneska
stjórnin hefur haldið Öcalan, leið-
toga Kúrda, í einangrunarfangelsi
síðan 1999. Umrædd sendinefnd,
sem var í Tyrklandi í febrúar síðast-
liðnum, vildi hitta Öcalan og þing-
menn sem sitja á bak við lás og slá
en þeir eru flestir úr röðum Kúrda. Sú
beiðni var að vettugi virt.
BÍ birtir skýrsluna
Blaðamannafélag Íslands hefur birt
skýrslu Imrali-sendinefndarinnar á
fréttavef sínum og er í fréttatilkynn-
ingu BÍ, eðli máls samkvæmt, fyrst og
fremst vísað í umfjöllun Imrali-hóps-
ins um tjáningar- og fjölmiðlafrelsi
sem nú fer mjög hrakandi í Tyrk-
landi og var þó ekki gott fyrir, þús-
undir manna dregnar fyrir dómstóla
vegna skoðana sinna, bæði frétta-
menn og fólk sem tjáir sig á samfé-
lagsmiðlunum svonefndu á gagn-
rýnin hátt gagnvart stjórnvöldum.
Hvet ég lesendur DV til að kynna sér
efni umræddrar skýrslu á vef Blaða-
mannafélags Íslands.
„En við hefðum ekki getað hist
því ég var í fangelsi“
Þann tíma sem ég sat á þingi Evrópu-
ráðsins í Strassborg lagði ég mig sér-
staklega eftir því að fylgjast með mál-
stað Kúrda. Hafði ég haft áhuga á
frelsisbaráttu þeirra allar götur frá því
Erlendur Haraldsson prófessor var
einn helsti talsmaður þeirra í Evrópu.
Síðan tók það að vekja athygli mína
hve sterkar lýðræðisáherslur voru í
málflutningi þeirra. Og þegar ég á
eigin vegum heimsótti Diyarbakir,
höfuðstað Kúrda í Austur-Tyrklandi,
og fór þar víða um héruð árið 2014,
vakti það athygli mína að tal þeirra
um jafnrétti kynjanna var meira en
orðin tóm. Þar sem þeir höfðu náð
kosningu til að stýra sveitarfélögum,
voru bæjarstjórarnir alltaf tveir, karl
og kona, svo áþreifanlegt dæmi sé
nefnt. Þegar komið var fram á árið
2015 hitti ég sendinefnd sem kom-
in var til Strassborgar að tala máli
Kúrda. Í hópnum var ungur lög-
fræðingur, Erdu Günay. Á daginn
kom að hún var frá Diyarbakir. „Synd
að við hittumst ekki þar,“ sagði ég
hugtekinn af frásögnum hennar, „ég
var þarna á ferð í febrúar 2014.“ „Ég
var þá líka í Diyarbakir,“ sagði hún,
„en við hefðum ekki getað hist því ég
var í fangelsi.“ Ég starði í forundran á
stúlkuna sem gæti hafa verið dóttir
mín. „Mín sök var að vinna með lög-
fræðiteymi Öcalans eftir að ég lauk
námi, fyrir vikið sat ég fimm ár á bak
við lás og slá.“
Þær eru að koma til Íslands!
Nú er þessi kona, Erdu Günay, að
koma til Íslands og verður í Iðnó í há-
deginu á laugardag, klukkan tólf. Og
líka Havin Guneser, sem er höfuð-
þýðandi rita Öcalans, þekkt baráttu-
kona. Þegar ég hitti hana fyrst færði
hún mér nýþýdda bók, volga úr prent-
smiðjunni. Hún sagði að önnur væri á
leiðinni. „Þegar hún kemur út, þá býð
ég þér til Íslands,“ sagði ég. Og nú er
Havin að koma hingað til lands og
hvet ég alla til að hlýða á mál hennar
og Erdu Günay í Iðnó á laugardaginn.
Einhver bið verður hins vegar á því
að Fehrat Encu komi hingað til lands.
Um hann hef ég fjallað áður í DV og
sennilega er Encu eini fangelsaði
tyrkneski þingmaðurinn sem hefur
rýnt af áhuga í skrif þessa blaðs.
Fehrat Encu í DV
Þannig er málum háttað að ég ákvað
að velja, nánast af handahófi, þing-
mann sem hefði verið fangelsaður,
og rýna í hans mál sérstaklega.
Fyrir valinu varð þessi einstakling-
ur, Fehrat Encu, þingmaður Lýð-
ræðisfylkingarinnar, HDP, sem er
flokkur Kúrda. Hann var fangelsað-
ur í byrjun nóvember í fyrra ásamt
tólf öðrum þingmönnum og fjölda
stjórnmálamanna sem starfa á
sveitar stjórnarstiginu. Ferhat Encü
er 32 ára aldri. Í DV fjallaði ég á sín-
um tíma um baráttu hans fyrir því
að fá opinbera og óvilhalla rannsókn
á fjöldamorðum sem framin voru í
desember árið 2011, en flestir þeirra
sem þá féllu fyrir sprengjuregni tyrk-
neska lofthersins í fjallahéruðum sem
liggja að Írak, voru á unglingsaldri og
flestir í fjölskyldu Ferhats, þar á með-
al ung systkini hans. Í kjölfar þessara
atburða bauð Ferhat sig fram til þings
og hlaut kosningu í júníkosningunum
2015, en þá vann HDP stórsigur.
Gladdist yfir blaðaskrifum
Víkur nú sögunni að nýju til Imrali-
sendinefndarinnar í febrúar síðast-
liðnum. Að sjálfsögðu spurðist ég þá
fyrir um fangann sem ég hafði valið
að fylgjast sérstaklega með. Og viti
menn. Daginn sem við komum til
Istanbúl, eftir för okkar til Diyar bakir
þar sem Kúrdar eru fjölmennastir,
fréttum við að hann hefði þá fyrr um
daginn verði látinn laus. Kom hann
á hótelið þar sem við dvöldum og
átti með okkur fund. Notaði ég tæki-
færið og sýndi honum umfjöllunina
um hann í DV. Gladdi það hann. En
það var skammvinn gleði því fáein-
um klukkustundum síðar var hann
aftur kominn á bak við rimlana og
er þar enn!
Þeirra rödd mun hljóma á
laugardag
Þetta á að verða okkur hvatning sem
viljum vekja athygli á mannréttinda-
brotum gegn Kúrdum. Á laugar-
dag, klukkan 12 á hádegi, eigum við
þess kost að hlýða á baráttukonurnar
fyrrnefndu, fræða okkur og hvetja.
Það á að hlusta á einstaklinga sem
sýnt hafa í verki að þeir eru tilbúnir að
fórna frelsi sínu í þágu mannréttinda.
Þeirra rödd verður að ná eyrum
okkar. Og þeirra rödd mun hljóma í
Iðnó á laugardag. n
Um Kúrda, konur og Fehrat Encu
Ögmundur Jónasson
fyrrverandi heilbrigðisráðherra
Kjallari
„Það er sannarlega
við hæfi að Costco
og IKEA séu grannar í
Garðabæ.