Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Síða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Síða 42
Helgarblað 2. júní 2017KYNNINGARBLAÐ4 Allt fyrir garðinn Réttarhóll: Fjölbreytt ræktun Garðyrkjustöðin Réttarhóll á Svalbarðseyri var stofnuð árið 1990 og er hún enn í fullum blóma í dag. Í gegnum tíð- ina hefur aðalsmerki fyrirtækisins verið framleiðsla ýmissa sumar- blóma og runna. Að sögn Ólafs Eggertssonar, eiganda og eina starfsmanns Réttar hóls,er hann með á boðstólum allar algeng- ustu tegundir sumarblóma sem ræktaðar eru fyrir norðan. „Auk sumarblómanna er ég einnig með fjölær blóm, nokkrar tegundir blaðplantna og aðrar garðplöntur. Hér rækta ég einnig ýmsar tegundir og afbrigði runna. Svo fást á Réttarhóli pottablóm en einkum er um að ræða tegundir sem þola lítinn vetrarhita, eða eru einærar. Einnig er ég með matjurtir og skógarplöntur í fjölpottabökkkum eru oftast til,“ segir hann. Trjáplöntur, áburður og pottamold „Kryddjurtirnar sem ég rækta hér eru vinsælar enda verður sífellt algengara að fólk vilji hafa þær í eldhúsgluggum eða annars staðar sem auðvelt er að grípa til þeirra við matargerðina. Matjurtir, eins og t.d. hvítkál, blómkál og spergilkál, selst vel og sama má segja um gulrófur, rauðrófur og ýmsar gerðir salats. Trjáplöntur (nokkrar tegundir í pottum) og skógarplöntur er einnig að finna á Réttarhóli auk þess sem hér er einnig fáanleg pottamold og áburður,“ segir Ólafur og býður fólk velkomið á Réttarhól. Stöðin er ofan við kirkjuna á Svalbarði, rétt ofan við þorpið Sval- barðseyri, við austan verðan Eyja- fjörð, um 12 kílómetra frá Akureyri. Réttarhóll 601 Svalbarðseyri Sími: 461-1660 www.rettarholl.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.