Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Side 28
4 Í góðum málum Helgarblað 16. júní 2017KYNNINGARBLAÐ
Háþrýstiþvottur er óhjá-kvæmilegur undanfari stórra málningarverkefna
utanhúss og ákaflega skilvirk
aðferð til að gera hús og byggingar
klárar undir málningu. Fyrirtækið
ÁÁ Verktakar ehf. er leiðandi á
sviði háþrýstiþvottar hér á landi
og hefur yfir að ráða afar öflugum
búnaði til slíkra verka, sem er allur í
eigu fyrirtækisins.
Til að hreinsa málningu af
húsum er notast við 500 bara
hitadælur sem geta hitað vatn
upp í 100 gráður. Slíkar dælur eru
einnig notaðar í alls konar fitu- og
olíuhreinsanir og víðar þar sem
við á.
„Íbúðarhús eru oft hreinsuð
með um 300 til 500 bara þrýstingi
og köldu vatni sem dugar til að
hreinsa óhreinindi og gróður af
húsum. En svo geta verið öndunar-
vandamál og vatnspokar og þá
þarf að hreinsa gömlu málninguna
alla af, þ.e. alhreinsun. Þá þarf að
nota heitt vatn,“ segir Áslaugur
Einarsson, framkvæmdastjóri ÁÁ
Verktaka.
Fyrirtækið var stofnað árið
1991 og hefur það vaxið og dafnað
allar götur síðan. Auk háþrýsti-
þvottar sérhæfir ÁÁ Verktakar ehf.
sig í viðhaldi fasteigna, til dæmis
múrviðgerðum, málningarvinnu,
trésmíðavinnu og annarri viðhalds-
vinnu fasteigna.
Sem fyrr segir er búnaður ÁÁ
Verktaka til háþrýstiþvotta afar
öflugur: „Við erum með 3.000
bara dælur sem eru notaðar til að
hreinsa málningu af stáli. Enn frem-
ur við hreinsanir á túrbínuhjólum og
ýmsu öðru. Þrýstingurinn á þeim er
afar hár og þær mjög öflugar. Enn
fremur erum við með 1.500 bara
dælur, mjög vatnsmiklar, þær eru
meðal annars notaðar í virkjanir, til
að hreinsa úr borholum og rörum
og vörmum,“ segir Áslaugur.
Háþrýstidælurnar koma annars
vegar frá Þýskalandi, frá fram-
leiðandanum Falch, og hins vegar
frá Bandaríkjunum, frá fyrirtækinu
Garden Denver, en báðir aðilar eru
afar öflugir framleiðendur há-
þrýstidæla.
ÁÁ Verktakar ehf. er í
Reykjanesbæ en að sögn Áslaugs
eru langflest verkefni þeirra á
höfuðborgarsvæðinu. Viðskipta-
vinir fyrirtækisins eru af ýmsu tagi,
til dæmis almennir húseigendur
sem ætla að mála hús sitt og
þurfa á háþrýstiþvotti að halda til
að gera klárt undir málun. Einnig
er algengt að málarameistarar
leiti til fyrirtækisins eftir tilboðum í
háþrýstiþvott.
Háþrýstiþvotturinn er einnig oft
hluti af stærri verkefnum fyrir-
tækisins enda sinni það margs
konar húsaviðgerðum og er með
fjölda múrara í vinnu. Einnig hefur
fyrirtækið unnið mikið fyrir orku-
fyrirtæki við að beita hinum öflugu
háþrýstidælum við hreinsanir úr
borholum og fleira. Þá hefur ÁÁ
Verktakar ehf. unnið mikið fyrir
útgerðarfyrirtæki og sinnir öllum
þvotti fyrir Stálsmiðjuna Framtak,
sem rekur Slippinn í Reykjavík.
Sem fyrr segir hefur verið mikil
vöxtur í starfseminni: „Starfsemin
hefur vaxið jafnt og þétt frá því
við byrjuðum og tækjakosturinn
hefur fylgt með. Það varð vissu-
lega dálítið stopp eftir hrunið eins
og hjá mörgum en síðan hefur
þetta legið upp á við. Sem dæmi
um það keyptum við 3.000 bara
háþrýstidæluna árið 2013 og var
það fyrsta dælan af slíku tagi
sem seld var frá Þýskalandi innan
Evrópu. Einnig höfum við bætt við
okkur skæralyftum og spjótum til
að nota þegar unnið er við hærri
byggingar,“ segir Áslaugur að
lokum.
ÁÁ Verktakar ehf. Fitjabraut 4
260 Reykjanesbær Símar: 421-
6530 og 898-2210 aaverktakar@
aaverktakar.is Heimasíða: www.
aaverktakar.is.
Leiðandi í
háþrýstiþvotti
ÁÁ VERkTAkAR
Unnið við háþrýsti-
þvott á einbýlishúsi
Háþrýstiþvottur á fjölbýlishúsi
Myndin hægra megin sýnir
einbýlishús eftir háþrýstiþvott
- vinstra megin er sama hús
eftir pússningu og fíltun.
Háþrýsti-
þvottur á
bárujárnshúsi