Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Blaðsíða 9
Helgarblað 2. júní 2017 KYNNING 9
Framúrskarandi
svalalokunar-
kerfi, garðskálar,
hurðir og gluggar
frá Solarlux
Skelin ehf., Höfðabakka 9 í Reykjavík, annast fram-leiðslu og sölu á svalalok-
unarkerfum, sólstofum og garð-
skálum, gluggum, hurðum og fleiru
frá þýska fyrirtækinu Solarlux. Sol-
arlux er leiðandi fyrirtæki á þessu
sviði og einn sterkasti framleiðandi
í glerlokunum og glerskálum,
jafnt til notkunar utandyra sem
innandyra. Lausnir frá Solarlux
eru meðal annars algengar fyrir
svalir á fjölbýlishúsum, einka-
heimilum, hjá verslunum, sund-
stöðum, veitingastöðum og víðar.
Svalalokunarkerfi fást bæði með
og án pósta og hið sama gildir
um sólstofur og garðskála. Allar
póstalausar svalalokanir eru úr
hertu gleri og rafhúðuðum ál prófíl.
Þök eru enn fremur úr álprófíl og
aldrei notast við plastefni.
Skelin framleiðir enn fremur
margar gerðir af handriðum,
lokanir á svalaganga og annað
þvíumlíkt. Er allur frágangur
sérlega vandaður og snyrtilegur
enda hefur Solarlux bæði gæði
og hönnun í fyrirrúmi. Lokanirnar
geta verið í hvaða lit sem er.
Skelin hefur hannað öflugt
handriðskerfi fyrir íslenskar
aðstæður sem hentar mjög vel á
fjölbýlishús og svalalokun.
Íslendingar þekkja Solarlux
Solarlux svalalokanir hafa verið á
íslenskum markaði um árabil og
reynslan sýnir að kerfin þola vel
íslensku veðráttuna enda geta
þau verið fyrir glerþykktir frá 6
upp í 15 millimetra, sem er öflugra
en nokkur önnur svalalokunarkerfi
á markaðnum.
Meðal helstu kosta svalalokana
eru að þær eru auðveldar í notk-
un, hljóðeinangrun er allt að 17
db, þær verja svalir og tréverk inn
af þeim gegn veðrum og minnka
viðhald húsnæðis. Það er auðvelt
að þrífa þær að utan sem innan
og þær halda ryki og óhreinindum
frá svölunum. Svalalokanir hafa
auk þess þau þægindi í för með
sér að garðhúsgögn, grill og aðrir
hlutir geta verið á sama stað allt
árið um kring.
Skelin ehf. hefur verið starf-
andi í rúman áratug og reksturinn
gengið mjög vel, sífellt stækkar
hópur ánægðra viðskiptavina.
Nánari upplýsingar eru á
heimasíðu Skeljarinnar ehf.,
skelinehf.is. Skelin er til húsa að
Höfðabakka 9, Reykjavík, og
snýr að Vesturlandsvegi. Sím-
inn er 578-6300 og netfangið
skelinehf@skelinehf.is.