Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Page 24
24 fólk - viðtal Helgarblað 16. júní 2017 G uðbjörg hitti blaðamann DV í morgunkaffi í vikunni. Ólíkt mörgum viðmælend­ um var Guðbjörg mætt á slaginu enda þéttbókuð þegar hún hefur aðeins nokkra daga til umráða með fjölskyldu og vinum á Íslandi. Tilefni Íslandsferðarinnar að þessu sinni var æfingarleikur ís­ lenska A–landsliðsins í fótbolta gegn Brasilíu sem fram fór á Laugar­ dalsvelli þann 13. júní síðastliðinn. Þó svo að úrslitin hafi ekki verið eins og landsliðskonurnar lögðu upp með var bjart yfir Guðbjörgu sem er orðin gríðarlega spennt fyrir lokakeppni EM kvenna í fót­ bolta. Keppnin fer fram í Hollandi í júlí. Þá er Guðbjörg einstaklega þakklát fyrir þær móttökur og með­ byr sem íslenska kvennalandsliðið hefur fengið frá þjóðinni síðustu ár. „ Ekkert toppar það að spila á Laugardalsvelli frammi fyrir þús­ undum Íslendinga. Stemningin er svo stórkostleg að ég get eiginlega ekki lýst því með orðum.“ Fylgdi vinkonunum í boltann Knattspyrnuferill Guðbjargar hófst þegar hún byrjaði að æfa knattspyrnu með FH árið 1993, þá átta ára gömul. „Allar stelpurnar fóru í fótbolta hjá FH og strákarnir æfðu flestir handbolta með Hauk­ um. Ég fylgdi mínum vinkonum. Þannig byrjaði þetta.“ Guðbjörg kveðst hafa verið með mjög góðan þjálfara hjá FH. Á milli æfinga kallaði hann oft í Guð­ björgu og bað hana um að hitta sig í íþróttasal í skólanum þar sem hann starfaði einnig, svo hann gæti skot­ ið á hana. „Án þess að átta mig á því þá voru þetta dýrmætar auka­ æfingar. Þarna hef ég verið svona 9–10 ára.“ Flestum kvöldum eyddi Guðbjörg svo í Kaplakrika í fótbolta með krökkunum í hverfinu. „ Maður var öll kvöld uppi á Kaplakrika að spila fótbolta bæði með stelpum og strákum.“ Á þessum tíma var Guðbjörg far­ in að finna að hún væri orðin mjög góð í marki. „Þegar fólk áttar sig á því að maður skarar fram úr þá fær maður svo mikla hvatningu. Ég byrjaði snemma að spila með eldri stelpum og komst fyrst í meistara­ flokk þegar ég var 14 ára. Sama ár var ég líka fyrst valin í U­17 lands­ liðið. Um þetta leyti byrjaði ég líka að hafa alvöru metnað. Fótboltinn hætti að vera leikur í mínum huga og ég fór bæði meðvitað og ómeð­ vitað setja mér markmið.“ Árið 2003 hætti Guðbjörg í FH og gekk til liðs við Val. „Við unnum marga titla og þar komst ég fyrst al­ mennilega á kortið.“ Boltinn var far­ inn að rúlla hratt hjá Guðbjörgu sem íhugaði einnig um tíma að fara í nám í Bandaríkjunum. „Ég var búin að skoða alls konar skóla og var lengi að ákveða mig.“ Að lok­ um stoppuðu þjálfarar Guðbjargar hana þó af. „Sumir skólar eru alveg geggjaðir og ég skil vel krakka sem fara til Bandaríkjanna. Að fá frítt nám fyrir það eitt að spila fótbolta. En ég setti boltann í fyrsta sæti. Ég fékk miklu meiri þjálfun og tæki­ færi hérna heima en ég hefði fengið úti. Að minnsta kosti í þeim skólum sem ég hafði augastað á. Sem betur fer töluðu þjálfararnir mínir mig inn á að hætta við.“ Ekki jafn heppnar og strákarnir Svo fór að Guðbjörg útskrifaðist með stúdentspróf frá Verzlunarskóla Ís­ lands. Í framhaldinu lærði hún hagfræði í HÍ. Þaðan útskrifaðist hún með BS­gráðu haustið 2008. Nokkrum mánuðum síðar flutti Guðbjörg til Stokkhólms þar sem sænska úrvalsdeildarliðið Djur­ gården bauð henni samning. Liðið, sem hún er aftur farin að spila fyrir í dag, kom einnig að máli við hana árið 2005 eftir að Valur mætti liðinu í Evrópukeppni, og bauð henni til Stokkhólms Það hefði ekki gerst ef hún hefði farið í nám til Bandaríkj­ anna. Þá fannst Guðbjörgu hún sjálf þó enn of ung en þegar Djurgården hafði aftur samband árið 2009 sló hún strax til og hefur verið búsett erlendis síðan, mest í Svíþjóð en um tíma bjó hún einnig í Noregi og Þýskalandi. Guðbjörg lagði mikla áherslu á að mennta sig svo hún hefði eitt­ hvað að grípa til þegar ferlinum lyki: „Við erum ekki jafn heppnar og strákarnir. Ég hef lagt eitthvað „Við erum ekki jafn heppnar og strákarnir“ Margir ættu að kannast við Guðbjörgu Gunnarsdóttur en hún er markmaður íslenska A-landsliðsins í fótbolta. Guðbjörg, sem er fædd árið 1985, byrjaði ung í fótbolta, og er nú á hátindi ferilsins. Það er kannski engin furða hvað hún hefur náð langt. Guðbjörg er mjög metnaðargjörn og leggur mikið á sig til að halda sér í toppformi. Á milli þess sem Guðbjörg spilar fótbolta nýtur hún þess að eyða verja tímanum með kærustunni sinni, Miu Jalkerud, elda góðan mat og ferðast um heiminn. Þá er Guðbjörg, sem er búsett í Stokkhólmi, farin að leggja drög að lífinu „eftir boltann.“ „Kjaftæði að fáir hafi áhuga á kvenna- knattspyrnu Kristín Clausen kristin@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.