Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Page 6
6 Helgarblað 16. júní 2017fréttir
Símon Elí hrósar starfsfólki í hástert en segir aðstæður bágbornar
L
æknarnir gefa mér ekki marga
mánuði. Það var auðvitað
gríðarlegt áfall fyrir mann sem
hefur alltaf verið við hesta-
heilsu. Ég hef hins vegar notið ótrú-
legrar umönnunar hér á deild 11E og
mig langar ekkert frekar en að endur-
gjalda þann hlýhug,“ segir Símon Elí
Teitsson í samtali við DV. Fyrir tilvilj-
un greindist Símon með krabbamein
fyrir rúmum tveimur mánuðum eftir
að hafa verið einkennalaus fram að
því. Hann hyggst setja af stað söfnun
fyrir nýjum húsgögnum á krabba-
meinsdeild Landspítalans þar sem
hann segir ótrúlegt fólk vinna við
erfiðar aðstæður. Hann segist vera
hugsi yfir þeirri þjónustu sem hann
hefur notið á Heilbrigðisstofnun
Suðurlands sem stenst engan veginn
samanburð við það sem hann hefur
upplifað á höfuðborgarsvæðinu.
Ákvað að berjast
Fyrir rúmum tveimur mánuðum
bakbrotnaði Símon í slysi og var
sendur til höfuðborgarinnar því tæki
á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
virkuðu ekki. Þar var hann mynd-
aður og kom í ljós að hryggjarliður
var brotinn og annar samfallinn.
„Læknarnir höfðu orð á því að bein-
in mín væru einkennileg á litinn og
það varð til þess að ég var rannsak-
aður nánar,“ segir Símon. Nokkru
síðar bárust þær skelfilegu fréttir að
Símon væri með illkynja æxli í brisi
sem og blóðmergskrabbamein.
„Brisið er í laginu eins og skötu-
selur og meinið er eins og í sporðin-
um. Það er ólæknandi ef það finnst
of seint og það var í seinna lagi hjá
mér. Ég gat valið um hvort síðustu
mánuðirnir yrðu gerðir eins bæri-
legir og hægt væri eða að ég myndi
berjast af krafti. Ég valdi síðari kost-
inn,“ segir Símon sem er aðeins 55
ára gamall. Því miður þekkir hann
afleiðingar vágestsins alltof vel því
dóttir hans lést úr krabbameini að-
eins 32 ára gömul fyrir þremur árum.
Hún lét eftir sig þrjú börn.
Hrósar starfsfólkinu í hástert
Þrátt fyrir að fótunum hafi svo
sannarlega verið kippt undan Símoni
og hans nánustu á síðustu mánuðum
þá er hann léttur í lund og vill leggja
sín lóð á vogarskálarnar varðandi
aðbúnað starfsfólks, sjúklinga og að-
standenda á krabbameinsdeildinni.
„Það er stórkostlegt starfsfólk sem
starfar hérna og ekki hægt að bera
umönnunina saman við það sem er
í boði á Heilbrigðis stofnun Suður-
lands. Hér leggja sig allir 100 prósent
fram og af fullkominni alúð. Mér
líður eins vel og hægt er að ætlast til
hér,“ segir Símon.
Hann segir þó að aðbúnaðurinn
á deildinni sé ekki í takt við frá-
bært framlag starfsfólksins. „Hér
vantar umtalsvert af húsgögnum,
venjulega stóla en kannski sérstak-
lega þægilega stóla eins og Lazy-
boy stóla. Það myndi gera aðstand-
endum mun auðveldara með að
dvelja á deildinni með ástvinum
sínum þegar þeir eru að undirgang-
ast erfiðar meðferðir,“ segir Símon.
Ástæðan er sú að nýlega þurfti að
henda öllum slíkum húsgögnum
vegna sýkingarhættu. „Það myndi
gleðja mig mjög að geta haft frum-
kvæði að slíkri söfnun. Þörfin er
mikil,“ segir Símon Elí.
Krabbameinslækningadeild
Landspítalans 11E er eina bráða-
legudeild fyrir krabbameinssjúk-
linga á Íslandi. Þetta er 15 rúma
deild og er nýtingin 100 prósent
allan ársins hring. Á deildina kem-
ur fólk á öllum stigum sjúkdómsins
en um þriðjungur Íslendinga grein-
ist með krabbamein af einhverjum
toga á lífsleiðinni.
„Það er gífurlega mikilvægt að
aðstæður og aðbúnaður þeirra
sem dvelja langtímum á sjúkrahúsi
sé viðunandi en eins og flestir Ís-
lendingar vita þá er það ekki alltaf
reyndin. Sjúkrahúsið þiggur oft á
tíðum gjafir frá velunnurum sínum
til að bæta megi aðstæður, bæði
fyrir sjúklinga og fjölskyldur þeirra,
sem og starfsfólk. Á 11E eru iðulega
fjölskyldur sem dvelja allan sólar-
hringinn hjá sínum nánustu og nú
er svo komið að við höfum þurft að
henda Lazy-boy stólum, vegna sýk-
ingarhættu og aðstæður fyrir þá sem
sitja yfir sjúklingum eru ekki nægi-
lega góðar,“ segir Halldóra Hálf-
dánardóttir, deildarstjóri krabba-
meinsdeildar 11E, og kveðst afar
þakklát fyrir framtak Símonar. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Setur af stað
söfnun fyrir
deild 11E á
sjúkrabeði
Símon Elí Teitsson Hann greindist með krabbamein fyrir rúmum tveimur mánuðum
og hefur að sögn fengið misjafna þjónustu í heilbrigðiskerfinu. Hann var síðan fluttur inn
á deild 11E á Landsspítalanum og lofar þar þjónustuna í hástert. Hins vegar segir Símon
Elí að aðstæður séu bágbornar og því hefur hann sett af stað söfnun fyrir húsgögnum og
öðrum nauðsynjum. Mynd SigTryggur Ariw
Við erum stolt af útgáfu á íslenskri tónlist
StudioNorn.is