Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Page 28
4 Í góðum málum Helgarblað 16. júní 2017KYNNINGARBLAÐ Háþrýstiþvottur er óhjá-kvæmilegur undanfari stórra málningarverkefna utanhúss og ákaflega skilvirk aðferð til að gera hús og byggingar klárar undir málningu. Fyrirtækið ÁÁ Verktakar ehf. er leiðandi á sviði háþrýstiþvottar hér á landi og hefur yfir að ráða afar öflugum búnaði til slíkra verka, sem er allur í eigu fyrirtækisins. Til að hreinsa málningu af húsum er notast við 500 bara hitadælur sem geta hitað vatn upp í 100 gráður. Slíkar dælur eru einnig notaðar í alls konar fitu- og olíuhreinsanir og víðar þar sem við á. „Íbúðarhús eru oft hreinsuð með um 300 til 500 bara þrýstingi og köldu vatni sem dugar til að hreinsa óhreinindi og gróður af húsum. En svo geta verið öndunar- vandamál og vatnspokar og þá þarf að hreinsa gömlu málninguna alla af, þ.e. alhreinsun. Þá þarf að nota heitt vatn,“ segir Áslaugur Einarsson, framkvæmdastjóri ÁÁ Verktaka. Fyrirtækið var stofnað árið 1991 og hefur það vaxið og dafnað allar götur síðan. Auk háþrýsti- þvottar sérhæfir ÁÁ Verktakar ehf. sig í viðhaldi fasteigna, til dæmis múrviðgerðum, málningarvinnu, trésmíðavinnu og annarri viðhalds- vinnu fasteigna. Sem fyrr segir er búnaður ÁÁ Verktaka til háþrýstiþvotta afar öflugur: „Við erum með 3.000 bara dælur sem eru notaðar til að hreinsa málningu af stáli. Enn frem- ur við hreinsanir á túrbínuhjólum og ýmsu öðru. Þrýstingurinn á þeim er afar hár og þær mjög öflugar. Enn fremur erum við með 1.500 bara dælur, mjög vatnsmiklar, þær eru meðal annars notaðar í virkjanir, til að hreinsa úr borholum og rörum og vörmum,“ segir Áslaugur. Háþrýstidælurnar koma annars vegar frá Þýskalandi, frá fram- leiðandanum Falch, og hins vegar frá Bandaríkjunum, frá fyrirtækinu Garden Denver, en báðir aðilar eru afar öflugir framleiðendur há- þrýstidæla. ÁÁ Verktakar ehf. er í Reykjanesbæ en að sögn Áslaugs eru langflest verkefni þeirra á höfuðborgarsvæðinu. Viðskipta- vinir fyrirtækisins eru af ýmsu tagi, til dæmis almennir húseigendur sem ætla að mála hús sitt og þurfa á háþrýstiþvotti að halda til að gera klárt undir málun. Einnig er algengt að málarameistarar leiti til fyrirtækisins eftir tilboðum í háþrýstiþvott. Háþrýstiþvotturinn er einnig oft hluti af stærri verkefnum fyrir- tækisins enda sinni það margs konar húsaviðgerðum og er með fjölda múrara í vinnu. Einnig hefur fyrirtækið unnið mikið fyrir orku- fyrirtæki við að beita hinum öflugu háþrýstidælum við hreinsanir úr borholum og fleira. Þá hefur ÁÁ Verktakar ehf. unnið mikið fyrir útgerðarfyrirtæki og sinnir öllum þvotti fyrir Stálsmiðjuna Framtak, sem rekur Slippinn í Reykjavík. Sem fyrr segir hefur verið mikil vöxtur í starfseminni: „Starfsemin hefur vaxið jafnt og þétt frá því við byrjuðum og tækjakosturinn hefur fylgt með. Það varð vissu- lega dálítið stopp eftir hrunið eins og hjá mörgum en síðan hefur þetta legið upp á við. Sem dæmi um það keyptum við 3.000 bara háþrýstidæluna árið 2013 og var það fyrsta dælan af slíku tagi sem seld var frá Þýskalandi innan Evrópu. Einnig höfum við bætt við okkur skæralyftum og spjótum til að nota þegar unnið er við hærri byggingar,“ segir Áslaugur að lokum. ÁÁ Verktakar ehf. Fitjabraut 4 260 Reykjanesbær Símar: 421- 6530 og 898-2210 aaverktakar@ aaverktakar.is Heimasíða: www. aaverktakar.is. Leiðandi í háþrýstiþvotti ÁÁ VERkTAkAR Unnið við háþrýsti- þvott á einbýlishúsi Háþrýstiþvottur á fjölbýlishúsi Myndin hægra megin sýnir einbýlishús eftir háþrýstiþvott - vinstra megin er sama hús eftir pússningu og fíltun. Háþrýsti- þvottur á bárujárnshúsi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.