Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Síða 4
4 Helgarblað 2. júní 2017fréttir
É
g held að íslenskt fjölbýlishús,
þar sem allir þekkja alla, sé
ekki gáfulegasti vettvangur-
inn fyrir undirheimastarfsemi
sem þessa. Það er í raun með
ólíkindum að þeim hafi dottið þetta
í hug. En þetta sýnir bara að það er
mikilvægt að vera vakandi og með
augun opin,“ segir íbúi í fjölbýlishúsi
í Bólstaðarhlíð í samtali við DV. Í lok
síðustu viku fór fram umfangsmikil
lögregluaðgerð í götunni þar sem
þrennt var handtekið, karl og tvær
konur. Grímur Grímsson aðstoðar-
yfirlögregluþjónn staðfestir að mál-
ið sé rannsakað sem mansals- og
vændismál. „Það fannst einnig lítil-
ræði af fíkniefnum í íbúðinni,“ segir
Grímur en gat að öðru leyti ekki gef-
ið frekari upplýsingar um málið.
Karlmaðurinn tók aðgerðum lög-
reglu óstinnt upp og hótaði ná-
grönnum sem fylgdust í forundran
með gangi mála.
Leigð til þriðja aðila
Íbúðin sem um ræðir hafði verið
í útleigu í rúmt ár þegar eigendur
hennar ákváðu að selja íbúðina.
Það gekk fljótt eftir og þegar rúmur
mánuður var í að leigjandinn þyrfti
að yfirgefa íbúðina virðist sem við-
komandi hafi ákveðið að leigja íbúð-
ina til þriðja aðila um skamma hríð.
Skyndilega hafi maðurinn flutt út og
þrír einstaklingar frá Ungverjalandi
flutt inn. Umsvifalaust fór að bera
á tíðum heimsóknum karlmanna
í íbúðina og tóku konurnar á móti
þeim. Þá herma heimildir DV að
megn graslykt hafi komið frá íbúð-
inni. „Þessir einstaklingar voru um
þrítugt. Þau voru ekki á neinn hátt
skuggaleg heldur snyrtileg og vel til
höfð,“ segir annar nágranni.
Þegar þríeykið var handtekið í
síðustu viku hafði starfsemin aðeins
verið í gangi í tvær til þrjár vikur. Þá
hafði lögreglan veður af því hvers
kyns var og lét til skarar skríða. Að-
gerðin hófst um kvöldmatar leytið
og stóð í rúmar þrjár klukkustundir.
Samkvæmt heimildum DV hótaði
karlmaðurinn nágrönnum sínum
þegar hann var leiddur út í járnum. Í
samtali við DV segir Grímur Gríms-
son að ekki hafi verið talin ástæða til
þess að fara fram á gæsluvarðhald
yfir þremenningunum. Var þeim
því sleppt að lokinni skýrslutöku en
málið er til rannsóknar.
Meira framboð af vændi en áður
„Það er staðreynd að það er meira
framboð af vændi í dag en fyrir
nokkrum árum. Við sjáum merki um
það á þar til gerðum vefsíðum og á
samfélagsmiðlum. En okkar upplifun
er sú að það hafi orðið vitundarvakn-
ing meðal almennings um vændi al-
mennt. Fólk er meira vakandi fyrir
því hvað sé í gangi í nærumhverfi
þess og við fáum fleiri ábendingar en
áður. Við fögnum að sjálfsögðu öllum
slíkum ábendingum,“ segir Snorri
Birgisson rannsóknarlögreglumaður
í samtali við DV. Að hans sögn hefur
það viðhorf verið ríkjandi að vændis-
sala sé einfaldlega einstaklingar í at-
vinnurekstri en sú sé yfirleitt ekki
raunin. „Yfirleitt er um að ræða er-
lenda einstaklinga hérlendis sem eru
undir hatti annarra,“ segir Snorri.
Á síðustu árum hefur Snorri
stýrt fræðsluátaki undir handleiðslu
innan ríkisráðuneytisins og virðist
verk efnið því vera að skila sínu. Það
er unnið í samráði við velferðarráðu-
neytið, Starfsgreinasamband Íslands
og mannréttindaskrifstofu Reykja-
víkurborgar. Alls hafa 60 fundir verið
haldnir og rúmlega tvö þúsund
manns sótt þá.
Aukið erlent samstarf
Að sögn Snorra eru fleiri tilvik núna
þar sem grunur leikur á að um man-
sal sé að ræða en það verði ekki endi-
lega til þess að málin séu tekin til
rannsóknar. „Við þurfum að sníða
okkur stakk eftir vexti og við þurf-
um meira en grun til þess að fara af
stað með rannsókn. En við höfum
sett upplýsingaöflun um þessi mál í
meiri forgang en áður og aukið sam-
starf við erlend lögreglulið í gegnum
Europol. Þetta eru yfirleitt alþjóðlegir
glæpahringir með starfsemi í mörg-
um löndum og því er samstarfið afar
mikilvægt,“ segir Snorri. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Rannsaka
mansalsmál
í HlíðaHveRfi
n Þrír
einstak-
lingar
handteknir
n Tíðar
mannaferðir
vöktu
grunsemdir
Úr hverfinu Myndin er ekki af vettvangi.
Að sögn nágranna er með ólíkindum að
fólkinu hafi dottið í hug að það gæti komist
upp með vændisstarfsemi í íslensku fjöl
býlishúsi. Mynd Sigtryggur Ari