Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Qupperneq 16
16 sport Helgarblað 16. júní 2017 Í slenska karlalandsliðið í fótbolta hefur í rúm fjögur ár unnið hug og hjörtu íslensku þjóðarinn- ar með magnaðri frammistöðu reglulega. Ekki eru svo mörg ár síðan íslenska karlalandsliðið var lítt vinsælt og aðeins neikvæðar fréttir voru skrifaðar um liðið. Eftir að sænski þjálfarinn, Lars Lagerbäck tók við liðinu seint árið 2011 hefur leiðin legið upp á við og úrslitin mörg verið frábær. Heimir Hallgrímsson var fyrst um sinn að- stoðarmaður hans en síðar tóku þeir saman við liðinu og í dag stýrir Heimir liðinu einn. Merkilegasta afrek þeirra fé- laga var að koma íslenska karla- landsliðinu í fyrsta sinn á stórmót í fyrrasumar þegar liðið gerði frá- bæra hluti á Evrópumótinu í Frakk- landi. Landsleikirnir undir þeirra stjórn eru margir og margir hverjir ógleymanlegir. Hér má lesa um 10 eftirminnilegustu leiki Íslands undir stjórn Lars og Heimis að mati álits- gjafa DV. 10 eftirminnilegustu leikir Íslands undir stjórn Heimis og Lars n Úr djúpum dal upp í hæstu hæðir n Leið landsliðsins hefur oft verið ærið grýtt Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is 10 Ísland 0-0 Kasakastan (Undankeppni EM 2016) Leikurinn sem tryggði Íslandi miða á Evrópumótið í Frakklandi var ekki merkilegur fyrir þær sakir hvernig hann var spilaður. Ljóst var eftir sigur Íslands í Hollandi nokkrum dögum áður að jafntefli myndi duga íslenska liðinu til að tryggja sig inn á Evrópumótið. Ljóst var að gríðarlegt stress var í íslensku strákunum enda liðið á barmi þess að stíga stórt skref í íþróttasögu Íslands. Jafnteflið kom í hús og fögnuðurinn á Laugardalsvelli er ógleymanlegur, stemmingin hélt svo áfram langt fram á nótt þar sem Íslendingar fjölmenntu niður í miðbæ til að fagna með strákunum okkar, partíið hélt svo áfram langt fram eftir nóttu eða þangað til að lögreglan skellti í lás á skemmtistaðnum B5 þar sem landsliðsmenn og stuðningsmenn fögnuðu saman. Ísland 2-1 Tékkland (Undankeppni EM 2016) Sumarið 2015 var íslenska landsliðinu gott, mikilvægur leikur við Tékkland á heimavelli í undankeppni Evrópumótsins í Frakklandi. Útlitið var ekki gott þegar öflugt lið Tékklands komst yfir en baráttuhugur íslensku strákanna með fyrirliðann, Aron Einar Gunnarsson, fremstan í flokki skilaði íslenska liðinu sigri. Aron Einar jafnaði leikinn þegar klukkutími var búinn af honum og það var svo markamaskínan Kolbeinn Sigþórsson sem fíflaði Petr Cech, markvörð Tékklands, til að skora sigurmarkið á 76. mínútu leiksins. Sigurinn varð til þess að Ísland var komið í frábæra stöðu til að koma sér til Frakklands og liðið leit aldrei til baka eftir föstudagskvöldið 12. júní árið 2015 á Laugardalsvelli. Ísland 3-2 Finnland (Undankeppni HM 2018) Ótrúlegir leikir eftir EM héldu áfram haustið 2016 þegar Finnland kom í heimsókn, leikur Íslands var ekki góður þetta kvöldið en sigurinn kom þótt hann hafi vissulega ekki verið sanngjarn. Kári Árnason skoraði mark Íslands í fyrri hálfleik en Finnland komst svo yfir og allt stefndi í sigur gestanna þegar í uppbótatíma var komið. Alfreð Finnboga- son jafnaði leikinn fyrir Ísland á 91. mínútu hans og fimm mínútum síðar eða á 96. mínútu leiksins kom sigurmarkið frá Ragnari Sigurðssyni. Ótrúlegur sigur í leik þar sem Ísland spilaði ekki vel, flestir líta á það sem styrkleikamerki þegar sigur vinnst í leik sem er illa spilaður. 9 8 Holland 0-1 Ísland (Undankeppni EM 2016) Það voru margir Íslendingar sem lögðu leið sína til Amsterdam til að styðja strákana okkar haustið 2015, þeir sem lögðu út fyrir ferðinni yfir til Hollands fengu allt fyrir peninginn. Heimamenn misstu mann af velli í fyrri hálfleik og í þeim síðari steig Gylfi Þór Sigurðsson upp og var hetja liðsins. Ísland fékk víta- spyrnu sem Gylfi tók og hann gerði ekki nein mistök þar, líkt og svo oft í þessari undankeppni, og tryggði Íslandi miðann á sitt fyrsta stórmót í karlaknattspyrnu. 7
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.